Akranes - 01.04.1957, Page 38

Akranes - 01.04.1957, Page 38
Hinn mikli styrkur sigrar meinin vönd An innra afls er maðurinn engimn maður, strá sem berst með straumi, reka- bútur , sem engiim veit hvert fer eða ílækist. Erfðir hafa hér auðvitað mikið að isegja, umhverfi einnig og uppeldi. Af öllu þessu mótast í aðaldráttum starfsval mamnsins og lífshugsjón. Fleira kemur hér og úrvalsmönnum til góða, þ. e. óvenjulega náið og traust samband við uppsprettu lífsins, við Guð. Það eru þeir, sem Guð útvelur sem sína. menn, og höndlaðir verða af Kristi. Þeim verður allt auðvelt um eigin hag. Þeir eru bljúg- ir menn, en samhliða styrkar hetjur fyr- ir kraft Guðs, sem þá istyrka gerir, til blessunar fyrir ótalda einstaklinga- Oft leiddir með undursamlegum atvikum á nýjar brautir eða nýja staði, til þess að bera vitni almætti Guðs og óendanlegum kærleika. Þessir menn verða oft reyndir á margvíslegan hátt. Hvort þeim sé trú- andi, treystandi til þess að standa ■ stöð- ugir, og bregðast hvorki sjálfum sér né mömnunum, sem Guð hefur útvalið þá til að leiðbeina, stækka og gera sterka, til þess að ganga beina braut lífsins, sjálf- um sér til heilla, og sem flestum öðrum til blessunar. Einn Akumesingur hefir orðið þeirrar náðar og giftu aðnjótandi, að verða trú- verðugur Ijósberi Guðs í þessari sveit, svo að fjöldi mannis í fjarlægri heimsálfu efast ekki um einlægni hans, og náið samband við uppsprettu kraftarins. Þessi maður er Sveinbjöm Sigurður Ólafsson frá Halakoti á Akranesi. Hann er f. þar 24. nóv. 1897, og er því sex- tugur á þessu hauisti- Foreldrar hans 106 voru: Anna Sveinbjörnsdóttir frá Bygg- garði, Guðmimdssonar bónda á Hvítár- völlum, Sveinbjömssonar, en Guðmund- ur þessi Sveinbjörnsson var hálfbróðir Þórðar háyfirdómara Sveinbjömssonar, föður Sveinbjarnar tónskálds, er samdi hið fagra lag þjóðsönginn okkar. Faðir Sveinbjarnar Ólafssonar var hins vegar Jónas Ikaboðsson, ættaður úr Dölum vestur. I 9.—10. tbl. „Akraness“ 1949 hefi ég ritað nokkuð um síra Sveinbjöm og upp- hafsmann Metodistakirkjunnar, John Wesley, en það verður ekki endurtekið hér. Það virðist eins og hann hafi verið leiddur út í prestsskapinn styrkum, ör- uggum skrefum, sem þó eiga djúpar, varanlegar rætur í fyrstu bemsku hans hér á Akranesi öllu öðru fremur. Bimdn- ar órjúfanlegum böndum minninga við ljósum prýdda kirkjuna hans, þar sem hann var ungur færður Guði í skíminni. 1 Reykjavík var hann í kirkju hins landskunna prédikara, síra Ölafs frí- kirkjuprests, en þaðan man hann lítið. Hann var í Jóns Bjarnasonarskóla vest- anhafs, og veldur sumt af verkefnunum þar honum glímuskjálfta til að byrja með- Þar er hann undir ömggri hand- leiðslu úrvalsmanns, dr. Runólfs Mar- teinssonar, þar sem gagnkvæm vinátta og traust myndast. Eftir þetta gekk hann á háskóla Metodista í Ameríku, þar sem honum fannst liann fá svar við mörgum vafaspurningum, sem til þessa höfðu ó- náðað hann og valdið honum nokkmm áhyggjum. Nokkru síðar gerðist Sveinbjöm prest- AKRANES

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.