Akranes - 01.04.1957, Side 59
prestakalli. Kona Gunnars og móðir Leifs,
var hins vegar Þórunn, f. í Fitjasókn,
Magnúsdóttir, Ketilssonar, en móðir Þór-
unnar, og kona Magnúsar, var Guðrún
Þórðardóttir, hjón búandi í Svanga í
Skorradal, f. 5. maí 1862. Guðni og
Anna hafa gifzt 18. október 1867, og eru
þá á Syðra-Fjalli í Þingeyjarsýslu.
Gunnar Guðnason og Þórunn Magnús-
dóttir flytja 1899 frá Melaleiti í Mela-
sveit að Gerði í Innri-Akraneshreppi, en
þaðan flytja þau að Saltvik á Kjalarnesi
árið tgoo. Þar eru þau til 1910 er þau
flytja að Esjubergi. Þar andaðist móðir
Leifs 1913, en faðir hans hýr þar til
1919 er hann flytur til Reykjavíkur.
Systur á Gunnar tvær- Anna, gift
Brynjólfi Melsteð á Bólstað í Gnúpverja-
hreppi, og Guðrún, óg. i Reykjavík. Hann
á eina uppeldissystur, Soffíu Riis, óg. í
Reykjavík.
Leifur var heima þar til hann flutt-
ist til Reykjavíkur eins og fyrr segir.
Árið 1921 fór hann fyrst á togara, og
var þá samfleytt í 7 ár á togaranum
Geir, með Sigurði Sigurðssyni, en siðar
var Leifur um nokkur ár á Max Pember-
ton. Til Akraness mun hann hafa flutt
1930, en þó ekki hafa skrifað sig þar
fyr en 1931. Alla stund síðan hefur
hann átt hér heima. Fyrst stundaði hann
sjó á vélbátum, en árið 1940 gerðist
hann bifreiöastjóri. Árið 1947 tók hann
við forstöðu Vörubílstöðvarinnar hér, en
í marzmánuði s. 1. gerðist hann fram-
kvæmdarstjóri fyrir Bifreiðaverkstæði
Akraness.
Þau Leifur og Flulda éiga aðeins einn
son, Brynjar Þór, sem er verzlunarmað-
ur við verzlun Axels Svemhjörnssonar
h.f. Hjá þeim hjónum ólst upp Jórunn
Eyjólfsdóttir Jónssonar, frá 6 ára aldri
til 17 eða 18 ára. Jórunn er gift Jóni
Arasyni, Jónssonar, Arasonar frá Kirkju-
völlum. Þau eru fyrir nokkrum árum
flutt til Reykjavikur, þar sem Jón vinnur
hjá Harðfisksölunni.
Árið 1953 selur Leifur Gunnarsson
Bergstaði Birni Guðmundssyni. Hann er
f- á Sólmundarhöfða 29. ágúst 1917, en
flytur til Akraness 1927 með móður
sinni Ágústínu Björnsdóttur. Með Birni
býr þar Elinborg Guðmundsdóttir systir
Björns, en hún er f. á Sólmundarhöfða
13. des. 1911, þar er hjá henni Guð-
mundur Ágúst Sveinsson, sonur hennar.
8kki scr á scxiugum garpi
Aldrei skrifar hann meira, talar oftar,
eða brosir blíðar en nú. Aldrei kvikari á
fæti eða færari um að sannfæra menn
um gildi mennta og manndóms, byggt á
traustum grunni göfugustu kennda. Mað-
urinn, sem hér er átt við, er dr. Richard
Beck, er varð sextugur 9. júní s.l.
Hann er óþreytandi í því að byggja
brú góðleikans milli manna og þjóða.
Þeir, sem ráðast ungir í þann veglega
vingarð, og vinna þar langa ævi af slík-
um eldmóði, með hjartað á réttum stað
og trúna á hin eilífu fyrirheit, fara alltaf
með sigurkrans af þeim hólmi. Það vant-
ar meira af slíkum mönnum, sem aldrei
gefast upp og missa aldrei trúna i sigur-
mátt hins góða. Það er sýnilegt, að þessa
mikilsverðu lífsæð í Beck er'ekki hægt að
drepa, enda er sigur hans þegar orðinn
mikill, og á þó eftir að verða enn meiri.
Hamastu áfram og haltu sama striki,
Guð og gæfan lætur þig ekki án um-
bunar. Heill þér sextugum.
ÓL B. Björnsson.
A K R A N E S
127