Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2004, Page 3
DV Fyrst og fremst
LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2004 3
DV bauð áskrifendum sínum á sýningu dávaldsins Sailesh á
fimmtudagskvöldið. Áhorfendur skemmtu sér konunlega og
var þetta án efa einhver best heppnaða skemmtun ársins.
Frumlegt og
fáránlega fyndið
Skemmtun dávaldsins Sailesh á
fimmtudagskvöldið var sédega vel
heppnuð. Vel var mætt á sýninguna og
eftir smá upphitun þar sem áhorfend-
ur voru látnir slaka á og prófa smá dá-
leiðslu varbeðiö um nokkra sjálfboða-
liða. á milli 60-70 manns gengu strax
upp á svffiið og va| Sailesh greinilega
nokkuð brugðið enda hafði annar eins
íjöldi aldrei boðist tíl að taka þátt í sýn-
ingu hjá honum. Þegar búið var að
finna sæti handa öllum hófst hann
handa við að dáleiða og sigtaði'jra
móttækilegusm út frá hinum sem ekki
tóku eins vel við dáleiðslunni.
Að lokum voru um 20 vel dáleiddir
einstaklingar uppi á sviðinu og þá
hófst gamanið fyrir aivöru. Byrjað var
á léttu nótunum, t.d. með því að láta
fólkinu veröa ógurlega kalt og láta það
halda að einhver væri að klípa það í
rassinn. Því næst kom Sailesh hinum
dáleiddu nakinn fyrir sjónir, ýmist sem
karl eða kona, og glennti sig á alla
kanta og var óborganlegt að horfa á
Fólkið gert klart tum i
H svið afdáleiddu fólki og
I rittná hvria.
viðbrögð dáleidda fólksins. Sailesh lét
það fflca trúa því að hann væri með
ósýnilega svefhbyssu og í hvert sinn
sem hann skaut sofiiaði fólkið.
Fullnægingar, kíverskt uppi-
stand og kynlíf hunda
Hinir dáleiddu voru síöan sendir út
á meðal áhorfenda í hléinu og hélt
hver og einn að hann væri fræg per-
sóna. John Lennon, Brimey Spears,
Jim Carey, Tom Cruise og margir
gengu því út í salinn og byrjuðu að
gefa eiginhandaráritanir. Eftir hlé
hófst svo sýningin fyrir alvöru.
Fólk var látíð fá fuilnægingar á
sviðinu, kynfæri fólks fóru skyndilega
að tala, Brimey Spears tók lagið, alís-
lenskur maður hélt uppistand á kín-
versku, tveir ungir piltar buðu upp á
ballet og strippdans svo fátt eitt sé
neíht. Aö lokum urðu hinir dáleiddu
að hundum og sumir þeirra voru
meira að segja á miðju mökunartíma-
bili, áhorfendum til ómældrar
skemmtunar.
Gestír sýningarinn
ar lágu í hláturs
krampa meira og
minna aiia sýning
una enda heppnaöist
hún í alla staði frá
bæriega. Óhætt er
að fullyrða að hér
hafi etahver besta
skemmtun ársins
farið framfog ef
einhverjir voru
efins um raun
veruleika dá
leiðslu fyrir
sýntaguna
voru þeir það
ekki að henni . ^
lokinni. Sai-
lesh var x
hretat út I
sagt magn- Jf
aður og
fyrir þá fs
sem misstu * —
af f\Tstu
tveimur sýn-
tagun er vert að benda á
að Sailesh verður í síðastí
skiptí á Broadway annað
kvöld. Uppselt er á sýn-
taguna en ósóttar pant-
anir verða seldar eftír kL
19. agusi’&dv.is
Lára Rúnarsdóttir
IftUUAil
Fulltnafh: Lára Rúnarsdóttir.
Fæðingardagur og án 4. okt. 1982
Maki: Enginn.
Böm: Engln.
Biffeið: Engin.
Starf: Tónlistarmaður og nemi.
Laun: Lítil sem engin.
Áhugamál: Tónlist og körfubolti og reyndar
fullt meira.
Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur f
Lottóinu? Tvær.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Semja tónlist og flytja hana.
Hvað fínnst þér leiðinlegast að gera? Ryk-
suga, einu skiptin sem ég fer í vont skap.
Uppáhaldsmatur Jólasteik.
Uppáhaldsdrykkun Appelsínudjús.
Hvaða iþróttamaður fínnst þér standa
ffemstur f dag? Jón Arnór.
Uppáhaldstfmarit: Q.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur séð fyrir
utan maka? Söngvarinn f Maroon 5.
Ertu hlynnt eða andvfg rfkisstjóminni?
Ágætlega hlynnt.
Hvaða persónu langar þig mest að hitta?
Tom Waits.
Uppáhaldsleikari: Jack Nicholson.
Uppáhaldsleikkona: Kirsten Dunst.
Uppáhaldssöngvari:Tom Waits, Nick
Cave og Stina Nordenstam.
Uppáhaldsstjómmálamaður:
SteingrímurJ. Sigfússon.
Uppáhaldsteiknimyndaper-
sóna:Tommi.
Uppáhaldssjónvarpsefni:
Horfi litið á sjónvarp og
fylgist ekki með neinum
þætti.
Ertu hlynntur eða and-
vígur veru vamarliösins
hérálandi? Frekar
hlynnt.
Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Rás
tvö og X-ið.
Uppáhaldsútvarpsmaður Óli Palli held ég
bara.
Stöð 2, Sjónvarpið eða Skjár einn? Skjár
einn, góð tónlistarmyndbönd á daginn...
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sveppi og
Auddi.
Uppáhaldsskemmtistaðun Kaffíbarinn.
Uppáhaldsfélag f fþróttum: Breiðablik.
Stefhurðu að einhverju sérstöku f ffamtfð-
inni? Hamingju.
Hvað gerðirðu f sum-
arffíinu? Fórtil
Spánar.
Hljómsveitin Mannakorn heldur
áfram að eiga sér fastan stað í vitund
iandsmanna sem ávísun á góða tón-
list. Á dögunum sendi sveitin frá sér
plötuna Betra en best og var henni
fylgt eftir með útgáfutónleikum í
Salnum í Kópavogi á fimmtudags-
kvöldið. Skemmst er frá að segja að
fuilt var út úr húsi. Að sögn stjórn-
enda í Salnum bárust fjöldi áskor-
ana um að haldnir yrðu aukatón-
leikar og hefur liljómsveitin ákveðið
að verða við því, á fimmtudags-
kvöldið næsta, 30. september. í
fréttatilkynningu segir að á efriis-
skránni verði ný lög í bland við eldra
efni. Óþarfi er að kynna aðalmenn-
ina tvo; Magnús Eiríksson, gítarleik-
ari og söngvari og Pálmi Gunnars-
son söngvari og bassaleikari hafa
verið svo lengi í bransanum að það
þekkir þá hver kjaftur. Á tónleikun-
um fá þeir Benedikt Brynleifsson
trommuleikara og Agnar Má Magn-
ússon píanóleikara sér til fulltingis.
Þá er ekki talið ólíklegt að óvæntir
gestir líti við. Miðasala er í Salnum
og miðaverð er 2.200 krónur.
Uppselt á Marianne Faithful
Samkvæmt tilkyim-
ingu frá Einari Bárðar-
syni er uppselt á tón-
leika Marianne Faith-
ful sem verða á Broad-
way þann 11. nóvem-
ber næstkomandi.
„Hún mætir með full-
skipaða hljómsveit
og ætlar að flytja safii
sinna þekktustu laga
í bland við lög af síð-
ustu plötu sinni Kiss-
Marianne Faithful Greinilegt
er að hún á marga aðdáendur
á Islandi sem nú blða komu
þessarar söngkonu sem hefur
marga fjöruna sopið.
in Time sem kom út árið
2002. Sú plata fékk glimr-
andi dóma gagnrýnenda
um allan heim. Nýjasta
platan hennar kemur í
verslanir á mánudag á ís-
landi. Platan heitir Before
The Poison og hefur
fengið frábærar viðtök-
ur gagnrýnenda um all-
an heim,“ segir í til-
kynningunni.
orona
rM?51 *tlar