Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2004, Síða 59
DV Fréttir
LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 59
Málari fær
milljónir
Manni sem slasaðist við
málningarstörf í Spönginni
í Grafarvogi þegar vinnu-
lyfta lagðist á hliðina hafa
verið dæmdar 3,9 milljónir
króna í bætur. Lyftan fór á
hliðina þegar eitt hjól
hennar fór ofan í gat í ný-
byggingu. Málarinn varð
undir lyftunni. Hann var
meðal annars rifbeinsbrot-
inn með gat á vinstra lunga
og blæðingu í fleiðruholi,
rifu á milta, áverka á
vinstra nýra og kurlbrot í
mjaðmaskál. Liðhaus lær-
leggsins gekk inn úr
mjaðmagrindinni. Hann
vera óvinnufær um langa
hríð og varanlegur miski er
metinn 45%.
Regluverk
um styrki
Menningarmálarnefhd
Reykjavíkurborgar hefur
samþykkt nýjar reglur um
úthlutanir styrkja. Þegar
umsóknir eru komnar mun
menningarmálanefndin
fela fimm manna fagnefnd
að gera tillögur um hverjir
skulu hljóta starfssamn-
inga, verkefnastyrki, styrki
til almennrar liststarfsemi
og hvaða tónlistarhópur
hljóta nafnbótina Tónlist-
arhópur Reykjavíkur.
Fagnefndin verður valin af
menningarmálanefnd úr 15
manna hópi sem stjórn
Bandalags íslenskra lista-
manna tilnefnir árlega.
Menningarmálanefnd kýs
tvo nýja nefndarmenn úr
hópnum á hverju ári.
Kirkjugarður
til sólu
Miðaldakirkja og
-kirkjugarður íSkotlandi
hafa verið sett í sölu á
eBay-vefhum. Um er að
ræða St.Michaels-kirkjuna
nálægt Biggar í Lanarkshire
og farið er fram á 75.000
pund, eða um 9 milljarða,
fyrir þessa eign. Jafnframt
fylgir með í kaupunum leyfi
frá staðaryfirvöldum til að
breyta kirkjunni í þriggja
herbergja íbúð. Eigandinn
Gavin Wilson setti eignina í
sölu á eBay eftir að hugsan-
legir kaupendur höfðu
gengið af skaftinu þegar
þeir fréttu að kirkjugarður-
inn fylgdi með í kaupun-
urn.
Berjast gegn
barnaklámi
Bamaheill leita
nú víða fanga með
fjárhagsstuðning
fyrir verkefni sitt
„Stöðvum
barnaklám á net-
inu“. TU dæmis
samþykkti bæjarráð
Blönduóss að
styrkja baráttu BarnaheiUa
gegn barnaklámi með um-
beðnum 20 þúsund
krónum. Upphæðin á að
greiðast út á tveimur árum.
II
E
Fellibylurinn Jeanne kemur væntanlega til Flórída í dag. Gyðingar eru í sérstakri
hættu, þar sem nú er Yom Kippur-hátíðin, sem veldur því að þeir hlusta hvorki á
útvarp né horfa á sjónvarp. Jeanne olli dauða meira en 1.100 Haítíbúa, auk þess
sem 1.200 manns er saknað. Jeb Bush, ríkisstjóri Flórída, hvetur fólk til að taka
aðvörunum um Jeanne alvarlega. Litið hefur dregið úr styrk fellibylsins.
Fellibylurinn Jeanne
með Flórída í sintinu
Fellibylurinn Jeanne skildi eftir sig meir en 1.100 látna á Haítí
auk þess að um 1.200 er saknað. Á föstudag fór Jeanne framhjá
Bahamaeyjum með stefnuna á Flórída.
Talið er að fellibylurinn nái upp
að strönd Flórída í dag, laugardag.
Lítið hefur dregið úr styrk leanne og
raunar sýna mælingar að styrkurinn
er að færast í aukana. Yfirvöld í Flór-
ída hafa gefið út aðvaranir vegna
fellibylsins. Jeb Bush ríkisstjóri í
Flórída hvetur fólk til að taka aðvar-
anirnar alvarlega.
í umfjöllun CNN um Jeanne
kemur m.a. fram að ofsastormur
umljúki miðju fellibylsins í allt að 75
km radíus og minni stormar í allt að
160 km frá miðjunni. Fellibyljamið-
stöðin í Flórída hefur lýst yfir hættu-
ástandi meðfram megninu af suð-
urströnd fylkisins eða frá Flór-
ídaborg suður af Miami og til St.
Augustine.
Jeanne kemur í kjölfar fellibylj-
anna Charley, Francis og Ivans sem
skollið hafa á Flórída undanfarnar
vikur.
Áhyggjur vegna Yom Kippur
Þeir sem fylgjast með Jeanne og
gefa út aðvaranir hafa sérstakar
áhyggjur af því að helgin nú er Yom
Kippur, einn aðalhelgidagur gyð-
inga. Það þýðir að frá sólarlagi á
föstudegi til sólarlags á laugardegi
munu gyðingar ekki hlusta á út-
varp né horfa á sjónvarp og munu
því hugsanlega ekki fá aðvaranir í
tíma.
Ríkisstjórinn Jeb Bush hvetur
fólk til að hýsa nágranna sína þegar
þeir neyðast til að flýja strandsvæð-
„Það sem gerir stöð-
una erfiðari en ella er
að mikið afhótel-
plássi er upptekið af
björgunarfólki."
in lengra inn í landið. „Við erum
þreytt og bjargráð okkar eru tak-
mörkuð," segir Jeb Bush. „Það sem
gerir stöðuna erfiðari en ella er að
mikið af hótelplássi er upptekið af
björgunarfólki."
Neyðarástand á Haítí
Neyðarástand ríkir nú á Haítí og
björgunarfólk frá alþjóðlegum
hjálparsamtökum varð fyrir aðkasti
hungraðs og örvæntingarfulls fólks
er verið var að dreifa mat og hjálp-
argögnum. Margir sögðu að þeir
hefðu hvorki fengið vott né þurrt
síðan um síðustu helgi er Jeanne
skall á landinu.
Um 250.000 manns eru nú
heimilislaus í borginni Gonaives og
nærliggjandi sveitum og hafa
hvergi haft höfði að halla síðustu
sex daga. Fjöldagrafir eru grafnar
undir líkin og þau jörðuð, bæði fólk
og skepnur. Talið er að töluverðui^
tími muni líða áður en daglegt líf
Haítíbúa á þessum slóðum kemst
aftur á.
Flugleiðir flýta flugi
í gærkvöld tilkynntu Flugleiðir
að flugi frá Orlando í Flórída yrði
flýtt vegna yfírvofandi komu
Jeanne. Brottför, sem átti að vera
klukkan 7 að kvöldi, átti í staðinn að
verða 10 að morgni. Nokkur fjöldi
íslenskra ferðamanna dvelst að
jafnaði í Flórída.
Stúlka myndaði Ástþór Magnússon
Ástþór trompaðist
og braut myndavél
„Þeir sem reyna að taka
myndir af mér mega búast
við þessu,“ segir forseta-
frambjóðandinn Ástþór
Magnússon Wiium sem var
hent út af Glaumbar á
fimmtudagskvöld þegar
hann veittist að stúlku sem
vildi taka mynd af honum.
Ástþór stendur nú í her-
ferð gegn ljósmyndurum
sem mynda á almannafæri.
Herferðin gengur út á að
Ástþór hefur sjálfur gerst
ljósmyndari og hefur hann
myndað inn um glugga á fjölmiðlum
og inn um glugga á heimilum fjöl-
miðlamanna.
„Nei, mér finnst þetta ekkert of
harkaleg viðbrögð," segir Ástþór um
atvikið á Glaumbar. Ástþór
mun vera fastakúnni á barn-
um og skemmti sér þar á
fimmtudagskvöld. Undir lok
kvöldsins sauð hins vegar
upp úr þegar ung stúlka
reyndi að ná mynd af Ástþóri
með stafrænni myndavél.
Sjónvarvottar segja Ástþór
hafa misst stjórn á sér, veist
að ljósmyndaranum og brot-
ið myndavélina á barborð-
inu.
Ljósmyndarar sem DV
ræddi við segja vélin allt að
200.000 króna virði.
„Það á að vera bannað að pappa-
rassa fólk hér á landi," segir Ástþór.
„Maður verður víst bara að láta
reyna á lögin."
Ástþór Magnús-
son með mynda-
vélina Nýjasti
papparass Islands.
Nýleg könnun OECD um eftirlaunaaldur
Aldraðir mun lengur
ívinnuáíslandi
Samkvæmt nýlegri könnun
OECD eru aldraðir mun lengur í
vinnu á íslandi en gengur og gerist í
hinum aðildarríkjum samtakanna.
Hér á landi er meðalaldur fólks sem
fer á eftirlaun á bilinu 66-68 ára.
Víða erlendis er aldurinn um og
undir 60 ára og jafnvel allt niður í 50
ár.
Greint er frá þessu í vefriti fjár-
málaráðuneytisins. Könnun OECD
kemur í framhaldi umræðu sem hef-
ur verið fyrirferðarmikil á alþjóða-
vettvangi um að sífellt auknar lífslík-
ur í heiminum setji þrýsting á lífeyr-
iskerfm. Hérlendis er þó sú staða tal-
in góð þar sem fjármögnun lífeyris-
kerfisins er víðast byggð á gegnum-
streymiskerfum þ.e. að mæta
Aldraðir Á Islandi er þátttaka eldri karl-
manna i atvinnulífinu sú langmesta i heim-
inum.
útgjaldaþörf hins opinbera á hverju
ári með fjármögnun hverju sinni.
Þá kemur fram hjá OECD að á
íslandi er þátttaka eldri karlmanna,
55-66 ára, sú langmesta í heiminum
og endurspeglar það sterka stöðu»
íslands í þessu samhengi.