Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1931, Side 5
ITöðnrsyjatliixii konungs:
1. Pgri Amalía Karólína Karlotta Anna, fædd 29. sept. 1853, gift
21. dez. 1878 Ernst Agúst Vilhjálmi Adólfi Georg Friðreki, her-
toga af Kumbralandi og Brúnsvík-Luneborg, f. 21. sept. 1845.
2. Valdimar, fæddur 27. október 1858; honum gift 22. október 1885
María Amalía Franziska Helena, prinzessa af Orléans, f. 11.
jan. 1865, dáin 4. dez. 1909. Börn þeirra: a. Áki (sjá hér á eftir).
b. Axel Kristján Georg, fæddur 12. ágúst 1888; honum gift 22,
mai 1919 Margrét Sofía Lovísa Ingibjörg, prinzessa af Svíþjóð,
f, 25. júni 1899. c. Eiríkur (sjá hjer á eftir) d. Viggó (sjá hér
á eftir). e. Margrét Franziska Lovísa María Helena, fædd 17.
sept. 1895, gift y, júní 1921 Renatus Karli Maríu Jósep, prinzi
af Bourbon-Parma, f. 17. okt. 1894.
Áki Kristján Alexander Róbert, fæddur 10. júní 1887, prinz
og greifl af Rósenborg; honum gift 17. janúar 1914 greifadóttir
Matthildur Colvi dí Bergóló, prinzessa og greifaynja af Rósen-
borg, fædd 17. sept. 1885.
Eiríkur Friðrekur Kristján Alexander, f. 8. nóv. 1890, greifi
af Rósenborg; honum gift 11. febr. 1924 Lois Booth, greifaynja af
Rósenborg, f. 2. ág. 1897.
Viggó Kristján Adólfur Georg, f. 25. dez. 1893, greifi af Rósen-
borg; honum gift 10. júni 1924 Eleanor Margaret Green, greiía-
ynja af Rósenborg, f. 5. nóv. 1895.
Samkvæmt lögum um ákvörðun tímans 16. nóv. 1907 skal hvar-
vetna á íslandi telja eyktir eftir meðalsóltima á 15. lengdarstigi fy»ir
vestan Greenwich. í almanaki þessu eru því allar stundir taldar ejiir
þessum svonefnda íslenzka meðaltima, og eru þær 28 mínútum hærri
en eftir miðtima Reykjavíkur, sem þangað til 1908 hefir verið fylgt í
almanakinu,
Hver dagur er talinn frá því klukkan er 12 að nóttu (miðnætti)
til sömu stundar næstu nótt, svo að þær 12 stundir, sem eru frá
miðnætti til klukkan 12 aö degi (miðdegis), eru táknaðar raeð »f. m.t
(fyrir miðdegi), en hinar 12 frá miðdegi til miðnættis með »e. m.«
(eftir miðdegi).
(3)