Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1931, Side 46
Jan. 10. Goodtemplarareglan á íslandi 45 ára.
— 12. Bæjarstjórnarkosning á tsafirði, Siglufirði og i
Vestmannaeyjum.
— 13.—18. Landskjálftakippir öðru hverju sumstaðar
sunnanlands.
— 14. Brann hús í Hafnarfirði.
— 18. Bæjarstjórnarkosning á Akureyri. — Strandaði
á Meðallandsfjörum þýzkur botnvörpungur, Her-
mann Löns. Mannbjörg varð.
— 20.? Bæjarstjórnarkosning á Seyðisfirði.
í þ. m.(?) byrjaði nýtt tímarit í Rvík, Plógur.
Febr. 1. Ármannsglíman háð í Rvík. Keppendur 13.
Skjöldinn og önnur verðlaun fyrir fegurðarglimu
vann Jörgen Porbergsson, en fyrstu verðlaun fyrir
fegurðarglimu vann Vagn Jóbannsson.
— 4. Búnaðarþing tslands háð i Rvík.
— 15. Alþingí sett. — l9/» kosnir forsetar sömu og
árið áður.
— 28. Lauk kaupdeilu milii sjómanna og útgerðar-
manna í Rvík, um kaup á botnvörpungum, og
hafði deila þessi staðið alllengi.
í þ. m. eldur uppi í vestanverðum Vatnajökli.
Mars 6., aðfn. Strandaði enskur botnvörpungur,
Norse, á skeri við Stafnes. Mannbjörg varð.
— 10. Brann bær á Naustum við Skutulsfjörð, og
varð nálega engum húsmunum bjargað.
— 26. Strandaði við Grimsey vélbátur, Hektor, frá
Siglufirði. Mannbjörg varð.
— 28. Kleppsspítalinn nýi vigður.
í þ. m. köfnuðu 2—3 kýr í reyk á bæ einurn í
Pingeyjarsýslu.
Apríl 4. Strandaði við Akranes vélbátur, Hrönn, frá
ísafirði. Mannbjörg varð.
— 7. Skákþingi íslands lokið, Eggert Gilfer vann 7
töfl af 9 og varð þar með skákmeistari íslands.
— 30. Brann hús I Höfn i Hornafirði, ésamt innan-
hússmunum.
(42)