Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1931, Síða 104
fyrirkomið. Þar matazt fjölskyidan og jafnvel gestum
er boðið þar inn. t Skotlandi er sagt, að sjálfum
lávörðunum sé boðið í eldhúsið, er þeir koma til
þess að vitja eigna sinna og afgjalda.
Grunur minn er það að eldhús til sveita taki á
næstu árum miklura stakkaskiptum. Enda er breyt-
ingin á síðustu 20—30 árum þegar orðin geysimikil,
— frá hlóðareldhúsi án borða og bekkja, yfir í snyrti-
legt herbergi með góðri eldavél, vatnsleiðslu og skólp-
leiðslu og dálitlum skápum. Pó vantar mikið á, að
þau sýni festu, smekk og hagleik, að sárfáum undan-
tekningum. Erlendis má svo að orði kveða, að fyrir-
komulag eldhúsa sé að verða sérstök fræðigrein.
Svo mikið er um það hugsað.
Að endingu vil eg minna á þetta:
Hafið það hugfast að iþyngja ekki jörðunum og
búunum um of með húsaskrokkum, sem litið er með
að gera, en reynið með aðstoð fróðari manna í þeirri
grein að gera húsin traust og vistleg og hentug til
að búa í á sem þjóðlegastan hátt. Takið upp lok-
rekkjurnar aftur. í baðstofunni má koma fyrir einni
til tveimur og i gestastofu, þar sem hún telst nauð-
synleg, einni. Pað má koma þeim fyrir á þann hátt
að herbergjaprýði sé að þeim, bæði í smærri og
stærri herbergjum, og þegar svo stendur á, er hent-
ugt að hafa skáp við gafl lokrekkjunnar, svo að taki
yfir vegginn i herberginu. Með laglega útbúnum lok-
rekkjum verða herbergin stýlfastari, ef vel er á haldið
og reynt að útbúa þær á þjóðlegan hátt. Konurnar
geta lagt til þess drjúgan skerf, hvað tjöld og yfir-
breiðslur snertir, og hagleiksmennirnir smiðað brík-
ur og boga, hver eftir sínum smekk.
Höfuðkostur á lokrekkjunum er sá, að herbergið
getur verið tvennt í senn, stofa og svefnherbergi.
Sparar það húsrúm og um ieið ræsting.
Pað væri fróðlegt að vita, hve mörg herbergi eru
nú til á landinu með lokrekkju. Eg þekki ekki nema
(100)