Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2004, Side 8
8 LAUGARDAGUR I1. DESEMBER 2004
Helgarblað DV
Fréttaslcýring
David Blunkett, fyrrverandi utanríkisráðherra Breta, átti í eldheitu ástarsambandi við
Kimberly Quinn, útgefanda tímaritsins The Spectator og eiginkonu útgefanda breska Vogue-tímaritsins.
Blunkett hefur verið sakaður um að hafa misnotað aðstöðu sína til að liðka til fyrir Quinn með því að
flýta fyrir afgreiðslu landvistarleyfis barnfóstru hennar og leyfa henni að nota lestarmiða þingsins og
einkabílstjóra sinn. Hann hefur sagt af sér í kjölfar málsins.
David Blunkett hefur sagt af sér
sem innanríkisráðherra Bretlands í
kjölfar hneykslis. í ágúst sagði slúð-
urblaðið News of the World ffá
leynilegu ástarsam-
bandi hans við gifta
konu. Innanríkis-
ráðherrann neitaði
að tjá sig um málið
og sagði einkalíf sitt
engin áhrif hafa á
starf sitt í ríkis-
stjórninni. Daginn
eftir birtist fram-
hald á sögunni í
blaðinu The Sun
þar sem hjákonan
var nafngreind. Um
er að ræða vellauð-
ugan útgáfustjóra tímaritsins The
Spectator, Kimberly Quinn. Hún
vildi ekki tjá sig við fjölmiðla og bað
þá vinsamlegast um að láta sig í
friði.
Síðan hefur hver fréttin á fætur
annarri af einkalífi Blunketts birst í
breskum fjölmiðlum og tilgátur um
MeðTony Blair
Forsætisráðherr-
ann stóðþéttvið
bakið á Blunkett í
gegnum alltmáiið.
að eiginmaður Quinn sé óffjór
ganga íjöllum hærra. Blunkett hefur
sjálfur krafist þess að fá úr því skorið
hvort hann sé faðir tveggja ára sonar
Quinn, Williams, og ófædds barns
hennar. Samband Blunketts og
Quinn hófst aðeins þremur mánuð-
um eftir að Quinn giftist milljarða-
mæringnum Stephen Quinn sem er
útgefandi breska Vogue-tímaritsins.
Misnotaði aðstöðu sína
í nóvember var Blunkett sakaður
um að hafa notfært sér áhrif sín til
að flýta fyrir afgreiðslu landvistar-
leyfis filippseyskrar barnfóstru hjá-
konu sinnar. í fyrstu neitaði hann
öllu en hefur nú sagt af sér vegna
málsins. Samkvæmt vinum Quinn,
sem er 44 ára, er hún ánægð með af-
sögnina en hún hefur þurft að eyða
síðustu dögum á sjúkrahúsi vegna
álagsins í kjölfars málsins. Útlit er
fyrir að Blunkett hafi átt hlut að máli
í óeðlilega hraðri meðferð landvist-
arleyfisins eftir að tölvupóstur upp-
götvaðist þar sem Blunkett fær að
vita að leyfinu „verði flýtt án
nokkura greiða".
„Ég veit ekkert um þetta mál og
hef ekki gert neitt rangt,“ sagði
Blunkett í byrjun en bætti við að efa-
semdir um heiðarleika hans hefðu
þegar skemmt fyrir á þinginu. „Ég
hefði aldrei viljað að eirikalíf mitt
yrði gert opinberlegt. Ég er ekki reið-
ur en ég er mjög sár og vil að fólk viti
að ég hef ávallt reynt að gera mitt
besta fyrir þjóðina," sagði Blunkett I
hjartnæmu viðtali við BBC.
Barnfóstran hafði fengið að vita
að leyfið gæti tekið um það bil ár I
Blunkett og Quinn Kimberly hefur þurft að
eyða slðustu dögum á sjúkrahúsi vegna álags-
ins I kjölfar málsins, enhúná von á sér I febrú-
ar. Hún er útgefandi tímaritsins The Spectator
og gift útgefanda breska Vogue.
undirbúningi. Tæpum þremur vik-
um síðar var leyfið gengið í gegn.
Hún veitti The Daily Mail viðtal þar
sem hún viðurkenndi að yfirmaður
sinn, frú Quinn, hefði sagst þekkja
háttsetta menn sem gætu togað I
spotta og reddað málunum. Eigin-
maður Quinn hefur staðið upp til
varnar sinni ótrúu eiginkonunni.
„Hún er langt því frá að vera mesti
syndgari landsins og ég vona að fjöl-
miðlar muni nú láta hana í friði.“
Blunkett er einnig sakaður um að
hafa misnotað aðstöðu sína með því
að gefa Quinn tvo lestarmiða sem
hann fékk í vinnunni og að hafa
lánað henni einkabílstjóra sinn til að
skutía henni og syninum heim til
hans. Talsmaður Blunketts segir
hann hafa greitt fyrir lestarmiðana
eftir að hafa kynnt sér reglurnar bet-
Teppið á myndinni er Mohair
200 x 300, verð kr. 168.000
MJUKUR
PAKKI
Nýjar sendingar
og mikið úrval af teppum
i borðstofustærð 200 x 300
verð frá
kr. 25.000 - 380.000.
TEPPAGALLERI
Bæjarlind 16, Sími: 568 6999
OPIÐ
MÁN-FÖS: kl.10
LAU: kl. 11 -
SUN: kl. 1 3 -
ur. „Hann viðurkennir að hafa gert
klaufaleg mistök, beðist afsökunar
og greitt fyrir skuldina."
Atvinnulaus í ástarsorg
Samkvæmt slúðurblöðunum fór
samband hans og Quinn í hundana
eftir því sem áhugi fjölmiðla jókst.
Blunkett kollféll fyrir henni I byrjun
og sætti sig ekki við að þriggja ára
sambandi þeirra sé lokið. Þar segir
að Quinn sé þegar farin að reyna að
byggja upp hjónabandið sitt.
„Þegar ástarsamband þeirra var
gert opinbert fór allt að ganga á aft-
urfótunum. Hún vildi losna úr sam-
bandinu en hann lét hana ekki í
friði, var alltaf hringjandi í hana
langt fram eftir nóttu og spilaði há-
væra tónlist í símann," sagði heim-
ildamaður eins blaðsins. „Nú hefur
hann krafist DNA-rannsóknar til að
fá að vita hvort Williams sé sonur
hans.“ Annar félagi hans segir
bömin það eina sem skipti
Blunkett máli á þessari
stundu. „Hann vill að þau
vití að hann hafi fórnað
glæstum ferli sínum
fyrir þau."
ákvörðunina um að segja upp starfi
sínu sem innanríkisráðherra lands-
ins hafi verið þá erfiðustu sem hann
hafi tekið á ferlinum og síðustu þrjár
vikur hafi verið þær verstu í lífi hans.
Hann segist enn ffernur ekki muna
eftir að hafa blandað sér í málið um
landvistarleyfið en ætli ekki að fela
sig á bak við ríkisstarfsmenn heldur
axla ábyrgð og segja af sér.
„Ég varð afar ástfanginn en kon-
an vildi ekki gera samband okkar
opinbert. Þegar fjölmiðlar fóm að
fjalla um sambandið fór að halla
undan fætí hjá okkur. Ég hef reynt
allt síðustu þrjú árin til að halda í
hana en ég hef aldrei og mun aldrei
að ræða opinberlega um samband
okkar."
Hefur lítið gert
fyrir fatlaða kjós
endur sína
Blunkett hefur verið
afar umdeildur stjórn-
málamaður í gegnum
tíðina og þrátt fyrir að
vera blindur hefur hann
ekki meirihluta stuðn-
ings síns frá fötluðum
kjósendum, enda telja
þeir hann hafa gert lítið
fyrir sig. Hann hefur náð
lengst allra blindra manna
en framkoma hans er það
afslöppuð að flestir
gleyma fötlun hans. Sjálfur
hefur hann skilgreint fötí-
unina sem „óheppilega".
Hann hefur verið dáður
fyrir að hafa slitið sig frá fá-
tækri fjölskyldu yfir í eitt erf-
iðasta starf landins. Hjálpar-
hundurinn Lucy hafði fylgt
honum hvert skref í áratug en
eftir að hafa ælt í púlt þingsins
var henni skipt út fyrir hálfsyst-
ur sína, Sadie.
Blunkett
segir
Oavid Blunkett Fyrrverandi
innanrikisraðherran, sem er
blindur, segir ákvörðunina um
að segja afsér hafa verið þá
erfiðustu sem hann hafi tekið.
Hann sagði enn fremur að sið-
ustu þrjar vikur hafi verið þær
erfiðustu i lifi sinu.