Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2004, Blaðsíða 28
i
28 LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004
Helgarblað DV
Ýmislegt bendir til þess að þessi jólabókajól verði meiri og betri en nokkru sinni. Jakob Bjarnar Grét-
arsson leitaði til nokkurra í útgáfubransanum sem eru eldri en tvævetur, fólk sem kann að spá í spilin
og veit hvað klukkan slær. Spurningin er: hver selur mest?
Spennan á jólabókamarkaðnum
er að nálgast hámark. Fljótlega tekur
við fár og svo doði. Þetta er ekki
lengur í höndum útgefenda og höf-
unda. Nú tekur markaðurinn við og
þeir sem eru í miðju stormsins geta
fátt annað gert en fylgst með. Eink-
um og sér í lagi eru það sölutölurnar
sem menn horfa nú spenntir á. Þær
skipta öllu máli. Eða næstum því
öllu máli og skilja á milli feigs og
ófeigs í þessum harða bransa.
Ymislegt telst til tíðinda þegar
þessir spádómar eru skoðaðir. Und-
antekningarlaust spá sérfræðingar
blaðsins Arnaldi metsölu. Nái hann
yfir 20 þúsunda múrinn má sannar-
lega tala um metsölu í orðsins fyllstu
merkingu. Þetta kemur ef til vill ekki
svo á óvart, Arnaldur hefur notið
ómældra vinsælda hér á landi sem
víðar. Hitt kemur ef til vill meira á
óvart að Ólafur Jóhann Ólafsson
virðist ekki lengur geta gengið að
metsölu sem vísri. Hvað svo sem
veldur því. Barnabækur og spennu-
bækur mega vel við una verði þessi
niðurstaðan sem menn spá hér um.
En ævisögur eru vart sjáanlegar. Það
má einnig heita einkenni þessara
bókajóla. Þær kenningar hafa verið
settar fram varðandi ævisögurnar að
þar gangi á með tíu ára sveiflum og
við getum þá beðið í um fimm ár og
þá fara þær að koma fram á nýjan
leik.
Ákaflega mjótt á munum
Kristján B. Jónasson þróunar-
stjóri Eddu segist ekki treysta sér til
þess að setja fram nema topp 4 lista
því svo mjótt verði á munum þegar
lengra er komið niður sölulista. En
hann þykist nokkuð viss um þessi
fjögur efstu sæti.
„Heimsmetabókin er í rosasölu
en því miður seljast bara 5000 eintök
af henni, meira kom einfaldlega ekki
úr erlendri prentsmiðju og hún hef-
ur verið uppseld hjá okkur núna í
nærri viku. Hún yrði þarna í 4-5 sæti
að öðrum kosti."
Hitt er erfiðara um að spá. Englar
og djöflar eru vissulega sterkir. „Ar-
abíukonur, Bítlaávarp, Sakleysingj-
ar, Dauðans óvissi, Barónn, Fíasól,
og Karítas, HKL og nú koma reyndar
fslendingar ansi sterkir þarna inn í
þessari viku, Heilagur sannleikur.
Allar þessar bækur verða yfir 5.000
eða á bilinu 5-8.000 eintök. íslend-
ingar (það er á íslensku) fer fyrir víst
í 7.000 eintökum og svo fara önnur
4.000 eintök á ensku, þannig að
heildarfjöldi bókarinnar er á við
mestu toppsölubækumar. Þess má
einnig geta að Lost in Iceland á
ensku, frönsku, þýsku og íslensku
seldist í 10.000 eintökum í ár, þannig
að þær em víða metsölubækurnar."
Aðrar bækur segir Kristján ekki
eiga séns í þessa baráttu, en þetta
verður mikil barátta á síðustu metr-
unum um einstök sæti og oft er ákaf-
lega mjótt á mununum. Og 5. sætið
verður að liggja milli hluta.
„Eins og málin hafa þróast und-
anfama daga treysti ég mér eigin-
lega alis ekki til þess. Þetta verður
hárnákvæmt jafiivægi. En ýmislegt
er athyglisvert, til dæmis hve barna-
bækur seljast í miklum upplögum.
Bæði Guðrún Helgadóttir og Kristín
Helga em að seljast miklu betur en í
meðalári og Nyíon, Djúpríkið, Egla,
Benedikt búálfur og fleiri slíkar em
að fara mjög vel, yfir 3000 eintök."
Spennubækur upp á pall-
borðið
„Mín tilfinning er sú að þetta eigi
eftir að verða fín bókajól og að ein-
hver aukning verði í bóksölu milli
ára í heildina," segir Egill Örn Jó-
hannsson hjá JPV útgáfu sem árum
saman hefur staðið í þessum látum
sem fylgja bóksölu um jól. Hann er
enda fæddur í þennan hasar en fað-
ir hans er sjálftir Jóhann Páll Valdi-
marsson sem sjálfur fékk útgáfuá-
stríðuna í arf.
„Þegar fór af stað í haust var strax
ljóst að út væru að koma fleiri bæk-
ur en áður og í raun allt of margar.
„Hér er metsöluhug-
takið notað í eigin-
iegri merkingu. Hvað
þýðir það í krónum og
aurum?"
Salan fyrir jólin hefur hins vegar ver-
ið virkilega fi'n og margar bækur í
mjög góðri sölu það sem af er sem
sést m.a. á metsölulistum sem hafa
verið mjög ólflcir milli vikna. Hvað
veldur þessari auknu bóksölu er
erfitt að segja, en víst er að mikil
aukning í kiljusölu á síðustu árum
hefur án efa jákvæð áhrif á bóksölu
fyrir jól. Spennubækur virðast eiga
upp á pallborðið í ár, og virðast fleiri
spennubækur gefhar út í ár en
áður.“
Egill gantast með það að sinn
topp fimm Usti dragi að einhverju
leyti dám af því hvaða bækur hann
er að gefa út, grínast með að hann
setji sig ekki úr færi að koma sínum
titlum á framfæri. En hans spá er
reyndar ekki í miklu frábrugðin
Kristjáns. Og þeir tveir vita um hvað
þeir eru að tala. Egill Örn segir eng-
an komast með tærnar þar sem Arn-
aldur Indriðason hefur hælana. Sig-
umdur Ernir er drjúgur að sögn Egils
Arnar sem og Þráinn sem er með
eina athyglisverðustu bók ársins.
Sigmundur Ernir og Þráinn eru báð-
ir á mála hjá JPV. „Og Útkallið - Týr,
þetta selst vel á hverju ári að því er
virðist óháð efni."
Bókaþjóðin ekki goðsögn ein
„Það er enginn spurnig um það
að bóksala er töluvert meiri í ár en í
fyrra," segir ívar Gissurarson hjá
bókaútgáfunni Skruddu.
„Og það sem gleður okkur hjá
Skruddu er að hjá okkur seljast allir
titlar vel sem er að mínu mati algjört
lykilatriði. Og þá er það einnig
gleðiefni, ef rétt reynist, að aukning
í bóksölu virðist ívið meiri en í
annarri vöru. Þetta með bókaþjóð-
ina er þá kannski ekki bara goð-
sögnin ein. Við erum þegar búnir að
endurprenta bækur þrátt fyrir að
hafa í upphafi tekið ákvörðun um
að leggja í drjúga fyrstu prentun. Á
þessari stundu er það ljóst að tveir
titlar munu seljast upp fyrir jól þar
sem úr þessu gefst ekki tækifæri til
frekari prentunar."
ívar er sem sagt harla kátur og
það vafðist ekki fyrir honum að setja
ffam sinn topp fimm lista, sína spá.
Þar á eftir segir ívar koma: „Heilagur
sannleikin, Dauðans óvissi tími og
Baróninn."
Skrumið kæfir sjálfstæða
hugsun
„Orðalagið „ástand og horfur"
kallar alltaf á ákveðnar stellingar
sem eru mér ekki mjög tamar," segir
Hildur Hermóðsdóttir hjá forlaginu
Sölku - bókaforlag sem hefur vakið
mikla athygli, en þar hafa einkum
verið gefnar út bækur eftir konur.
Það er því kannski ekki úr vegi að
Hildur komi fram með annað sjón-
arhorn en hinir bröttu karlmenn
sem hér er rætt við.
„En eins og í öðrum geirum sam-
félagsins finnst mér markaðslög-
málin orðin of ráðandi í bókaútgáfu.
Sölumennskan er númer eitt, aug-
lýsingaflóðið og skrumið kæfa sjálf-
stæða hugsun svo kaupendur fá
varla svigrúm til að velja sjálfir. Þess
vegna er að skapast ákveðin hætta á
því að gæði, sköpunarkraftur og
frumleiki verði víkjandi í bók-
menntaheiminum - rithöfundar
verða jú að lifa eins og aðrir og þurfa
að dansa með."
Hildur segir Sölku eiga glæsileg
verk á sínum útgáfulista þetta árið.
„Verk sem hlotið hafa fullt hús stiga
hjá gagnrýnendum en ekki ratað á
metsölulista. Ég er afar stolt af mín-
um höfundum en tek ekki stóra
áhættu í auglýsingamennskunni. Ég
hef samt þá trú að góðar bækur rati
til sinna og finnst allt stefna í gleði-
leg bókajól."
Topplisti Hildar
„Metsölulistinn verður sjálfsagt á
svipuðum nótum og hann er í dag,"
segir Hildur en vill ekki leggja fram
lista. „Kleifarvatn í fyrsta sæti með
15-20 þúsund eintök, Sakleysin-
gjarnir, Baróninn, Belladona skjahð,
Árabíukonur, Karítas, Samkvæmis-
leikir og Heimsmetabókin raða sér
svo á eftir, ég þori ekki að nefria fleiri
tölur, en söluhæsta bók ársins verð-
ur vafalaust Da Vinci lykillinn, ég
spái honum 25.000 eintökum."
Hlutur höfunda 23 prósent
„Money talks - bullshit walks"
segir Kaninn alveg burtséð frá því
hvað Hildur Hermóðsdóttir segir um
hinn víkjandi sköpunarkraft, gæði og
frumleika í auglýsingaflóði og sölu-
mennsku. Það liggur fyrir hér að
menn ætla Amaldi Indriðasyni met-
sölu. Og hér er metsöluhugtakið not-
að í eiginlegri merkingu. Hvað þýðir
það í krónum og aurum? Jú, sam-
kvæmt heimildum DV kostar bókin
4,680 sem er leiðbeinandi útsölu-
verð. Af því er tekinn virðisaukaskatt-
ur og áætlað að meðalafsláttur Eddu
til viðskiptavina sinna sé 35%. Hlutur
höfundar í því sem inn kemur í ljósi
þess er 23% sé miðað við samning rit-
höfundasambandsins við útgefend-
ur. Það margfaldað með 20 þúsund
þýðir að hlutur Arnaldar í öllu þessu
séu rúmar 12 milljónir. Sannarlega á
Arnaldur allt gott skilið og á sannar-
lega inni fyrir þessari velgengni.
Þumalputtareglan er sú að um 3
til 4 þúsund bóka ná því sem útgef-
endur kalla metsölu - þetta hlutfall
getur farið hátt í 30 prósént. Hins
vegar minnkar þetta hlutfall ef
„bestsellerar" eru annars vegar. Nú
geta lesendur dundað sér við það að
reikna út hlut þeirra höfunda sem
hér eru nefndir tfl sögunnar af kunn-
áttusömum útgefendum, viðmæl-
endum blaðsins. jakob@dv.is
.....—
Jólabókaflóðið Nú erspennan fhámarki
og persónur og leikendur, þeir sem eru í
auga stormsins, geta fátt annað en hallað
sér aftur og fylgst með sölutölum.