Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2004, Síða 49
PV Helgarblað
LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004 49
Scott Peterson myrti eiginkonu sína og ófæddan son til að geta verið með hjákonunni
Konumorðingi dæmdurtil dauða
Sölumaður sem myrti ófríska
eiginkonu sína og varpaði líki
hennar í San Francisco-flóann hef-
ur verið dæmdur til dauða. Kvið-
dómur í Bandaríkjunum var ein-
róma £ þeirri afstöðu sinni að Scott
Peterson, 32 ára, skyldi dæmdur til
dauða fyrir að myrða Laci, eigin-
konu sína, og Connor, ófæddan
son þeirra. Laci hvarf að kvöldi
jóladags árið 2002. Dómari hefur
tekið sér frest til 25. febrúar til að
ákveða hvort hann fari að ráðum
kviðdóms eða létti refsinguna í lífs-
tíðarfangelsi.
Fögnuður Fjöldimanns var samankominn
fyrir utan dómshúsiö og fagnaöi ákaft þegar
tilkynnt var aö Scott Peterson skytdi sæta
dauðarefsingu fyrirglæp sinn.
Hundruð manna söfnuðust
saman fyrir utan dómshúsið í Kali-
fomíuríki þegar úrskurðurinn var
kveðinn upp. Fögnuður braust út
þegar tíðindin vom kunngjörð.
Peterson-réttarhöldin vom á
allra vörum í Bandarlkjunum enda
minntu þau um margt á Holly-
wood-kvikmynd. Tvöfalt morð, lflci
kastað í sjó úr árabát að kvöldi jóla-
dags, ástarþríhyrningur glæsilegs
fólks. Enda var sjónvarpsmynd um
málið sýnd um öll Bandaríkin fyrir
nokkmm mánuðum.
Saksóknarar héldu því fram að
Peterson hefði kæft 27 ára eigin-
konu sína til þess að geta verið með
hjákonu sinni, ljóshærðum hvarf, ekki langt frá þeim stað sem
nuddara. Lfld Laci skolaði á land Peterson hafði ýtt bát úr vör til að
ijórum mánuðum eftir að hún veiða skömmu eftir hvarf hennar.
Tveir handteknir
vegna morðsá
fjármálamanni
Tveir menn hafa verið handteknir f
tengslum við morðið á vel stæðum
fjármálamanni í Lundúnum.John
Monckton var stunginn til bana á
glæsilegu heimili sfnu í Chelsea-
hverfmu í Lundúnum í lok nóvem-
ber. Hann var 49 ára. Eiginkona
hans var sömuleiðis stungin en lifði
árásina af.
Hún liggur
þó enn á
spítala. Níu
ára dóttir
hjónanna
kom að
þeim eftir
árásina sem
talin er hafa verið framin eftir mis-
heppnað innbrot. Lögregla leitar
tveggja ungra manna sem komust
inn í húsið um aðalinnganginn.
Talið er líklegt að annar mannanna
hafí þóst vera póstmaður til að
komast inn. Annar þeirra gæti hafa
slasast í árásinni þar sem blóðslóð
lá frá húsinu eftirhann. Mennirnir
tveir sem handteknir voru í byrjun
vikunnar eru í haldi lögreglu og
hafa verið yfírheyrðir en ekkert hefur
verið gefíð upp um yfírheyrslurnar.
Áður hafði maður á fertugsaidri
verið handtekinn vegna málsins en
honum hefur verið sleppt gegn
tryggingu.
Fjöldamorðingi
gengurí
hjónaband
Yorkshire-fjöldamorðinginn í Bret-
landi mun að sögn kvænast á næst-
unni i fangelsi. Peter Sutcliffe hefur
beðið hinnar
54ára
ömmu Pam
Mills, en hún
hefur verið
fastagestur
hjá honum í
fangeisinu
að undan-
förnu eftir
að hafa verið pennavinur hans síð-
ustu 13 árin. Sutcliffe afplánar lífs-
tíðardóm fyrirmorð á 13 konum.
Frú Mills mun hafa farið fram á það
við morðingjann að hann sýndi til-
fínningar sínar til hennar í verki.
Undanfarið hefur hún gengið um
með trúlofunarhring og talið er að
parið muni ganga í það heilaga i
kapellu á Broadmoor-spítaianum
þar sem Sutcliffe afplánar dóm sinn.
„Sutcliffe er sannfærður um að hann
muni einn daginn losna úr fangelsi,
hann talar alltaf um það þegar
hann losni en ekki en,"sagði heim-
ildarmaður við The Sun. Morðinginn
Sutcliffe hefursetið inni í Broad-
moorfrá 1984.Eiginkona hans,
Sonia, skildi við hann fyrir tíu árum.
Hann var sakfelldur fyrir morðá 13
konum og morðtilraunir á öðrum
sjö. Flest fórnarlamba hans voru
vændiskonur oghann réðst á þær
með hamra, hnífa og skrúfjárn að
vopni.
I
* ‘1^4. ' SX'• i
UsÉMS.
South fáeach
matarœöið
iíUKQN'
Mikið úrval erlendra bóka á góðu verði
Lækjargata 2a sími 511-5001 opið 10-22 alla daga
BOK MEÐ BOK
Á meðan birgðir endast.
Allt að % afs
'ÍTaU-DÓR \ .\XNLSS jjr
H
•s