Freyr - 01.05.2003, Blaðsíða 4
Tilraun með mjólkurduft
fyrlr smákálfa
jólkursamlag Hún-
vetninga (MH) hefur
um áratuga skeið
framleitt kálfafóður fyrir
mjólkurkálfa. Uppistaða fóð-
ursins er undanrennuduft, sem
blandað hefur verið tólg, víta-
mínum og steinefnum.
Kálfar þrífast ágætlega á fóðr-
inu, en það hefur þann galla að
vera ekki nægilega auðleyst íyrir
túttufötur eða sjálfvirkar kálfa-
fóstrur, sem nú eru að ryðja sér til
rúms. Að frumkvæði MH gerði
RALA uppskrift að tveimur nýj-
um mjólkurduftsblöndum. Þessar
blöndur voru síðan prófaðar á til-
raunastöðinni á Möðruvöllum
veturinn 2001-2002 og einnig hjá
þremur kúabændum sem nota
sjálfvirkar kálfafóstrur. Markmið
tilraunarinnar var að meta þrif,
vöxt og át smákálfa, sem fóðraðir
eru á þessum nýju mjólkurdufts-
blöndum, og einnig að meta
leysanleika þeirra í sjálfvirkum
kálfafóstrum og túttufötum.
Efni og aðferðir
Mat á leysanleika duftsins
Leysanleiki duftsins í túttu-
fötum var metinn á Möðruvöllum.
Leysanleiki duftsins í sjálfvirkum
kálfafóstrum var einnig metinn í
Holtsseli, Eyjafjarðarsveit, á Þor-
valdseyri undir Eyjafjöllum og á
Höskuldsstöðum í Vindhælis-
hreppi og þar höfðu bændumir
samanburð við innflutt kálfafóður,
LACTAL 51, sem hefur háan
leysanleika.
Tilraimaskipulag
Gerðar vom tvær blöndur með
undanrennudufti og mjólkurfítu
eingöngu annars vegar (A) og
með undanrennudufti, mjólkurfitu
og jurtafítu hins vegar (B). í fram-
haldinu var síðan gerð tilraun þar
sem þessar blöndur voru gefnar
Jóhanncs Sveinbjörnsson,
Rannsókna-
stofnun
land-
búnaðarins
smákálfum og þeir bomir saman
við kálfa sem fengu ferskmjólk
(C). Alls vom 12 kálfar úr Möðm-
vallafjósinu í tilrauninni, sex af
hvoru kyni og sex undan
fyrstakálfskvígum. Kálfúnum var
skipt jafnt á tilraunaliðina;
mjólkurduft A, mjólkurduft B eða
ferskmjólk C. I hverjum tilrauna-
lið vom því fjórir kálfar, tveir af
hvom kyni.
Skipulag foðrunar
Fyrstu 4 dagana eftir fæðingu
fengu allir kálfamir broddmjólk,
3^4 lítra á dag. Kálfamir voru
einstaklingsfóðraðir í kálfaboxum
fyrstu 44-58 dagana, en eftir það í
kálfastíum, 3-5 saman. Mjólkur-
skeiðið allt varaði í 84 daga.
Kálfamir fengu allir sama magn
orku í mjólk eða mjólkurdufti við
sama þurrefni, eða 69 FEm alls.
Miðað var við 1,85 FEm/kg þe. og
13% þurrefni í ferskmjólk.
Mjólkurduftið (bæði A og B)
reiknast vera með 1,54 FEm í kg
14 - Freyr 4/2003