Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.2003, Blaðsíða 31

Freyr - 01.05.2003, Blaðsíða 31
Tafla 1. Naut sem standa efst í kynbótamati fyrir endingu Nafn Númer Einkunn Faðir Nr. föður Þráður 86013 129 Drangur 78012 Rauður 82025 125 Bróðir 75001 Jóki 82008 121 Bróðir 75001 Erró 89026 119 Rauður 82025 Stjóri 85045 119 Forkur 76010 Hafur 90026 118 Jóki 82008 Dálkur 80014 117 Brúskur 72007 Almar 90019 117 Rauður 82025 Óli 88002 115 Dálkur 80014 Holti 88017 114 Dálkur 80014 Uggi 88004 114 Dálkur 80014 Sorti 90007 113 Kópur 82001 Magni 81005 113 Skúti 73010 Flekkur 87013 113 Gegnir 79018 Gnúpur 90018 112 Rauður 82025 Dreki 81010 112 Skúti 73010 Hólmur 81018 112 Rex 73016 Baldi 88003 112 Bæsi 80019 Andvari 87014 111 Bauti 79009 Haki 88021 111 Dálkur 80014 svipað eða í kringum 0,10. Af- urðaeiginleikar eins og mjólkur- magn og próteinhlutfall hafa hins vegar talsvert hærra arfgengi, eða 0,20 á mjólkurmagninu og 0,35 á próteinhlutfallinu. Þess ber þó að geta að arfgengi á mjólkurmagni er ívið lægra hér á landi en í ná- lægum löndum. I töflu 1 gefur að líta lista með þeim 20 nautum sem standa efst í kynbótamati fyrir endingu og hafa öryggi á kynbótaeinkunn yfir 80%. Þeirra efstur er Þráður 86013 með 129 í einkunn, hann gaf af sér fremur litlar kýr með rétta yfirlínu og sæmilega djúpan bol. Júgur voru reglulega löguð og vel borin og spenagerð í betra lagi. Dætur Þráðar fengu lofs- verða umsögn um mjaltir og júg- urhreysti þeirra var góð, afkasta- geta í rúmu meðallagi og prótein- hlutfall fremur hátt. Þráður var á sínum tíma notaður sem nautsfað- ir, foreldrar hans voru Drangur 78012 og Frigg 844 frá Stóra-Ár- móti í Hraungerðishreppi, sú var undan Lýtingi 77012. Rauður 82025 stendur einnig ofarlega í mati með 125, hann gaf kýr með sæmilega jafna yfirlínu, ekki sérlega stórar en þó með mikið bolrými, malir oftast þak- laga og aðeins afturdregnar. Júgur voru rýmisgóð og vel borin, spen- ar vel settir en oft keilulaga. Dæt- ur Rauðs voru í rúmu meðallagi mjólkurlagnar, mjaltir góðar og júgurhreysti með ágætum. Hann var einnig notaður sem nautsfaðir. Um nýjasta árgang nautanna, sem afkvæmadæmdur var núna í mars og fæddur var árið 1996, er það að segja að í heild virðist hann ætla að koma vel út fyrir þennan eiginleika. Þess ber þó að geta að arfgengi endingar er ein- ungis 10% og fjöldi dætra undan hverju nauti, sem búið er að fella, er fremur lítill, eða á bilinu 7-32. Þannig er öryggi einkunnanna enn sem komið er fremur lágt, eða á bilinu 39-67%. Það verður því að teljast líklegt að þessar einkunnir muni taka nokkrum breytingum þegar fram líða stundir og auknar upplýsingar fást. Það liggur þó í hlutarins eðli að eftir því sem nautin eru slakari m.t.t. þessa eig- inleika, því öruggari er dómurinn um þau. Nánari upplýsinga má sjá í töflu 2. Erfitt er að gera sér nákvæm- Tafla 2. Endingareinkunnir nauta sem fædd voru 1996 Nafn Númer Einkunn Öryggi Faðir Nr. föður Glói 96001 101 55% Daði 87003 Grani 96002 93 67% Svelgur 88001 Peli 96004 118 49% Svelgur 88001 Trefill** 96006 108 65% Holti 88017 Prakkari* 96007 112 43% Holti 88017 Lax 96009 110 53% Andvari 87014 íri 96010 108 58% Holti 88017 Týr 96012 107 54% Svelgur 88001 Núpur** 96013 104 62% Svelgur 88001 Móri 96014 109 53% Svelgur 88001 Kalli** 96015 110 54% Holti 88017 Úi** 96016 117 41% Holti 88017 Narfi 96017 106 55% Svelgur 88001 Lundi 96019 110 53% Tónn 88006 Höttur 96020 102 57% Svelgur 88001 Dúri** 96023 112 45% Holti 88017 Hrani 96024 114 39% Holti 88017 Hófur* 96027 119 41% Þráður 86013 Fróði* 96028 107 47% Óli 88002 Randi 96031 113 41% Svelgur 88001 Hvítinqur* 96032 108 54% Óli 88002 *=nautsfaðir **=kýrfaðir Freyr 4/2003 - 31 |
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.