Freyr - 01.05.2003, Blaðsíða 46
Nautgripasæðingar 2002
Aárinu 2002 voru sæddar
24.230 kýr 1. sæðingu
eða 71,9% af heildar
fjölda kúa og kvígna sam-
kvæmt talningu haustið 2001.
Undanfarin ár hefur sæðingum
fækkað verulega í kjölfar
fækkunar kúa. A árinu 2002
verður mikil breyting hvað
varðar sæðingafjöldann, sædd-
um kúm fjölgar um 883 sem er
mikil aukning í ljósi þess að á
sama tima heldur kúm í land-
inu áfram að fækka.
Megin skýring á þessum auknu
sæðingum er mikil aukning sæð-
inga á kvígum en eins og oft hef-
ur komið fram er það mjög mikil-
vægt fyrir ræktunarstarfið að sem
flestir láti sæða kvígur, með því
stækkar afkvæmahópur nautanna
verulega og öryggi úrvalsins
eykst.
Mynd 1 sýnir árangur sæðinga
frá 1993 til 2002, svo sem sjá má
hefur árangurinn verið nokkuð
sveiflukenndur. Undanfarin ár
hafa sveiflumar verið minni en
áður, árið 2002 var fang við fyrstu
sæðingu 70,5% sem er 0,9% lak-
ari árangur en árið á undan sem
er afturkippur sem erfitt er að
skýra en er vonandi ekki kominn
til að vera.
Tafla 1 sýnir árangur sæðinga
eftir svæðum, þar sést að sums
staðar er uppsveifla í fangpró-
sentu en annars staðar hefur ár-
angur farið niður á við. Hvað
heildar niðurstöðu varðar munar
mest um nokkuð lakari árangur á
Suðurlandi enda þar um að ræða
rúmlega 40% af öllum fyrstu sæð-
ingum á landinu.
A árinu 2002 vom flestar fyrstu
sæðingar í janúar eða 3299 og í
Arangur sæðinga 1993 til 2002
Mynd 1. Árangur sæðinga 1993 til 2002.
Tafla 1. Samanburður milli áranna 2001 oq 2002
í Búnaðar- samband 2001 l.sæðing Tvísæð. Árangur 1. sæðing 2002 Tvísæð. Árangur
Kjalnesinga 216 27 67,2% 176 9 75,4%
Borgarfjarðar 1934 311 71,5% 1991 272 70,2%
Snæfellinga 699 252 69,6% 655 161 68,6%
Dalamanna 315 129 68,3% 392 133 72,6%
Vestfjarða 490 91 74,7% 415 89 66,6%
Strandamanna 38 0 84,2% 37 0 70,3%
V-Hún. 482 39 72,5% 520 45 72,8%
A-Hún. 831 100 76,2% 903 104 74,8%
Skagafjarðar 1933 119 70,6% 1975 185 72,4%
Eyjafjarðar 4090 315 73,1% 4345 387 72,8%
S-Þing. 1506 152 68,4% 1596 153 70,5%
N-Þing. 3 0 66,7% 0 0 0,0%
Austurlands 788 81 71,4% 850 64 73,5%
A-Skaft. 270 61 77,5% 315 57 68,2%
Suðurlands 9752 1276 70,8% 10060 1462 68,4%
Landið 23347 2953 71,4% 24230 3121 70,5%
146 - Freyr 4/2003