Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.2003, Blaðsíða 27

Freyr - 01.05.2003, Blaðsíða 27
dætur Fróða 96028, sem sýna besta útkomu, með 2,42 í röðun að meðaltali, mjög hátt hlutfall þeirra er skipað í annað sæði í slíkum innbyrðis fimm kúa sam- anburði. Þijú önnur naut fá þama einnig feikilega góða niðurstöðu. Prakkari 96007 er með 2,51 að meðaltali og íri 96010 og Úi 96016 með 2,52. Ljóst er að öll þessi naut em að skila mörgum kúm sem falla eigendum þeirra vel í geð. Flér em það eiginlega aðeins dætur Glóa 96001, líkt og í mjaltadómnum, sem fá verulega slakan dóm. Samræmi í gæðaröð og öðmm niðurstöðum fyrir naut- in sýnist að þessu sinni mjög gott. Spurst er fyrir um skapgalla við mjaltaathugun. Niðurstöður, sem þar koma fram, benda ekki til að þeir séu áberandi hjá þessum kúm. Slíkir gallar em að vísu tals- verðir hjá dætmm þeirra Móra 96014 og Lunda 96019 eins og fram hafði komið við skoðun kúnna. Þá er í mjaltaathugun leitað upplýsinga um júgurbólgu hjá þeim kúm sem þar er spurst fyrir um. Því miður er það hlutfall kúa sem þar kemur fram um þann vá- gest alltof hátt. Rétt er þó að benda á að einhver hluti kúnna kemst ekki á þennan spuminga- lista vegna þess að þeim hefur þegar verið fargað vegna júgur- bólgu. Þær upplýsingar em að vísu skoðaðar sérstaklega í þess- um samanburði. Þriðji þátturinn, sem einnig er skoðaður í sam- bandi við júgurhreysti kúnna, em niðurstöður úr fmmutölumæling- um. Allur samanburður á þessum tölum er vandasamur vegna þess hve aldursáhrif em sterk fyrir alla þessa þætti, en aldursmunur milli dætrahópanna er umtalsverður. Skoðun á þessum niðurstöðum í samhengi bendir samt til að tals- verður munur sé milli dætrahóp- anna í júgurhreysti. Eins og ffam hefur komið er talsverður fjöldi af sonum Holta 88017 í rannsókn að þessu sinni. Dætur Holta em þekktar fyrir ein- staklega góðar mjaltir en um leið hefur fmmutala hjá þeim og júg- urhreysti alls ekki verið sem skyl- di. Sterkar vísbendingar em í fyr- irliggjandi niðurstöðum um það að Holtasynimir margir, sem em þama í rannsókn, sýni hjá dætmm sínum nokkuð hliðstæð einkenni og þekkt em hjá systmm þeirra. Þetta sýnist eiga við um Trefil 96006, Prakkara 96007, íra 96010, Kalla 96015, Úa 96016 og Hrana 96024. Tölumar benda hins vegar til að einn Holtasonanna, Dúri 96023, sé að gefa kýr sem sýna allt aðra mynd, en flestar niðurstöðumar sýna góða júgur- hreysti hjá þeim kúm. I þessu sambandi er ástæða til að benda á að Dúri er sammæðra Búra 94019 en upplýsingar um dætur hans benda til að það séu sérlega júgur- heilbrigðar kýr. Vísað er í grein Baldurs H. Benjamínssonar um kynbótamat fyrir endingu í þessu blaði en þar fá nær öll nautin úr þessum hópi mjög jákvætt mat. Það er í ágæt- um samhljómi við það að saman- dregnar niðurstöður um förgun sýna í heild jákvæðari mynd fýrir þessa dætrahópa en verið hefur í afkvæmarannsóknunum undan- gengin ár. Frjósemi kúnna er áreiðanlega sá eiginleiki sem erfiðast er að ná nokkm áreiðanlegu mati um á meðan þær eru ekki en eldri. Kyn- bótamat fyrir þennan eiginleika er reiknað á grunni upplýsinga um bil á milli burða og arfgengi á þeim þætti er lágt og matið því ónákvæmt. Ættemi nautanna mót- ar því niðurstöður mikið á meðan upplýsingar em takmarkaðar um dætumar sjálfar. Heildarmynd er ekki jákvæð fyrir hópinn þegar kynbótamatið, sem fram kemur í töflu 2, er skoðað. Þegar allar fýr- irliggjandi upplýsingar um frjó- semi hjá þessum kúm árið 2002 em skoðar í samhengi em þær einna jákvæðastar fyrir dætur Úa 96016, Kalla 96015, Hrana 96024 og Hófs 96027. Þá er ástæða til að benda á að niðurstöður fyrir dætur Fróða 96028 sýna jákvæðari mynd en kynbótamatið fyrir eig- inleikann gefur tilefni til, en þar geldur hann vafalítið nokkuð ætt- emis síns, sem dóttursonur And- vara 87014. Afkvæmadómurinn Eins og lesendur flestir þekkja er nautunum skipað við afkvæma- dóm í þrjá flokka. Bestu nautin eru valin til notkunar sem nauts- feður næsta árið. Þá em önnur naut sem talin em sýna það já- kvæða mynd að þau fá dóm til ffekari notkunar. Að síðustu em nokkur hópur nauta sem er það slakur að engin ástæða er til neinnar frekari notkunar á þeim og er öllu sæði, sem í geymslu er úr þessum nautum, fleygt þegar dómur liggur íyrir. Tafla 2 sýnir kynbótamat þess- ara nauta fyrir nokkra helstu eig- inleika, auk heildareinkunnar þeirra, en um skilgreiningu henn- ar vísast til greinar um kynbóta- mat nauta á öðmm stað í blaðinu. Að þessu sinni var niðurstaðan sú að §ögur naut vom valin til notk- unar sem nautsfeður, 10 tilviðbót- ar fengu notkunardóm, en sjö þeirra féllu á prófmu. Nautsfeðradóm fengu eftirtalin naut: Prakkari 96007, Hófur 96027, Fróði 96028 og Hvítingur 96032. Skal hér aðeins reynt að draga fram einkenni þessara nauta. Dætur Prakkara 96007 em ekki veigamiklar kýr, en samt snotrar að gerð. Þetta em mjólkurlagnar kýr með jákvæð efnahlutföll í mjólk. Dómur er jákvæður um flesta eiginleika nema fmmtölu og Freyr 4/2003 - 27 |
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.