Freyr

Volume

Freyr - 01.05.2003, Page 30

Freyr - 01.05.2003, Page 30
Það var sumarið 2001 sem farið var að huga að því hvort byggja mætti upp kynbótamat fyrir end- ingu hér á landi, þar sem þessar aðferðir væru notaðar. Þeirri vinnu lauk í október 2002 og var niðurstaðan sú að æskilegt væri að taka þennan eiginleika með í ræktunarmarkmiðum í íslenska kúastofninum. Því beindi vinnu- hópur fagráðs um ræktunarmál því til Fagráðs í nautgriparækt að ending skyldi tekin inn í ræktun- armarkmiðin frá og með 2003 með 8% vægi, á kostnað afúrða (5%), mjalta (1%) og frumutölu (2%). Astæða þess að vægið er lækkað á einmitt þessum eigin- leikum er sú að ending hefur fremur nána fylgni við þá. Þess ber einnig að geta að ending er metin með feðralíkani, sem þýðir að einungis eru reiknaðar kyn- bótaeinkunnir fyrir nautin, sem byggja á því hversu vel dætur þeirra endast í framleiðslu. Þetta er ólíkt því sem gerist með aðra eiginleika sem metnir eru með einstaklingslíkani, þar sem reikn- aðar eru kynbótaeinkunnir fyrir alla gripi. Eins og flestum er eflaust kunn- ugt er kynbótamatið reiknað tvisvar á ári, í mars og október. Nú í marsbyrjun var svo reiknað kynbótamat fyrir endingu fyrir nautin sem fædd eru 1996 og koma til afkvæmadóms á þessu ári. Verður gerð grein fyrir niður- stöðunum hér á eftir. Efnaviður og aðferðir Gögnin sem lögð voru til grund- vallar voru fengin úr skýrsluhaldi Bl. Nýtt voru gögn um kýr sem báru fýrsta kálfi frá 1.1.1990 til 30.1.2003, eða alls 47.048 kýr, sem voru dætur 333 nauta og voru 15-40 mánaða gamlar við fyrsta burð. Að öðru leyti voru í gagna- safninu upplýsingar um bú, kýr- númer, fæðingardag, dagsetningu fyrsta til fimmta burðar, förgunar- dag, förgunarástæðu, hæstu dags- nyt á fyrsta til fimmta mjalta- skeiði og föður kýrinnar. Að auki var notuð ættemisskrá þar sem ættemi nautanna var rakið eins langt aftur og heimildir vom fyrir. Kúm undan númeruðum heima- nautum og holdanautum var sleppt úr þessari úrvinnslu. Endingareiginleikinn, sem var skilgreindur, var ending leiðrétt fyrir afúrðasemi. Að auki vom skoðuð tengsl endingareinkunna og einkunna nautanna fyrir aðra eiginleika, s.s. útlitsmat, mjaltir, fmmutölu, gæðaröð og skap. Við útreikning kynbótaein- kunna var notað sk. Weibull feðralíkan og forritið “The Survi- val Kit, v. 3,12”. Áhrifaþættir, sem leiðrétt var fyrir í líkaninu, vom: bú - ár, ár - mánuður, aldur við fyrsta burð, frávik hæstu dags- nytar frá meðaltali bús og árs og mjaltaskeið*staða á mjaltaskeiði. Það sem likanið metur er í raun áhætta gripsins á förgun og er áhættan því meiri, sem endingin er styttri. Niðurstöður og umræður Eins og áður hefúr komið fram hefur ending kúnna styst mjög á undanfömum ámm, síðan 1990 hefúr hún styst um nærri einn mánuð á ári að jafnaði, eða úr tæpum íjómm ámm í tæp þrjú á sl. ári. Þróuninni em gerð nánari skil á mynd 1. Ástæðumar fyrir þessari óhag- stæðu þróun em einkum tvær: I fyrsta lagi hafa síauknar kröfur um mjólkurgæði og frumutölu haft neikvæð áhrif á endingu kúnna, í öðm lagi hefúr aukning í afkastagetu verið talsverð á tíma- bilinu, einkum síðari hluta þess. Mjólkurmarkaður hefur hins veg- ar verið nokkuð stöðugur, þannig að sífellt færri kýr þarf til að upp- fylla þarfír hans. Erfdaþættir Arfgengi endingar mælist 0,10 sem þýðir að 10% af breytileikan- um, sem við sjáum á endingu kúnna, er af völdum erfanlegra þátta, jafnframt þýðir það að lang- stærstur hluti breytileikans er af völdum umhverfisþátta, þ.e. að- búnaðar og hirðingar gripanna. Til að setja þetta í samhengi má benda á að arfgengi á fmmutölu er | 30 - Freyr 4/2003

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.