Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.2003, Síða 32

Freyr - 01.05.2003, Síða 32
Tafla 3. Fylgni kynbótaeinkunna fyrir endingu og annarra eiginleika Fylgni við Eiginleiki FPL P Samhengi við endingu Boldýpt -0,31 < 0,001 Dýpri bolur, styttri ending Útlögur -0,17 0,31 Ekki marktækt Yfirlína 0,09 0,18 Ekki marktækt Malabreidd -0,28 < 0,001 Breiðari malir, styttri ending Bratti mala -0,01 0,81 Ekki marktækt Halli mala -0,06 0,36 Ekki marktækt Staða hækla frá hlið -0,11 0,10 Ekki marktækt Staða hækla aö aftan 0,06 0,38 Ekki marktækt Halli klaufa 0,06 0,38 Ekki marktækt Júgurfesta 0,31 < 0,001 Betri júgurfesta, aukin ending Júgurband 0,32 < 0,001 Sterkara júgurband, aukin ending Júgurdýpt 0,38 < 0,001 Dýpra júgur, styttri ending Spenalengd 0,45 < 0,001 Lengri spenar, styttri ending Spenaþykkt -0,32 < 0,001 Þykkri spenar, styttri ending Spenastaða 0,09 020 Ekki marktækt Mjaltir 0,38 < 0,001 Betri mjaltir, aukin ending Skap -0,01 0,83 Ekki marktækt Frumutala 0,40 < 0,001 Meiri júgurhreysti, aukin ending Gæöaröð 0,54 < 0,001 Hærri gæðaröðun, aukin ending lega grein fyrir því hversu margir dagar í endingu hvert stig á skal- anum þýðir. Mér sýnist þó að gera megi ráð fyrir að hækkun um 10 stig á kvarðanum þýði aukna end- ingu sem nemur 150 dögum, eða sem næst 5 mánuðum. Því má áætla að dætur Hófs 96027 endist að öðru jöfnu rúmu ári lengur en dætur Grana 96002. Það er í sjál- fu sér ekki lítið þegar litið er til þess að meðal endingartíminn er rétt um 3 ár. Tengsl endingar og annarra eig- inleika, sem unnið er með í naut- griparæktinni, s.s. byggingar, hafa verið rannsökuð ítarlega um víða veröld á undanfomum ámm. Alla jafna hafa nánustu tengslin verið við þætti er varða júgurgerð kúnna. Svo er eins hér á landi, sama gildir um mjaltir, júgur- hreysti (fmmutölu) og gæðaröð, þessir eiginleikar hafa nokkuð nána fylgni við endingu, eins og sjá má í töflu 3. Umhverfisþættir Einn af ráðandi þáttum í end- ingu kúnna er hversu mikið þær mjólka. Eins og sjá má á mynd 2 er endingin því styttri (förgunar- áhættan meiri) sem afurðimar em minni. Sérstaklega eru áhrifín sterk á þriðja mjaltaskeiði, þar sem kýr sem einungis fer í 12 kg hæstu dagsnyt, á búi þar sem með- altalið er 17 kg, er í ríflega sexfalt meiri hættu á förgun en meðalkýr- in. Tilsvarandi lækkun er ekki að sjá hjá allra nythæstu kúnum, enda er það einnig þekkt að þeim er hættara við bæði júgurbólgu og efnaskiptasjúkdómum, auk þess sem erfiðara getur verið að fá í þær tíma en þær kýr sem em nær meðaltalinu hvað afurðir varðar. Þetta mynstur er hið sama og má sjá í flestum ef ekki öllum erlend- um rannsóknum. Annar þáttur sem talsverð áhrif hefur á endingu er hversu gamlar kýmar em þegar þær bera fyrsta sinni. Eins og sjá má á mynd 3 hefur aukinn aldur við fyrsta burð neikvæð áhrif á það hversu kýmar endast lengi í framleiðslu. Að öðm jöfnu virðist eins mánaðar aldursaukning við fyrsta burð stytta endingu kúnna um 2%. Þriðji þátturinn sem skýrir breytileika í endingu kúnna er staða þeirra á mjaltaskeiði. Eins og flestir þekkja er júgurbólga sá sjúkdómur sem leggur lang flestar kýr að velli hér á landi. Hennar verður helst vart í upphafi mjalta- skeiðsins, þannig að áhætta á förgun af hennar völdum er mest á fyrri hluta mjaltaskeiðsins. Einnig Áhrif afuröa á förgunaráhættu - I.mjsk -2.mjsk 3. mjsk 4, mjsk -S.mjsk Mynd 2. Áhrif afurða á endingu kúnna. 132 - Freyr 4/2003

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.