Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.05.2003, Qupperneq 33

Freyr - 01.05.2003, Qupperneq 33
Mynd 3. Áhrif aldurs við fyrsta burð á endingu kúnna liggur fyrir u.þ.b. hálfum öðrum mánuði eftir burðinn hversu hátt kýrin fer í nyt. Bóndanum er hins vegar nokkuð í sjálfsvald sett hve stíft hann ákveður að beita hnífn- um vegna lélegra afurða. Þannig er ekki óvarlegt að ætla að hann bíði með förgun af þeim völdum þar til nokkuð er liðið á mjalta- skeiðið, nema ef kýrin reynist al- ger stritla, þá er þolinmæði eig- andans augljóslega af skomum skammti eins og greina má af mynd 3. Ahættu á forgun vegna frjósemi verður hins vegar ekki vart fyrr en talsvert er liðið á mjaltaskeiðið, þar sem það liggur ekki fýrir hvort kýrin ætlar að halda eða ekki fyrr en nokkru eft- ir burð. Þá er líklegt að kýrin sé látin mjólka talsvert fram á mjaltaskeiðið og þá fargað, ef hún er í lagi að öðm leyti. A mynd 4 má sjá hvemig mynstrið varðandi stöðu á mjaltaskeiði þróast, það er tiltölulega svipað fyrstu þrjú mjaltaskeiðin, forgunaráhætta er fremur lág í fyrstunni, eykst hratt eftir ca. þrjá mánuði frá burði og nær hámarki eftir mitt mjaltaskeið en lækkar síðan í lok þess. A Qórða og fímmta mjaltaskeiði em toppamir í áhættunni hins vegar miklu hærri og ívið siðar á mjalta- skeiðinu, það bendir til þess að frjósemin sé þá farin að hafa meiri áhrif á forgunina en á fyrri mjalta- skeiðum. Ályktanir Eins og lesendur þekkja eflaust ráðast erfðaframfarir einkum af þrennu, úrvalsstyrk, öryggi kyn- bótaeinkunnarinnar og ættliðabili. Eins og sjá mátti af töflu 2 er ör- yggi allra nautanna undir 70% sem yfirleitt er talið skilyrði fyrir því að birta kynbótaeinkunnir. Smæð dætrahópanna hér býður ekki upp á það. Er það von mín að einstaklingsmerkingar nautgripa og sá bati sem vænta má á ætt- færslum í kjölfar þess bæti tals- vert þar úr. Engu að síður er þess að vænta að ræktun fyrir aukinni endingu skili bændum árangri á komandi ámm. Þá má spyrja sig hvers sé að vænta, mun t.d. ásetn- ingur kvígna minnka? Eða mun ásetningurinn verða óbreyttur? Það virðist vera mat flestra vís- indamanna erlendis að bændur muni velja síðari kostinn en nýta aukið svigrúm til förgunar til að herða kröfumar gagnvart afkasta- getu kúnna. Þannig má búast við að framfarir birtist ekki endilega í auknum endingartíma, heldur ekki síður í auknum meðalafurð- um kúnna á komandi ámm. Freyr 4/2003 - 331

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.