Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.05.2003, Qupperneq 44

Freyr - 01.05.2003, Qupperneq 44
klónum o.fl. Þróun í þessum rann- sóknum er rakin og horft til verk- efna á komandi árum þar sem áhersla er lögð á að slíkar rann- sóknir muni beinast talsvert að því að öðlast enn dýpri skilning á þeim lífeðlisfræðilegu þáttum sem stjóma framleiðslu eggja í eggjastokkum og frjóvgun þeirra og síðan fósturþroska á mismundi stigum. Aukin þekking í þessum efnum á að geta skilað hagnýtum niðurstöðum til að stuðla að betri fijósemi hjá mjólkurkúm. Eins og þekkt er þá em frjósemisvanda- mál víða vaxandi vandamál hjá hámjólka kúm. Marvísleg önnur forvitnileg svið munu einnig verða meira í sviðsljósinu á kom- andi ámm, eins og t.d. notkun á klónuðum gripum og erfðabreyttir gripir, sem notaðir em í til fram- leiðslu á lyíjum eða öðmm verð- mætum efnum í mjólk. Danir framarlega í skipulagi Á KYNBÓTUM í BÚFJÁRRÆKT Eins og áður hefur komið fram vann B. B. Andersen að kynbóta- skipulagi fyrir danska nautgripa- rækt fyrir rúmum þrem áratugum. Danir hafa verið mjög ffamarlega í rannsóknum á kynbótaskipulagi í búQárrækt frá þeim tíma. I ritinu er mjög ítarleg yfirlitsgrein um þróun í rannsóknum á því sviði á síðari ámm. Rannsóknir hafa sí- fellt leitt betur og betur í ljós mik- ilvægi þess að vanda vel til skil- greininga á ræktunarmarkmiðum og nauðsyn þess að þau séu í sí- felldri endurskoðun og taki mark af miklum breytingum á ffam- leiðslustöðu og framleiðsluum- hverfi mismunandi greina búfjár- framleiðslunnar. Almennar þjóðfé- lagslegar kröfur um sjálfbæra framleiðslu og að taka tillit til sið- rænna viðhorfa í framleiðslu em dæmi um nýjar áherslur á síðustu ámm. Umfangsmiklar rannsóknir á þessu sviði hafa snúið að aukinni alþjóðavæðingu ræktunarstarfsins. Hvernig verður ræktunarstarfið best skipulagt þegar farið er að velja nautin um allan heim? í þeim efnum hefur verið bent á það að þeir, sem stýra ræktunarstarfinu í Danmörku, hafi tæpast haft næga trú á eigin starfi. Þeir hafa á síð- ustu ámm sótt miklu meira í að nota útlend naut sem nautsfeður en ástæða hefur verið til og í raun uppskorið minni affakstur ræktun- arstarfsins en mögulegur hefði verið með betri nýtingu á heima- stofninum. Rannsóknir á þessu sviði á síðustu ámm hafi nokkuð beinst að því að sýna fram á um- talsverðan ræktunarlegan ávinning af sameiginlegu ræktunarstarfi á Norðurlöndunum. Einkum virðist ávinningur í þeim effium umtals- verður í tengslum við ræktun rauðu kúnna og eins og margir les- endur vafalítið þekkja er nú komið á sameiginlegt ræktunarstarf í þessum kynjum í þessum löndum. Miklar rannsóknir hafa einnig farið fram á nýtingarmöguleikum ræktunarkjama í nautgriparækt. Slíkir ræktunarkjamar em til í Danmörku en hafa ekki orðið jafn mikill burðarás í ræktunarstarfínu og í sumum öðmm löndum í Evr- ópu. Rannsóknir Dana hafa sýnt að opnir ræktunarkjarnar, sem byggja á því að nota þar á hverj- um tima bestu afkvæmadæmdu nautin, em líklegir til að skila miklu meiri árangri en lokaðir kjamar. Þeir benda á að margar rannsóknir á gildi ræktunarkjama hafí mjög oft falist í skoðun út frá vali fyrir aðeins einn eiginleika, en slíkt eigi lítt skylt við nútíma ræktunarstarf í nautgriparækt. I tengslum við þessa umræðu er ástæða til að minna á FY-BI verk- efnið, sem hefur verið áður fjallað um og ýmsar niðurstöður þess í greinum í Nautgriparæktinni og Bændablaðinu. Þetta var í raun mjög umfangsmikið ræktunar- kjamaverkefni. Þó að það skilaði ekki þeim landvinningum sem bjartsýnustu menn væntu í upp- hafí er unnið út ffá þeim hug- myndum sem þar var lagt af stað með að hluta í FUTURE verkefn- inu, sem er sá megin ræktunar- kjami, sem dönsku nautastöðv- amar eiga og reka í dag. Áhrif skyldleikaræktar á SKIPULAG BÚFJÁRKYNBÓTA Eitt svið í tengslum við ræktun- arskipulag í búfjárrækt, sem feng- ið hefur vemlega aukna athygli á síðustu ámm, em áhrif af aukinni skyldleikarækt innan búfjárstofna á framtíðarskipulag búfjárkyn- bóta. Þessi vandamál em ekki síð- ur verulega vaxandi í stærstu bú- fjárstofnunum en mörgum litlum búfjárstofnum. I þessu sambandi hafa á allra síðustu ámm verið þróaðar reikniaðferðir sem gera mögulegt að meta í samhengi langtímaáhrif af mismunandi vali kynbótagripa á væntanlegar erfða- framfarir í stofninum og aukningu skyldleikaræktar. Ljóst er að á milli þessara tveggja þátta, sem hafa andstæð áhrif, er eitthvert heppilegasta hlutfall, sem menn þurfa að stýra valinu að til að ná. Hér er um að ræða liluti sem er mjög áhugavert að skoða með hliðsjón af ræktun á íslensku búfé. Vegna lítillar stofnstærðar allra búQárstofna hér á landi og því að þeir em ræktaðir í algerri einangr- un frá öðmm búfjárstofhum sömu tegundar þá verður þetta vanda- mál augljósara og ef til vill brýn- na hér á landi en í öðmm löndum. Það svið erfðarannsókna hjá bú- fé, sem viða erlendis hefur verið staðið með miklum blóma á síð- ustu ámm og t.d. Danir hafa verið mjög ötulir í rannsóknum á er leit að merkisvæðum (QTL) til að nota við úrval kynbótagripa. Rann- sóknir þessar byggja á því að erfðagreindur er mikill fjöldi 144 - Freyr 4/2003

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.