Andvari

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Andvari - 01.01.2010, Qupperneq 102

Andvari - 01.01.2010, Qupperneq 102
100 ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON ANDVARI ég get ekki mjakað mér fet fyrir fet. Eg vil ekki læra að bíða og bíða, betra er að stökkva og falla en að skríða, því gullroðna líkkistu lítils ég met. Kvæðið er eftirminnilegt, ekki vegna skáldskapargildisins sem tæpast getur talist nema í meðallagi, heldur vegna efnis þess sem er mjög frábrugðið „Heimþrá“ en lýsandi fyrir skáldið framan af ferli þess (fleiri dæmi af svip- uðum toga: „Víkingarnir“, „Væri ég aðeins einn af þessum fáu“, „Gefðu mér hlátur þinn, söngglaði sær“). Ljóðmælandi lýsir ,stjórnlausri‘ óþreyju sinni, taumlausum metnaði. Vart fer á milli mála að þetta er stefnuskrá skáldsins sjálfs á góðri stund. Ofurmennishugsjón Nietzsches er ekki fjarri og vel mætti tala um oflæti eða hybris. Efni kvæðanna tveggja er í svo ólíkum anda að furðu gegnir. En sé hugað að skáldskaparaðferðinni er munurinn jafnvel enn meiri. „Heimþrá" er mynd- Ijóð. „Strax eða aldrei“ er ekki án mynda heldur, sjónrænna mynda: Að ,líða sem fálkinn um loftgeima‘, ,skríða sem ormur í duftinu‘, hlotnast ,gullroðin líkkista1 svo nokkur dæmi séu tekin - en umfram allt er kvæðistextinn þó yfirlýsingar, ótvíræðar og auðskildar. Frá sjónarhóli ljóðlistarsögunnar má segja að þessi tvö kvæði Jóhanns endurspegli ákveðnar áherslubreytingar sem urðu í evrópskum skáldskap á 19. öld. Ljóðin fimm sem Jóhann birti í Skírni 1910 („Heimþrá“, „Odysseifur hinn nýi“, „Bikarinn“, „Sólarlag“ og „Fyrir utan glugga vinar míns“) eru góð dæmi um þá tilhneigingu sem mjög hefur borið á í nútímaskáldskap að myndmál beri ljóðin uppi, þau eru ekki rœðu- ljóð,m málflutningur eða bein umfjöllun um ytri veruleika. Erindi þeirra er ekki, eða að minnsta kosti einungis óbeint, að flytja boðskap. Bæði þessi kvæði, svo ólík sem þau eru, hafa verið talin til nýrómantíkur svokallaðrar. Frekari vitna þarf varla við að slík flokkun skáldskapar er í meira lagi hæpin því heitið segir nákvæmlega ekkert til um eigindir kvæð- anna sem um ræðir. Það getur í besta falli verið einhverskonar samheiti um skáldskap tiltekinna skálda á tilteknu tímabili. Þeir Friedrich Nietzsche og Stéphane Mallarmé voru að vísu samtíðarmenn en það dugir tæpast til að spyrða svo ólíka andans menn saman sem frumkvöðla einnar og sömu skáld- skaparstefnu. Varla verður sagt að tímamót hafi orðið í íslenskum skáldskap með ljóðum Jóhanns í Skírni 1910, til þess var skrefið of stórt og ljóðin of fá. Oft er hins- vegar talað um að ákveðin tímamót hafi orðið í íslenskri ljóðlist með fríljóði hans „Sorg“, sem mun ort 1908-09 og birtist í Vöku 1927. Það kann að vera rétt frá vissu sjónarmiði, enda megi það þá kallast fyrsta nútímaljóð ort á ís- lensku eins og oft hefur verið talið. Þess ber þó að gæta að ljóðið var stakur viðburður og önnur slík fylgdu ekki í kjölfarið. Og mjög er vafasamt að áhrif þess hafi verið meiri en Skírnisljóðanna, eða hvar sér þeirra áhrifa stað?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138

x

Andvari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.