Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1946, Síða 33
SVEINBJÖRN SVEINBJÖRNSSON
11
aðalkennari hans Anton Ravn. Eftir
tæPra tveggja ára nám fór hann til
Edinborgar og kendi þar um skeið.
Árið 1872 tók hann sig upp aftur og
gekk á hljómlistaskólann í Leipzig á
^ýskalandi. Var yfirkennari skólans,
^-arl Reinecke, einkakennari hans.
Eeinecke var merkur tónlistamaður
°g strangur kennari; og því var það,
að Grieg lenti í ónáð hans fyrir útúr-
dúra við námið og aðfinslur við skól-
ann. En það var nokkuð löngu áður.
Veturinn 1874 settist Sveinbjörn
sv° aftur að í Edinborg og bjó þar að
staðaldri fram að árinu 1919, eða í
samfleytt 45 jjr. Kendi hann píanó-
spil og tónfræði með sívaxandi áliti,
°g var víst lengstum önnum kafinn.
°ft heyrir maður talað um “ást við
yrstu sýn”. En Sveinbjörn steig þar
611 framar. Vorið 1889 var hann eitt
Slnn staddur hjá vinafólki sínu,
s °tsku, og barst þá í tal sumarfrí.
e£lr frúin í heimilinu, að þau séu
^ ^ugsa um skemtiferð til fjarða
°regs, og býður honum, að slást
^ð í förina með þeim. Á stofuborð-
nu var ný mynd af ungri blómarós,
er hann hafði eigi áður séð. Hann
Pyr, hver þessi stúlka sé, og segir
b^ln’ þetta sé systurdóttir sín, og
Ul hún með móður sinni og systkin-
“R1 1 Bertsllire> Svarar hann þá:
^ þér stendur á sama, frú mín góð,
vildi eg heldur fá kynningarbréf
£ systur þinnar og frændfólks, en
ylclíUr 1:11 N°regs.” Var það
aðufengið, og kom hann harðtrúlof-
tri baka úr því sumarorlofi.
Joh ^an Eleanor Christie, dóttir
j- n Ehristie, M.A., vel mentaðs
inn ðings’ frá Banff’ er Þá var lát’
^b’ °S Williamina Paterson frá
erdeen, konu hans. Eleanor var
vel mentuð og glæsileg, og stóð á
tvítugu (f. 1870); en Sveinbjörn var
þá vel yfir fertugt. Þau giftust á
næsta ári (1890) og reistu bú í Edin-
borg. Þar bjuggu þau í samfleytt 29
ár, eða til þess tíma, að þau fluttu
með börnum sínum hingað til Winni-
peg um haustið 1919.
Á næstu tveimur árum, eftir að
þau giftust, eignuðust þau tvö börn,
dreng og stúlku. Drengurinn, Þórð-
ur John Wilhelm, var fæddur 2. apríl
1891 og dóttirin, Helen McLeod, 3.
desember 1892. Þórður útskrifaðist
frá háskóla Edinborgar í læknisfræði
vorið 1914. Hann vann sem læknir,
með kapteins nafnbót, í tvö ár í
heimsstyrjöldinni 1914-1918, oft við
fremstu víglínu, og bilaði þá heilsa
hans í þeirri ofraun. Síðar stundaði
hann lækningar víðsvegar í Vestur-
Canada um nokkur ár. Hann er list-
fengur mjög, leikur vel á píanó og
málar; er ókvæntur og þykir nokkuð
einrænn. Helen útskrifaðist frá
Listaskólanum í Edinborg í fögr-
um listum og tók kennarapróf árið
1915. Er hún fríð sýnum, listræn
mjög og vel skáldmælt. — Hún
kendi dráttlist í Skotlandi um tíma
og síðar í Canada. — Árið 1921
giftist hún Ralph Ernest Alwyn
Lloyd, liðsforingja úr stríðinu. Hann
er nú fyrir skemstu látinn. Þau Helen
og Ralph Lloyd eignuðust fjögur
börn. Fyrsta barnið, Benjamín Bertie
Sveinbjörn, dó innan árs frá fæðingu.
Næstur var Francis Charles Svein-
björn, fæddur 1923, þá Eleanor, fædd
1924; yngstur er Jón Edric Shen-
stone Maclean, fæddur 1926. Báðir
gengu drengirnir í herinn, og komu
heilir á hófi til baka úr síðustu styrj-
öld. Sveinbjörn hinn síðari kom