Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1946, Blaðsíða 149
ÞINGTÍÐINDI
127
Önnur útgjöld.................... 100.63
Des. 1945: í sjóði ............... 45.37
Samtals ......................$296.00
Deildin óskar þinginu allrar blessun-
ar í starfinu á þessu komandi ári. Kær
kveðja til allra sérstaklega til gestanna
frá íslandi.
K. I. Johnson, forseti
I. N. Bjarnason, skrifari
Tillaga séra V. J. Eylands að skýrslan
sé viðtekin, Guðm. Eyford studdi. Sam-
þykt.
Skýrsla deildarinnar “Brúin”, Selkirk,
lesin af ritara.
Starfsskýrsla d'eildarinnar "Brúin",
Selkirk, Man.
Deildin hafði sex fundi á árinu, og
eina opinbera samkomu, þar sem að fólk
frá Winnipeg bar fram ágæta og upp-
byggilega skemtiskrá. Engin kensla
hefir farið fram á starfsárinu.
Sumir elstu meðlima hafa orðið að
segja sig úf félaginu, fyrir elli sakir og
sjóndepru. Þrátt fyrir þetta hefir lestrar-
félagið verið starfrækt og bækur þess
allmikið lesnar af meðlimum. Sökum
fjárskorts hafa fáar nýjar bækur verið
keyptar. Nú er ofurlitið fé fyrir hendi,
til bókakaupa. Vonum við að geta að
einhverju leyti bætt úr þörfinni, sem er
á því að fá nýjar bækur. Vonum við að
geta haldið því starfi áfram á þessu ári.
Geta má þess að deildin lét $10.00 í
sjóðinn til hjálpar Miss Agnesi Sigurðs-
s°n; einnig gaf hún ofurlitinn jólaglaðn-
fng, til veikrar stúlku. Hr. Einar Magn-
hsson, sem lengi og vel hefir stjórnað
heildinni með miklum áhuga, sá sér ekki
faart að taka kosningu á þessu ári. í
stað hans var hr. Ólafur Ólafsson kosinn,
væntir deildin hins besta af hans
eálfu. Hlutverkin eru ýms, en kraftar
°ru veikir til framkvæmda.
S. Ólafsson, ritari
Samkvæmt till. séra V. J. Eylands
stúddri af Einari Magnússyni var skýrsl-
uhni veitt viðtaka.
Skýrsla deildarinnar “Esjan” í Árborg
lesin af ritara og viðtekin samkvæmt
till. Guðm. Eyford studdri af Elias Elias-
syni.
Skýrsla fró deildinni "Esjan'’
í Árborg, Man., 1945
Meðlimatala 66.
Fundarhöld: Fjórir starfs og skemti-
fundir hafa verið haldnir á árinu sem
leið. Fundir sem haldnir voru að sumri
tii voru sóttir af 36 meðlimum að meðal-
tali, vetrarfundir af 8, svipuð hlutföll
mundi maður ætla að ætti sér stað með
þjóðræknisþing.
Samkomuhöld: Ein samkoma var
haldin á árinu við góða aðsókn.
Bókasafnið: Bókasafn deildarinnar
hefir verið starfrækt eins og að undan-
förnu og útlán um eða yfir 500 bækur.
Fáar bækur hafa verið keyptar á árinu,
en öll hin helstu tímarit.
Fjárhagur: Samkvæmt skýrslu féhirð-
is hafa útgjöld og inntektir á árinu ver-
ið: Inntektir $578.95, útgjöld $487.30, í
sjóði um áramót $91.65. Af þessari upp-
hæð voru $200.00 lagðir i rithöfunda-
sjóð Þjóðræknisfélagsins.
Á síðastliðnu ári hefir orðið allstórt
skarð í meðlima hóp Esjunnar, sex á-
gætir starfsmenn félagsins hafa flutt í
burt úr bygðinni. Gunnlaugur og Svan-
fríður Hólm, sem hafa verið meðlimir í
mörg ár og eru íslendingar í húð og hár.
Árni og Solveig Bjarnason, sem eru
elstu meðlimir félagsins og hafa tekið
mjög ágætan þátt í starfi þess og ís-
lenskra mála yfirleitt í þessu bygðarlagi
frá því fyrsta. Og Dr. Sveinn og Marja
Björnson, sem hafa verið driffjöður Esj-
unnar um allmörg undanfarin ár. Frúin
sem forseti og doktorinn sem bókavörð-
ur og féhirðir. Skarðið hefir þannig orðið
stærra en hvað höfðatalan bendir á.
Herdis Eiríksson, ritari
Skýrsla deildarinnar “Iðunn” í Leslie
lesin af ritara.
Skýrsla deildarinnar "Iðunn",
Leslie, Sask.
Vér félagar deildarinnar “Iðunn” finn-
um til þess, að það er af, sem áður var,
þegar haldnir voru 8-9 fjörugir fundir á