Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1946, Blaðsíða 152
130
TIMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
dómi. Nefndin hefir fullan hug á fram-
kvœmdum til heilla fyrir bókasafn
deildarinnar, og félagsskaparins “Fróns”
í framtíðinni.
—Winnipeg, 23. febr. 1946.
D. Björnsson
Tillaga frá Eldjám Johnson, studd af
Mrs. Josephson, að skýrslan sé viðtekin.
Samþykt.
Skýrsla frá “The Icelandic Canadian
Club” lesin af forseta deildarinnar, Mrs.
Hólmfríði Danielsson. Skýrði hún einnig
frá útgáfu bókarinnar “Iceland’s Thou-
sand Years”.
Ársskýrsla forseta, Icelandic Canadian
Club, Hólmfríður Danielson
Meðlimir Icelandic Canadian Club
taka undir með öllum heimsins lýð og
lofa guð fyrir það að hinu ógurlega
heimsstríði lauk á s. 1. ári„ og að flestir
sem í herþjónustu voru víðsvegar um
heim eru nú komnir heim til ættingja
og vina. Við minnumst með sorg og
söknuði þeirra sem ekki koma aftur og
vottum djúpa hluttekningu þeirra nán-
ustu.
Við fögnum meðlimum félagsins sem
komnir eru heim og hafa á ný sýnt sig
viljuga til þess að starfa með áhuga að
málum félagsins, og ennfremur fögnum
við 40 ágætum nýjum meðlimum sem
gengu í félagið á árinu.
Níu stjórnarnafndar fundir voru haldn-
ir á árinu, og átta almennir fundir mjög
fjölsóttir. Einnig hefir fél. stofnað til 10
skemtifunda af ýmsu tagi sem hér skal
greina:
1. Hin árlega samkoma félagsins í
Good Templara húsinu 26. febrúar 1945,
var afar fjölsótt svo að húspláss rúmaði
ekki alla sem inn vildu komast. Séra B.
Theódór Sigurðsson hélt áhrifamikla
ræðu og fjölbreytt söngskemtun fór
fram.
2. Félagið tók þátt i “Ail-Canadian
Concert”, sem Oanadian Youth Council
stóð að í Winnipeg Auditorium þann 28.
<og 29. mars. Stúlkur í íslenskum þjóð-
.búningi tóku þátt i skemtiskránni og
Mrs. T. R. Thorvaldson söng íslensk lög.
3. Lokasamkoma Icelandic Canadian
Evening School 14. mai. Próf. Skúli
Johnson flutti fyrirlestur: “Icelandic
Literature of the 19th Century. Einnig
var ágæt söngskrá. Aheyrendur voru
hrifnir af því að hlusta á Murray Pippy=
einn af nemendunum flytja ræðu á ís-
lensku, og Mrs. G. Bergvinson lesa ís-
lensk kvæði. Hvorugt er af íslenskum
stofni.
4. Samkvæmi 24. maí í Marlborough
Hotel til þess að heiðra Dr. Thorberg
Thorvaldson, frá Saskatoon, sem nýlega
hafði verið veitt doktors nafnbót við
Manitoba háskólann. Um 150 manns
voru viðstaddir.
5., 6., 7., 8. Fjóra skemtifundi hefir
félagið haldið fyrir yngra fólkið, í neðn
sal Sambandskirkjunnar. Félagið er nú
að verða miðstöð fyrir stóran hóp unga
fólksins, og er það mjög ánægjulegt að
það komi saman til þess að hafa sam-
eiginlegan gleðskap og áhugamál.
9. Síðast en ekki síst ber að telja
veislu þá er haldin var í Royal Alexandra
hótelinu 18. þ. m. til þess að bjóða vel-
komna heim alla þá af íslenskum stofnj
sem verið hafa í herþjónustu. Að ÞV1
samkvæmi stóðu Jón Sigurðson félagi0
og Icelandic Oanadian Club. Yfir 50<>
manns voru heiðursgestir við þetta
tækifæri, en um 700 manns samankomn-
ir. Var það í alla staði ánægjulegt a<i
geta sýnt unga fólkinu okkar þann hlý'
hug að bjóða það velkomið heim a
virðulegan og viðeigandi hátt. W. J-
Lindal dómari, flutti aðal ræðuna, fylR'
isstjóri Manitoba flutti ávarp. EinmS
tóku til máls, Mrs. E. A. Isfeld, séra P-
M. Pétursson, séra V. J. Eylands °“
Hólmfríður Danielson; Mrs. J. B. Skapta
son, forseti J. S félagsins, hafði sam-
komustjórn með höndum.
Sama daginn og veislan fór frarT1
sendu félögin mæðrum og eiginkonu -
þeirra sem fallið höfðu í stríðinu, ° >
sem heima höfðu átt í Winnipeg, fa^e^
blómvendi, í samúðarskyni. Alt Þet
var gert mögulegt fyrir drengskap ’
þátttöku þeirra sem studdu félögin Pe|j.
ingalega; og þökkum við þeim af mih1
alúð, og sér í lagi hina miklu vinsem1