Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1946, Síða 86
64
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA
Annað mál er, hvort himintungl eru
óhult fyrir áhlaupum vísindanna. En
liltlu mundi muna þó nokkrir smá-
hnettir væru sprengdir upp. Á hinn
bóginn er ekki óhugsandi að sjálf
jarðarkringlan yrði fyrir fyrsta á-
verkanum. Nokkurt spursmál tel eg
það, hvort vanalegir bókhaldarar ráði
við þá reikninga og töluraðir, sem
stjörnustandarður hefði í för með sér.
Einnig efast eg um, að núverandi
stjórnfræði gefi valdhöfum þjóðanna
nokkrar vísbendingar viðvíkjandi
milliþjóðaþrætum og styrjöldum,
sem hljólta að spinnast út af skiftum
og óskyldum skoðunum um verðlag
hinna ýmsu himintungla.
Bankastjóri — Vill herra Stjörnu-
fræðingur ekki halda sér við efnið,
og ræða málið frá hagsmunalegu
sjónarmiði.
Stjörnufræðingur — Með ánægju,
herra forstjóri Heimsbankans. —
Stjörnustandarð álít eg hið mesta
happ fyrir mig og starfsbræður mína.
Mér þykir líklegt að fjárveitingar til
nýrra stjörnufunda verði mjög ríf-
legar. Til þeirra mætti vérja því fé
sem fram að þessu hefir verið eytt til
að grafa gull úr jörðu og í. Svo
vænti eg hærri launa eftir en áður;
og við hærri laun, ættum við stjörnu-
fræðingar, að þokast svo upp í mann-
félaginu, að virðing okkar yrði ekki
minni en bankastjóra, svindilbrask-
ara og kartelista. í nafni starfs-
bræðra minna, lofa eg því málefninu
óskiftu fylgi sltjörnufræðinnar.
Allir — Heyr! Heyr!
Bankastjóri — Nökkrar athuga-
semdir, við ræðu herra Stjörnufræð-
ings? (Þögn.)
Stærðíræðingur — Óþarft mun
vera, að bera kvíðboga fyrir fæð eða
fáfræði reikningsmanna, í sambandi
við fyrirhugaðan stjörnustandarð.
Herra stjörnufræðingi er kunnugt
um, að langar töluraðir eru oftar
táknaðar með bókstöfum en tölustöf-
um. En sú aðferð við bankareikn-
inga mundi vart reynast auðvaldinn
þrándur í götu. Alt fram að þessu
hefir almenningur haft ofurlitla
nasasjón af ársskýrslum þeim, sena
bankar og önnur stórgróðafélög g£f3
út. Nú eru þær sjaldan samdar
sendar úit, til að leiða fólkið í allan
sannleik um aðferðir fjárbraskara-
Færri mundu þó renna grun í hvar
fiskur liggur undir steini, værU
skýrslurnar einn óumræðilegur
hrærigrautur úr tölum og bókstöfum-
Að mínu áliti mælir það mest tneó
stjörnustandarðinum, að hér liggur
ótæmandi auðsuppspretta fyrir hönd-
um, svo enginn þarf lengur að kvíða
fjárkreppu og fátækt. Eða er ekki
herra Hagfræðingur mér samdóma
um þetta?
Bankastjóri — Hagfræðingur hef
ir orðið.
Hagfræðingur — Hagfræðin er f®1
um að sanna fólkinu, að hvaða fjur
málabrask, sem herra forstj01'3
Heimsbankans þóknast best, sé hi
eina sanna. Og ekki verður það okk
ar skuld, hagfræðinga, þó einhve1
efist um að hann geti látið stjörnurU
ar í askana, eða þær gerist einskona1
nægtaábyrgð, eins og síðasti raeðu
maður gaf í skyn.
Gabríella — Fátæka hafið þér 3611
hjáyður. pá
Bankastjóri — Amen. (Þögn-/
viljum vér kveðja fulltrúa sérréttiu
og alls réttlætis yfirleitt, til 1113
Herra Lögfræðingur á orðið. /
Lögfræðingur — Eins og nærrl