Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1946, Side 162
140
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
gögn sögulegs eðlis, og vona eg að eg
geti skilað af mér fyrir næsta þjóðrækn-
isþing, en þess bið eg félagið að búast
ekki við neinu um of. Núna rétt átti eg
tal í síma, við einn samnefndarmann
minn, séra Sigurð Ólafsson í Selkirk,
sagðist hann ekki mundi geta komið á
þingið, bað hann mig gera þinginu grein
fyrir gjörðum nefndarinnar.
J. G. Oleson
Eldjárn Johnson gerði það að tillögu,
að skýrslan væri viðtekin. Till. studd af
Mrs. Josephson og samþykt.
Þá gaf ritari deildarinnar “Fjallkon-
an” í Wynyard, Jón Jóhannson, fram
munnlega skýrslu um starf deildarinnar
á árinu. Gat hann þess, að deildin hefði
að vísu verið fremur aðgerðalítil á árinu
enda í upphafi stofnuð af ungu og á-
hugasömu fólki, sem nú væri ýmist í
burtu horfið eða tekið fast að eldast.
Samt hafði deildin staðið fyrir dálitlu
samkvæmi á fullveldisdaginn 17. júní
s. 1.
Tillaga Th. Gíslasonar, að skýrslan sé
viðtekin, studd af Miss Vídal og sam-
þykt.
Þá skipaði forsetinn þessar nefndir:
Útbreiðslumál: Séra Fáfnis, Rósm. Árna-
son, Valgerður Coghill, Jón Jóhannson
og A. E. Johnson.
Fræðslumál: Mrs. E. P. Johnson, Einar
Magnússon, Herdís Eiriksson, Harald-
ur Olson, Mrs. H. C. Josephson.
Kennaraembætti við háskólann í Mani-
toba: Séra V. J. Eylands, J. J. Bíldfell,
Ólafur Pétursson, G. L. Jóhannson og
Guðmundur Feldsted.
Fjármálanefnd: Sveinn Pálmason, Á. P.
Jóhannson, Kristján Indriðason.
Samvinnumálanefnd við ísland: V. J.
Eylands, J. J. Bíldfell, G. L. Jóhannson,
Philip Pétursson, dr. Sveinn Björnson.
Lá þá fyrir til umræðu breyting á
þingtímanum. Las formaður milliþinga-
nefndarinnar, Guðm. Feldsted upp til-
lögur þeirrar nefndar í málinu.
Nefndin sem kosin var á síðasta þjóð-
ræknisþingi (1945) gefur hér með álit
sit á því máli sem er:
1. Að breyta verður grundvallar lög-
um félagsins, sem ákveða að þingið sé
haldið í febrúar mánuði ár hvert í Win-
nipeg.
2. Að í júní mánuði eru haldin svo
mörg þing og mót af íslendingum í Win-
nipeg að það yrði örðugt fyrir Þjóðrækn-
isfélagið að smeygja sér þar inn á milli-
3. Að mörgum félagsmönnum er auð-
veldara að sitja þingið í febrúar mánuði
en júní.
4. Þó bændum hafi verið örðugt að
fá hjálp við hirðingu á búum sínum
þegar þeir hafa viljað sækja þjóðrækn-
isþingið þá er útlit fyrir að það breytist,
því nú er að verða margt af iðjulausu
fólki í landinu.
5. Að nefndin álítur að það sé ekki
heppilegt að breyta þjóðræknisþinginu
í sumarsamkomu.
G. Fjeldsted
A. E. Pálmason
Á. P. Jóhannson
Lagt til af Thor Lífman, að nefndar-
álitið sé viðtekið. Tillagan studd af
Lúðvík Hólm. Samþykt.
(Umræðum frestað um sinn þar sern
sumir áhugasamir menn um málið höfðu
vikið af þingi um sinn).
Formaður kjörbréfanefndar lagði fram
viðauka skýrslu þess efnis, að Thór Líf'
man hefði verið kosinn sem fulltrúi fr
deidlinni “Esjan” til viðbótar við þá er'
indreka sem áður höfðu verið skráðir og
að Mr. Lifman væri kominn til þings-
Tillaga Rósm. Árnasonar sem Miss Vída
studdi, að skýrslan sé samþykt. Sam-
þykt.
Útgátfumál: Eldjárn Johnson lagði til
og Árni G. Eggertsson studdi, að þriggJ3
manna nefnd sé skipuð í málið. Sam
þykt.
Þessir skipaðir í nefndina:
Guðmundur Eyford
W. Jóhannson
Mrs. J. E. Eiríksson