Vísir - 24.12.1939, Síða 35
VlSIR
29
vinsælasti þátturinn í jólagleð-
inni, þvi hvernig geta þeir, sem
því eru vanir, hugsað sér jól án
jólatrés. .lólatréð var alger
lieimlisiðnaður ef svo mætti
segja; það var búið til á þann
hátt, að þriggja álna löngum sí-
valning var fest við jiall, sem
stóð á gólfinu; sívalningurinn
myndaði stofn, en í hann voru
svo festar glmlir, sem mynduðu
greinar, hinar neðstu voru
lengstar en smá styttust svo eft-
ir þvi, sem ofar dró. Stofn og
greinar var síðan vafið með
sortulyngi, sem aflað var að
haustinu frá landi, ]>ví lyng
s]jrettur ekki i eyjunum. Á
toppi trésins var komið fyrir
stjörnu búinni til úr pappa ef
ekki var til útlendur toppur.
Síðan var tréð skreytt með alls-
konar gerfiblómum og á liverja
grein voru hengdar tvær eða
fleiri körfur fullar af allskonar
sælgæti. Kertum var svo komið
fyrir á greinunum og í toppi.
Þegar búið var að kveikja á
jólatrénu eins og það var kallað,
safnaðist fólkið alt með sam-
tengdum höndum í einn eða
fleiri hringi kringum tréð og
söng jólasálma meðan kertin
brunnu. Þegar kertin voru út-
brunnin var körfunum útbýtt
rneðal fólksins og fékk hver
maður eina körfu. Jólatréð var
síðasti þáttur á dagskrá kvölds-
ins og fór fólk úr því að taka á
sig náðir. Spil voru aldrei snert
á aðfangadagskvöld; það jxítti
ekki sæma helgi jólanæturinn-
ar.
Á jólanóttina var venja að
láta ljós lifa i hverju skoti þang-
að til bjart var orðið á jóladag.
Á jóladagsmorgun gekk bver
maður fvrir alla iá heimilinu og
bauð gleðileg jól.
Eftir að borðaður hafði verið
morgunmatur á jóladag var
húslestur lesinn og sáhnar
sungnir og leið sá dagur fram
til kvölds þannig að karlmenn
voru við gegningar úti við en
kvenfólk sá um matinn; þó var
þess vandlega gætt að snerta á
engri ónauðsynlegri vinnu og
kostað var kapps um að ljúka
störfum öllum svo snemma,
sem fx-amast var kostur á. Á
jóladagskvöld skemli fólk sér
eftir föngum; var þá farið í
leiki, svo sem jóla- og ]xanta-
leik; þá var og dregið um jóla-
sveinana, þannig að piltarnir
drógu um nxiða stúlknanna, en
stúlkurnar piltanna; tóku ungir
sem gamlir. þátt i Ieikjum þess-
um og þóttj hin besta skemtun.
Mannmargt var á flestum lieim-
ilunum svo oft gat verið fjör 1
leikjunum.
Annar i jólum leið meö mjög
svipuðum hætli og jóladagur-
inn að öðru en því að þá
skcmtu menn sér mest við spil.
Spilaði eldra fólkið helst vist en
krakkar og unglingar púkk,
gosa, hjónasæng og fleh'a.
Sjálfsagt þótti að spila út jólin
og var oft spilað fram á þriðja-
dagsmorgun.
Ekki var siður að fara til
kii'kju á jólum né nýári, þó út
af því væri brugðið el' einmuna
blíða var. Það þótti of mikil á-
ha’tta að fólk fjölmenti af eyj-
unum er dagur var svo stuttur
og allra veðra von. Oft bar það
við að fólk úr næstu eyjum
kom saman á milli liátíðanna
og skemti sér þá við dans og
leiki; þótti það hin mesta til-
hreytni, sem vænta má.
Á gamlársdag var annriki
mikið við að undirbúa brenn-
urnar, en það var og er enn ó-
frávíkjanlegur siður að brenna
út árið, eins og það er kallað. 1
eyjunum var venjulega brent
blysum, því þar er eldiviður
mestur aðkeyptur og þótti of
dýrt að kynda vita; þó var það
stöku sinnum gert. Aftur á xnóti
var oftast nóg af efni í blys til
staðar. Blysin voru búin lil úr
köðlum sem voru táðir í sundur
ögn fyrir Ögn; þá vinnu önnuð-
úst böi'nin og byi'juðu oft á þvi
löngu fvrir jól, því mikið þurfti
i mörg blys. Þessu var svo vafið
vandlega á endann á langi'i
stöng og var borin í tóvei'kið
tjara og lýsi; síðan var tuskum
vafið utan yfir og yst var svo
þéttvafið snæi'i. Blysin voi-u
mjög mismunandi að stærð, en
stærðin miðaðist við það lxvort
barn eða fulloi'ðinn átti að bera.
Væru blysin stór og vel til búin
gátu þau logað vel í klukku-
stund eða meira. Ekki var venja
að kvenfólk bæri blys.
Þegar orðið var dimt söfnuð-
ust blysberarnif saraan með
blysin; voru þau nú vætl i olíu
og siðan kveikt í og þeim brugð-
ið á loft og síðan gengið um
með ]>au fylktu liði; varð af
þeim bál mikið, sem sást um
allan innanverðan Breiðafjörð.
Þegar búið var að kveikja í
einni eyjunni var óðar svarað í
hinum. Á svipstundu komu nú
upp raðir af blysum og vitum
svo að segja hvert sem litið var,
]>ví vitar sáust einnig af fjölda
bæja á landi, bæði í austri,
suðri og vesti'i. Mátti svo segja,
að Bi'eiðafjörður væri allur
up])ljómaður. Það var stór-
fengleg og ánægjuleg sjón i
senn. Meðan blysin voru borin,
voru allir úti að hoi'fa á, sem
úr bænum gátu komist. Komið
gat það fyrir að veður væri svo
óhagstætt á gamlái'sdag að
blysförinni væri frestað til
])rettándans,en sjaldan mun það
lxafa kornið fyrir að hún færist
fyrir með öllu, þótt þátttakan
væri nokkuð misjöfn.
Á gamlái'skvöld var hátíða-
höldum hagað mjög svipað og
á aðfangadagskvöldið, að öðru
en því að nú skemtu menn sér
aðallega við spil og þótti sjálf-
sagt að spila sem lengst fram
eftir nóttinni, að spila út árið.
Venja var að láta lifa ljós .alla
nóttina eins og á jólanóttina. Á
nýársdagsmorgun árnuðu menn
hverjir öði'um gleðilegs árs og
])ökkuðu hið liðna. Á nýársdag
skenxtu menn sér svipað og á
(jÍRAFFAR í DÁRAGARÐI,
jólum, en þá var nokkuð út af
brugðið með mat. Þá var venja
að skanxta hverjum manni fyrir
sig hinn svokallaða nýái-smat.
Var sá skamtur svo ríflegur að
nægja mundi hverjum meðal-
manni í marga daga. Hverjum
manni var skamtað sem hér
segir: Ein rúgkaka vænleg,
um 40 cm. í þvermál og oft
önnur minni með; var stóra
kakan notuð sem diskur, henni
fylgdi svo vænt smjörstykki,
sem áætlað var nægilegt viðbit
við forðanum, einn lundabaggi
heill, en magáll reyktui', rikl-
ings-strengsli og væn í-afabelt-
issteik. Matur þessi var ætlaður
fólkinu, sem aukabiti þvi til
gamans og gátu þeir, sem
geymnir voru, treint sér liann
lengi, enda ekki frítt, að metn-
aður myndaðist milli sumra um
að eiga hann sem lengst, jafnvel
þar til hann var farinn að
skemmast, en auðvitað fór það
eftir ]xví hvað liver var lundlag-
inn til. Það var líka siður að
skamta á sama liátt á sunxai'-
daginn fyrsta. Hvaðan þessi
siður liefir verið í'Uiminn veit
eg ekki og heldur ekki hvort
það hefir tíðkast í öðrum lands-
lilutum, en að því er eg best
veit, mun það ekki hafa verið
gert norðanlands eða austan.
Um vorhátíðamar er fátt að
segja, og var þá lítið um skemt-
anii', en ])á var farið til kii'kju
bæði á páskum og hvitasunnu
úr öllum eyjum. Fór þá í það
allur dagurinn og þeir, sem
heima sátu áttu nóg með að
gegna nauðsynlegum störfum.
Læt eg hér staðar numið þótt
fleira mætti eflaust segja. Sum-
ir af nefndum siðum eru nú
með öllu aflagðir eins og með
nýársmatinn og fleira og verða
vart uppteknir aftur. Gæti sjálf-
sagt verið gaman að fá saman-
hurð á hátíðasiðum úr sem
flestum héruðum.
Theódór Daníelsson.
8