Vísir - 24.12.1939, Side 43

Vísir - 24.12.1939, Side 43
VÍSIR 3? Þessu svarar Byron að nokkru leyti sjálfur í bréfi til kunningja síns. Þar skrifar hann á þessa% leiS: „Fái eg a'ö lifa í tíu ár enn,^; þá munuö þér sjá, aö eg er enn ’ ekki dauður úr öllum æöum. Eg á ekki viö skáldskapinn, því hann er mér ekki nema aukaatriði. Yð- ur finst það máske einkennilegt, :aö eg skuli segja þetta, en mér finst sjálfum, að skáldskapurinn sé ekki mín raunverulega köllun. Ef mér endist aldur, mun eg byrja á stai fi, sem heimspekingar kom- andi tíma munu b(rjóta heilann um. Þetta skal verða efnt, sé þess ■ nokkur kostur.“ — Á þessum orð- um var auðfundið, að Byron hefir metið starfið og umbæturnar sjálf- ar mikið meir en hugsjónirnar, sem láu þeim til grundvallar. Löngun Byrons til að breyta hugsjónum sínum í veruleika og staðreyndir, varð með hverjum deginum sem leið ákafari. Frá þvi að hann byrjaði að skrifa voru rit hans öll þrungin af þeirri brenn- andi þrá, að brjóta öll bönd kúg- unar, vana, siðakerfa, ótta og skriðdýrsháttar og gera manninn að því, sem hann átti að vera — imynd guðs síns. Og þessi kenn- ing var borin fram af svo miklum og brennandi sannfæringarkrafti, að alla Evrópu setti hljóða við og hún hlustaði á rödd þessa hróp- anda, því hún gat ekki annað. By- ron talaði til hjartnanna og kveikti þar hinn sama eld, sem bjó og brann í hans eigin brjósti. En sá var aðeins munurinn, að sá eldur, sem kviknaði í brjóstum einstak- linga viðsvegar úti um heim, kuln- aði víðasthvar út, því hann skorti magn til að brenna. En Byron sjálfur var sem eldfjall í umbrot- um, hann haíði nægilegt magn ti! að gjósa og' byltast. Hugur Byrons beindist til Grikklands, en þar braust út upp- reisn grískra þjóðernissinna gegn undirokun og harðstjórn Tyrkja. ,,Eg fer til Hellas og þar mun eg' sennilega deyja“, sagði Byron við vin-sinn. Hann hlóð skip með skot- vopnum, skotfærum, meðölum og sáraumbúðum og lét í haf frá Gen- ua sumarið 1B23. Eftir alllanga <lvöl á jónisku eyjunum fór hann um nótt á hraðskreiðu seglskipi og stefndi ■1G rikkland.Á undraverðan hátt komst hann í gegn um tyrk- nesku sjóvarnirnar, var eltur af herskipi, cn komst undan því, lenti síðan í fárviðri og komst loks i byrjun janúarmánaðar 1824, eft- ir sjóhrakninga og hættulega ferð, til Missolunghi, höfuðborgar Vest- ur-Grikklands. Fallbyssuskot dundu, hergöngulög hljómuðu og margfaldar raðir hermanna stóðu í heiðursfylkingu til að fagna Byron lávarði, er hann sté á land. Honum var fagnað af meiri inni- leik en nokkurum konungi hefir verið fagnað, og hin undirokaða gríska þjóð bygði vonir sínar á þessum einstæða boðbera frelsis- ins. Gagntekinn af ákafa og áhuga fyrir frelsismálum Grikkja hófst Byron þegar handa og stofnaði fyrst 500 manna hersveit, er ltann ætlaði sem úrvals árásarhersveit gegn þýðingarmiklum hervirkjum Tyrkja í Lepanto. En þessir viltu og taumlausu Grikkir hugsuðu rneira um sjálfa sig i augnablikinu en um sjálfsteeði þjóðar sinnar, GLEÐILEG JÓL! Viðtækjaverslun ríkisins, GLEÐILEG JÓL! Verslun Sigurðar Halldórssonar, Öldugötu 20. Þegar þeir áttu að ráðast gegn virkinu, gerðu þeir uppreisn gegn Byron og það kostaði miklar fórn- ir og mikla fyrirhöfn fyrir hann, að losa sig við þá. Þá stofnaði Byron fallbyssulið, er samanstóð af evrópiskum sjálf- boðaliðum. En ennþá einu sinni gerðu árásarsveitarmennirnir upp- reisn og stofnuðu baráttumálum sinnar eigin þjóðar í voða. ' Til þess að stilla til friðar og koma kyrð á mannfjöldann aftur, reið Byron ásamt fylgdarliði sínu um götur borgarinnar og þangað sem uppreisnin stóð yfir. í þeirri ferð lentJÍ hann í þrumuveðri, gegn- blotnaði, ofkældist og veiktist. Hitasótt lamaði smám saman kafta hans. Byron beið dauða sins með hel- lenskri ró. „Grikkland!“ hrópaði hann. „Þér hef eg fórnað eignum mínum, tíma og heilsu. Nú fórna eg þér lífi mínu!“ Hann andaðist um páskaleytið 1824, með nafn systur sinnar á vörunum. Hann varð tæplega 36 ára að aldri, bráð- þroska ofurmenni, eins og Raffael og Mozart, og eitthvert eldheit- asta skáld, sem England hefir fætt. Hann dó í baráttu fyrir hugsjón lífs síns, hugsjón, er gagntók alt hans líf og mótaði alla hans bar- áttu. Öll hans ódauðlegu skáld- rit voru skrifuð í anda þessarar hugsjónar — en það var frelsið. Alt líf, alt starf og umf-ram alt dauði Byrons var eitt óslitið hróp eftir frelsi — meira frelsi. Þetta hróp — það var vegur Byrons til ódaúðleikans. Samið með hliðsjón af ritgerð eftir Claus Schrempf. Þ. J. £ 8 I GLEÐILEG JÚL! Húsgagnaverslun Friðriks Þorsteinssonar. ;s 5Í 55 55 GLEÐILEG JÓL! Klæðaverslun Andrésar Andréssonar h.f. 50000000080000000000000000! S « GLEÐILEG .lÚL! o Prjónastofan H L1N. iööi Hiiiotií itsoiKStioa'ii sooooí íöo; , 10

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.