Vísir - 24.12.1939, Blaðsíða 44

Vísir - 24.12.1939, Blaðsíða 44
38 VlSIR Quðný Sigurðardóttlr: Uppsagnarbréfió * /'"I ÓLIN voru að koma. Að- I fangadagurinn hafði 0 haldið innreið sína með öllum sínum önnum og um- stangi. — Jólagæsin beið þess að verða etin. — Allir höfðu á- kaflega mikið að gera og eng- inn tíma til neins. Verslanir borgarinnar voru troðfullar af fólki. Afgreiðslu- stúlkurnar sýndu varninginn með undursamlegri þolinmæði, og þegar viðskiftavinurinn fór án þess að kaupa, brostu þær sínu blíðasta brosi, rétt eins og þær væru bornar í þennan beim til þess að sinna dutlung- um annara. Göturnar voru uppljómaðar og iðandi af hvíldarlausum manneskjum. Á borninu við Landsbankann stóð lítill dreng- ur og hrópaði: Vísir og Alþýðu- ldaðið! Annar drengur endur- tók sömu orðin, eins og berg- mál. Tvö lítil börn stóðu við búðarglugga og borfðu Ijóm- andi augum á dýrðina fyrir inn- an. Litlu nefin námu við rúð- una og flöttust út eins og pönnukaka. Aðeins eitt vantaði þó,------snjó--------hægfara logndrífu, hvíta jörð og blik- andi snjó. Það var rign- ing, hellirigning. Vatnið rann í Iækjum eftir götunum, stærð- ar pollar mynduðust, sem bil- arnir þeyttu svo aftur upp í loftið og á bvað sem fyrir var. Þenna dag virtist snjórinn jafn fjarlægur og á sólheitum sum- ardegi. Regnhlífarnar Iyftust hver yfir aðra. Kápukrögum var brett upp og húfur og hatt- ar komust ögn neðar á ennið en viðeigandi hefði þótt í góðu veðri. 1 blómaversluninni „Liljan“ varð augnabliks hlé á ösinni. Stúlkurnar notuðu tækifærið til að spjalla um jólin. — Nú var frú Jónsson erfið, fanst ykkur ekki? sagði Erla um leið og bún leit i stóran spegil, sem hékk á veggnum, umluktan blómum á allar hlið- ar. — — .Tú, hún er svo svakalega leiðinleg, að hún getur drepið mann með orðunum einum svaraði Heiða. — Látið þið nú aumingja frú Jónsson í friði, Hún ep ágæt þrátt fyrir alt, sagði Lina. r— Eg vildi óska, gð klukkan vœri svq SéPi 8$ gfWga ð&HHð það sem hún á ófarið að sex. — Eg þrái æfintýri i kvöld, stelpur. — Eitthvað verulega skemtilegt æfintýri, sagði Anna og hagræddi blómum í stórri skrautkörfu, er stóð á einu borðinu. — Eg get eklci kveikt á kertum og sungið jólasálma í rigningu. — Þráir þú æfintýri, mann- eskjan harðtrúlofuð? spurði Erla og hætti að snyrta sig fyr- ir speglinum, svo hissa varð hún. — Ef eg væri trúlofuð eins fallegum manni og þú, myndi líf mitt vera fullkomið. — Eg þrái æfintýri, ef til vill einmitt af því að eg er trú- lofuð Davíð. Við elskumst ekki eins og fólk gerir nú á dögum. Við vorum ekki nema sjö ára, þegar við ákváðum að gifta okkur og tíu árum seinna keyptum við hringana einungis af þvi, að það hafði altaf staðið til. Við undirbjuggum samn- ing þess efnis, að ef annaðhvort okkar óskaði skilnaðar, skyldi hitt draga sig þykkjulaust í hlé. Siðan eru liðin fimm ár og alt er við það sama. Við erum á- reiðanlega bestu félagar í heimi og bráðum giftum við okkur sjálfsagt. En fyrst vil eg skemta mér, sjá lífið og kynnast þvi. — Svei, hvað þú ert léttúðug, sagði Lina hneyksluð. — Hvað heldur þú, að Davíð segði, ef hann heyrði til þin. — Uss, vertu róleg, góða mín. Eg hefi oft sagt honum þetta, og við erum algerlega sammála i þessu efni eins og öðrum. — .Tá, en nú eru jólin að koma, og þá átt þú að vera heiðarleg stúlka og hrinda frá þér öllum ósæmilegum hugsun- um, sagði Heiða í umvöndunar- tón. — Beiddu fyrir þér væna mín. Eg hefi ekki gert annað í þessu lifi, en að vera heiðarleg og aft- ur heiðarleg. En nú langar mig til að \ita hvernig það er að vera óheiðarleg, og það er alt þessari eilífu rigningu að kenna. Hún umturnar minum betra manni. Rigning á jólunum er jafn fjarri sanni og snjór á h vitasunnunn i. f þessu kom pósturinn inn og afhentj henni bréf. Hún opn- aði umslagið og kastaði þvi í bréfakörfu, sem stóð við fætur henni, Bréfið var vélritað Qg fcfnl þQB8 á þefisa leiðt GLEÐILEG JÓL! 1 | 1 1 Bifreiðcceinkasala ríkisins. ______________________________@5 GLEÐILEG JÓL! KJÖTBÚÐIN BORG. GLEÐILEG JÓL! Verslunin MANCHESTER.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.