Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1996, Qupperneq 23
Tækniannáll 21
Almennt má segja að ýmislegt bendi til þess að bjartara sé framundan hjá verkfræðingum og
tæknifræðingum um atvinnuhorfur í landinu eftir margra ára deyfð.
3.2 Félag ráögjafarverkfræöinga
Á aðalfundi félagsins 1994 voru félagsmenn 104 og FRV-fyrirtæki 32.
Hér fyrir neðan kemur fram hvernig fjöldi félaga og starfsfólks hefur breyst á undanförnum
árum.
Samningar: Samið var við SV,
ST og FTT. Samningar við SV
voru samþykktir á full-
trúaráðsfundi 14. júlí, en
samningar við ST 30. septem-
ber. Á þeim fundi var jafnframt
samþykkt umboð til samninganefndar til að ganga frá samningum við FTT.
Skattamál: Nokkrar verkfræðistofur hafa á undanförnum árum orðið fyrir óþægindum og
kostnaði vegna herts skattaeftirlits og var m.a. hætt að viðurkenna ýmsa kostnaðarliði, sem
áður hafa verið viðurkenndir sem eðlilegur rekstrarkostnaður, svo sem félagsgjöld, risna, starfs-
mannakostnaður o.fl. Félagið mótmælti þessari aðgangshörku skattayfirvalda. I framhaldi af
því skipaði fjármálaráðherra nefnd árið 1993, sem hafði það verkefni að endurskoða fram-
kvæmd skattalaga, m.a. hvað teldist eðlilegur rekstrarkostnaður. 2. september 1994 gaf fjár-
málaráðherra út reglugerð um frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi.
Þar segir m.a. að ýmis starfsmannakostnaður sé frádráttarbær, svo sem kostnaður við árshátíð,
jólagleði og starfsmannaferðir, enn fremur kostnaður við almenna fyrirbyggjandi heil-
brigðisþjónustu og heilsubótaraðstöðu, kostnaður vegna kaffiveitinga í vinnutíma og
námskeiða, sem tengjast starfinu beint. Auk þess teljast félagsgjöld til rekstrarkostnaðar, en
ríkisskattstjóri mun halda lista yfir félög þar sem félagsgjöld verða frádráttarbær. FRV hefur
nýlega fengið bréf þar sem tilkynnt er að FRV sé á þessum lista. Enn fremur eru félagsgjöld
til VFÍ og TFÍ frádráttarbær, ef viðkomandi stundar sjálfstæðan rekstur.
Skilmálar um verkfræðiráðgjöf og samkeppnisráð: Samkeppnismál voru eitt aðalvið-
fangsefni stjórnar á starfsárinu. Samkeppnisráð úrskurðaði 24. júní 1994 að ekki væri heimilt
að fjalla um þóknun í Skilmálum um verkfræðiráðgjöf, hvorki upphæð þóknunar né form henn-
ar. Ekki verður úrskurðurinn skilinn öðru vísi en svo að notkun skilmálanna að öðru leyti sé
heimil. Urskurðurinn var ekki kærður.
Samkeppnismál: Allmikið var fjallað um útboð á hönnun, m.a. var vinnubrögðum við forval
og samkeppni um svæðisskipulag á miðhálendinu mótmælt. I byrjun nóvember hófust
viðræður við fulltrúa fjármálaráðuneytisins og Framkvæmdasýslunnar urn samkeppnisútboð
og val á ráðgjöfum.
Afkomukönnun: Aðeins ellefu fyrirtæki svöruðu afkomukönnun, en hjá þessum fyrirtækjum
vinna um 230 manns. Til þess að könnunin gefi sem réttasta mynd er nauðsynlegt að sem allra
flestir sendi inn upplýsingar og verður þátttaka vonandi betri í næstu könnun. Helstu
niðurstöður úr afkomukönnunum 1989-1993 koma fram í eftirfarandi töflu og er miðað við
verðlag 1993.
Launakönnun: Gerð var launakönnun á vegum félagsins og bárust upplýsingar um laun 149
verk- og tæknifræðinga, sem vinna hjá 15 FRV-fyrirtækjum. Niðurstöður hafa verið sendar
aðildarfyrirtækjum FRV.
Samkeppni opinberra stofnana við verkfræðistofur: Nokkuð var fjallað um þessi mál,
en ekki hefur verið frekar aðhafst að sinni. Tilhneiging til að færa verkefni inn á opinberar
1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995
Félagar í FRV 95 102 106 109 106 104 105
Fjöldi fyrirtækja 30 31 32 32 32 32 32
Fjöldi starfsfólks 405 395 405 405 380 375 370