Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1996, Blaðsíða 30
28 Árbók VFÍ/TFÍ 1994/95
Þá hefur verið haldið áfram rannsóknum vegna framleiðslu á járnoxíð litarefnum, en ekki
hefur verið tekin ákvörðun um áframhald þessa verkefnis.
Nýjum pökkunarbúnaði fyrir stórsekki hefur verið komið upp í verksmiðjunni og var 150
tonnum af kísilgúr pakkað í þessar nýju umbúðir á árinu 1994. Ekki eru ráðgerðar miklar fjár-
festingar árið 1995 og lúta þær aðallega að endurbótum á búnaði verksmiðjunnar.
Mikil umskipti hafa orðið á rekstri félagsins á árinu 1994. Hagnaður var af reglulegri starf-
semi í fyrsta sinn síðan 1991. Afram verður haldið aðgerðum til að bæta rekstur félagsins með
lækkun á kostnaði jafnframt því sem hugað verður að bættum búnaði verksmiðjunnar.
f febrúar 1995 samþykkti Alþingi breytingar á lögum nr. 80/1966 um kísilgúrverksmiðju
við Mývatn þess efnis að tekjuskattar félagsins sem bundinn er í lögum lækki úr 45% í 36%
til samræmis við lækkun tekjuskatts hjá öðrum fyrirtækjum á íslandi. Breytingin öðlaðist
þegar gildi og tekur einnig til tekna fyrir árin 1993 og 1994.
6.2.3 Aburðarverksmiðjan hf.
Félagið Áburðarverksmiðjan hf. var stofnað árið 1952. Félagið var í meirihlutaeign ríkisins.
Árið 1969 keypti ríkið hluti annarra hluthafa og var nafni fyrirtækisins breytt í Áburðar-
verksmiðju ríkisins. Með lögum nr. 89/1994 var ákveðið að stofna hlutafélag um Áburð-
arverksmiðju ríkisins. Stofnfundurinn var haldinn 28. júní 1994. Þann 1. júlí 1994 yfirtók
Áburðarverksmiðjan hf. rekstur Áburðarverksmiðju ríkisins.
Framleiðsla: Rekstur verksmiðja Áburðarverksmiðjunnar gekk vel á árinu 1994. Alls voru
framleidd 8.966 tonn af ammóníaki. Til viðbótar eigin framleiðslu voru flutt inn 2.903 tonn af
ammóníaki. í maímánuði 1994 urðu nokkrar framleiðslutafir vegna bilunar í sýruverksmiðju
sem leiddu til tímabundins skorts á vissum áburðartegundum. 1 blöndunarverksmiðjunni voru
alls framleidd 51.670 tonn af tilbúnum áburði.
Á árinu 1994 voru gerðar breytingar á umbúðum utan um áburð. Áburðurinn er nú sekkj-
aður í 40 kg sekki sem staflað er á einnota vörubretti en áburðurinn var áður sekkjaður í 50 kg
sekki sem staflað var á margnota vörubretti. Ennfremur var á árinu tekin í notkun ný sekkjun-
arstöð fyrir stórsekki og býður Áburðarverksmiðjan nú áburð í 600 kg sekkjum auk 40 kg
sekkjanna.
Sala: Á árinu 1994 nam heildarsalan á tilbúnum áburði 54 þúsund tonnum. Er það sama magn
og selt var árið 1993.
Afkoma: Árið 1994 námu rekstrartekjur Áburðarverksmiðju ríkisins og síðar Áburðar-
verksmiðjunnar hf. samtals 1.114,9 milljónum króna. Hagnaður nam 63,4 milljónum króna
eftir vexti og afskriftir. Af eignum voru afskrifaðar 87,6 milljónir króna.
Fjárfestingar: Fjárfestingar námu 32,5 milljónum króna.
Með tilkomu stórsekkjunarstöðvar getur Áburðarverksmiðjan hf. nú mætt vaxandi eftir-
spurn viðskiptavina sinna eftir áburði í 600 kg sekkjum.
Rafskautsketill verksmiðjunnar var endurbyggður og endurbættur á árinu. Honum er nú
stjórnað frá stjórnstöð verksmiðjanna með aðstoð tölvu.
Verðlagning: I janúar 1994 ákvað stjórn Áburðarverksmiðju ríkisins að lækka söluverð
áburðar um 3% frá því verði sem gilti á árinu 1993. Miðað við fast verðlag hefur verð á áburði
frá Áburðarverksmiðjunni lækkað
um 20% á árabilinu 1989-1994.
Áburðarframleiðsla í 40 ár: Vorið
1994 voru 40 ár liðin frá því að
framleiðsla á áburði hófst hjá
Áburðarverksmiðjunni. Þeirra tíma-
Stórsekkjunarstöö 16,9 m.kr.
Sjálfvirknibúnaður í blöndunarverksmiðju 7,8 m.kr.
Endurbygging rafskautsketils 6,6 m.kr.
Ýmislegt 1,2 m.kr.
Alls 32,5 m.kr.