Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1996, Page 25
Tækniannáll 23
unin fara fram sérstaka könnun á stöðu þeirra. Virðist hún gefa til kynna að Byggingarsjóður
ríkisins standi traustum fótum en styrkja þurfi Byggingarsjóð verkamanna svo að hann búi einn-
ig við góðan hag. Almennt séð stendur
stofnunin vel að vígi.
Á árinu 1995 voru 40 ár liðin frá því að
húsnæðisstjórn hóf störf. Jafnframt er svo
litið á að þar með hafi Húsnæðisstofnun
litið dagsins ljós þótt hún hafi ekki verið
stofnsett fyrr en 1957. Þegar stjórnin tók
til starfa voru langtímalán til húsbygginga
tæpast fyrir hendi í þjóðfélaginu. I mörg ár
þar á undan hafði hlaðist upp gífurleg
lánsfjárþörf vegna íbúðabygginga. Hún
hafði þó ekki úr miklum fjármunum að
spila fyrstu árin og reyndar var það ekki
fyrr en um miðjan sjöunda áratuginn sem
úr rættist að gagni. Sennilega hafa meiri
fjármunir farið um hendur húsnæðis-
málastjórnar á þessum fjórum áratugum en
gríðarlegu fjármagni hvað eftir annað alla tíð
5 Orkumál
5.1 Orkunotkun og orkuvinnsla
Frumorka í þjóðarbúskap íslendinga nam 2369 þúsund tonnum að olíugildi árið 1994, þ.e. hún
var jöfn orkunni í svona mörgum tonnum af olíu. Reiknað beint í orkueiningum var frumorkan
99.2 petajúl (PJ). Miðað við íbúafjölda landsins var orkunotkunin 372 gígajúl (GJ) á mann
sem er með því mesta sem gerist í heiminum. Til samanburðar má nefna að hún er 16 GJ á
mann að meðaltali í Afríkulöndum sunnan Sahara.
Árið 1994 voru flutt inn 736 þús. tonn af olíuvörum og 102 tonn af steinkolum. Smávegis
magn af íljótandi olíugösum er hér talið nteð olíuvörum.
í árslok 1994 sá jarðvarmi fyrir 85,6% af orkuþörfum til húshitunar á íslandi og um 84%
landsmanna hituðu hús sín með jarðhita.
5.2 Vinnsla og notkun raforku
Heildarraforkuvinnsla á árinu 1994 var 4774 GWh. Uppruni raforkunar var 94,5% úr
vatnsorku, 5,4% úr jarðhita og 0,1% úr eldsneyti. Tegund raforkunnar var 81,8% fastaorka og
18,2% ótryggð orka. Heildarvinnsla og notkun jókst um 1,1%. Almenn raforkunotkun jókst
um 1,5%. Þessi notkun er ávallt nokkuð háð hitastigi sem er síbreytilegt frá ári til árs. Til að
fá sambærilegar notkunartölur um almenna raforkunotkun þarf því að leiðrétta fyrir fráviki
árshitans frá meðaltali hans til langs tíma. Sé það gert óx almenna notkunin um 0,9% 1994 í
stað 1,5%.
5.3 Orkuframkvæmdir og rekstur orkukerfisins
5.3.1 Landsvirkjun
Mjög litlar framkvæmdir voru hjá Landsvirkjun á árinu 1994. Þær voru helstar að lokið var
við að skipta út rafalasátrum í Búrfellsstöð og fram fóru viðgerðir á inntaksvirkjum
Steingrímsstöðvar við Þingvallavatn.
Mynd 8 Fjöldi kröfulýsinga og hlutfallsleg skipting.
Heimild Húsnœöisstofnun ríkisins.
flestra annarra. Henni hefur verið trúað fyrir