Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1996, Page 41

Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1996, Page 41
Tækniannáll 39 kerfi, sem hefur verið þróað á undanförnum átta árum af Kerfisverkfræðistofu Háskólans, hefur verið tekið í notkun í áföngum í gömlu flugstjórnarmiðstöðinni. Unnið hefur verið að frekari þróun þessa kerfis og var ný og mjög fullkomin útgáfa þess tekin í notkun vorið 1995. Við það tækifæri var eldri ratsjárbúnaður tekinn úr notkun, þannig að núverandi rat- sjárvinnslu- og skjákerfi hefur að öllu leyti verið þróað hér á landi. Fjarskiptastjórnkerfi: Fjarskiptastjórnkerfið stjórnar aðgangi að öllum fjarskiptarásum við flugvélar á flugi og stöðvar á jörðu niðri. Kerfið, sem er í lokaprófunum hjá INTELECT lnc. í Bandaríkjunum, er al' nýrri kynslóð fjarskiptastjórnkerfa, þar sem örtölvutækni er beitt til hins ýtrasta. Kerfið verður athent í byrjun næsta árs og verður tekið í notkun skömmu síðar. Flugupplýsingakerfið veitir flugumferðarstjórum greiðan aðgang að ýmsum gögnum, sem geta verið á textaformi eða í myndrænu formi. Þetta kerfi, sem hefur verið þróað hérlendis af Fjarhönnun hf., er nú tilbúið til notkunar. Lagna- og hússtjórnarkerfi: Eins og við má búast í tæknivæddu umhverft er lagnakerfi flugstjórnarmiðstöðvarinnar margþætt. Auk hefðbundinna lagna fyrir rafmagn, vatnskerfi og loftræstingu eru tölvulagnir vegna ofangreindra kerfa afar flóknar. Þessi lagnakerfi ásamt hússtjórnarkerfi byggingarinnar hlutu á árinu sérstaka viðurkenningu Lagnafélags Islands. Staðsetningarkerfi: Auk ofangreindra verkefna er unnið að því að innleiða notkun GPS staðsetningarkerfisins í flugleiðsögu hér á landi. Sérstökum GPS landmælingum var lokið á síðastliðnu sumri og unnið er að því að hanna GPS aðflug að flugvöllum landsins. Jafnframt er unnið að gagnasöfnun og ýmis konar prófunum, sem nauðsynlegar eru til að meta nákvæmni og áreiðanleika þessa kerfis. Þá eru í undirbúningi samvinnuverkefni við bandarísku flug- málastjórnina á þessu sviði. 7.4 Fjarskipti Samskipta og upplýsingatækni hefur þróast mjög ört á síðustu árum. A sama tíma hefur rekstr- arumhverfið breyst á þann hátt að dregið hefur úr einkaleyfunt og frjálsræði aukið og er útlit fyrir að sú þróun haldi áfram. Samkeppnin eykst stöðugt og þá ekki eingöngu við innlend fyrirtæki heldur einnig alþjóðleg fyrirtæki, bæði í póst og fjarskiptaþjónustu. Reyndar stefnir í að öll arðbær fyrirtæki fái santkeppni frá erlendum aðilunt í náinni framtíð. Á árinu 1994 var lokið við að tengja CANTAT 3 við Islenska fjarskiptanetið. Þessi nýja sambandsleið til útlanda myndar alþjóðlega hágæðaupplýsingabraut fyrir komandi tíma og grundvallar frekar möguleika þjóðarinnar til samskipta og samkeppni á alþjóðlegum markaði. Lokið er lagningu Ijósleiðara sent tengir stærri bæjarfélög landsins en með honum opnast ný leið til að flytja upplýsingar og veita allar tegundir fjarskiptaþjónustu. Samtímis hafa verið byggðar varaleiðir, aðallega með örbylgjum, til að tryggja enn frekara öryggi. Fyrir nokkrum árum var ráðist í það verkefni að setja upp stafrænar símstöðvar í stað eldri sjálfvirkra stöðva og er því verki að ljúka. Einnig hafa verið byggð sérstök gagnallutningskerfi og ekki rná gleynta farsímakerfunum. Öll þessi nýju kerfi eru hagkvæm í rekstri og bjóða upp á margvíslegar þjónustugreinar. Fyrir skömmu var talað um samruna milli síma- og tölvukerfa en fljótlega bætist myndin einnig í samrunann og eitt stórt upplýsingakerfi, margmiðlun, fyrir tal, gögn og sjónvarp fæst. I anda stefnuskrár póstsins, P-2000, var unnið á árinu 1994 að því að þróa svonefnda fyrirtækjaþjónustu. Eins og nafnið bendir til er þar um að ræða þjónustu við fyrirtæki og stofn- anir sem felst í því m.a. að póstur er afhentur og sóttur reglulega. Einnig er því sambandi boðin ýmis sérþjónusta eins og boðpóstur. I árslok liöfðu 130 fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu gerst áskrifendur að þessari þjónustu og 65 á Akureyri. Vel var haldið ál'ram á árinu 1994 með tengingu símnotenda á öllu landinu við stafrænar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220

x

Árbók VFÍ/TFÍ

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók VFÍ/TFÍ
https://timarit.is/publication/899

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.