Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1996, Page 43
TækniannáH 41
Króatía: í apríl 1995 var lokið við hagkvæmniathugun jarðhitanýtingar í NA-Króatíu fyrir
NAFTAPLIN gasfyrirtækið í Zagreb. Gera verður ráð fyrir að framhald verkefnisins, sem
Virkir-Orkint gerir sér vonir um að taka þátt í, dragist vegna ófriðarástands í fyrrum
Júgóslavíu.
Kína: Virkir-Orkint gerði samning um rágjöf, hönnun, umsjón og innkaup á búnaði og efni
vegna hitaveitu í borginni Tanggu fyrir um 2,5 milljónir bandaríkjadala. Norræni fjárfestinga-
bankinn og Norræni þróunarsjóðurinn veita lán vegna erlenda kostnaðarins. Samkvæmt
samningi sér Virkir-Orkint unt útboð og innkaup á öllurn búnaði og var þeint verkþætti að
mestu lokið í október 1995. Búnaðurinn verður kominn til Kína í desember 1995 samkvæmt
áætlun. All margir Islendingar verða tímabundið í Tanggu meðan á framkvæmdum stendur, en
þeim líkur að mestu 1996. Megin hluti búnaðarins kemur frá Norðurlöndum og má nefna að
hitaveiturör eru keypt frá SET h.f. á Selfossi og stjórnskápar frá Rafkóp-Samvirki í Kópavogi.
8.2 Marel
Marel hf. hefur skilgreint hlutverk sitt. Hlutverk Marel er að nýta íslenskt hugvit og þekkingu
og reynslu í fiskvinnslu til þess að þróa, hanna og framleiða tæki og hugbúnaðarkerfi sem auka
hagkvæmni í matvælavinnslu. Hlutverk Marel er ennfremur að vera arðbært, vaxandi fyrir-
tæki, sem selur framleiðslu sína og þekkingu um allan heim, þekkt fyrir gæði í framleiðslu og
þjónustu og framsækna vöruþróun.
Á árinu 1994 var megináhersla lögð á markaðssókn og aukningu framleiðslugetu til þess að
ná því markmiði sem sett var á árinu 1992 að tvöfalda veltu móðurfélagsins á 3 til 5 árum.
Veltumarkmiðið, uppfært með byggingarvísitölu, er nú 858,4 milljónir króna en velta móður-
félagsins náði 728,3 á árinu 1994, tveimur árum eftir að markmiðið var sett. Góðar horfur eru
á að markmið félagsins náist á árinu 1995.
Myiul 17 Fjöldi starfsmanna Marel hf. og dótturfyrirtcekja. Heimilcl Marel hf.