Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1996, Page 44
42 Árbók VFÍ/TFÍ 1994/95
800
700
600
500
400
300
200
100
0
1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994
Mynd 18 Rekstrartekjur Marel hf -samstœða á verðlagi 1994.
Sala á íslandi á árinu 1994 var einkum á stærri
vinnslukerfum, flæðilínum og flokkurum, en mörg
fiskvinnslufyrirtæki fjárfestu í nýjum tækjabúnaði til að
auka hagkvæmni vinnslunnar.
Veruleg söluaukning varð í Norður-Ameríku og
hækkaði salan úr 93,8 milljónum króna árið 1993 í
222,6 milljónir króna árið 1994 eða um 137%.
Mikill uppgangur er í norskum fiskiðnaði vegna
aukins þorskveiðikvóta og var sala á vörum fyrirtæk-
isins í Noregi sú mesta frá upphafi. Sala þangað nam
157,9 milljónum króna sem er meira en helmings
aukning frá fyrra ári.
Góður árangur náðist í sölu á vörum fyrirtækisins
til S-Afríku, Namebíu og Brasilíu. S-Afríka og
Namibía eru nýtt markaðssvæði fyrir fyrirtækið og hefur Marel fylgt eftir miklum uppgangi í
veiðum og vinnslu á þessum slóðum. Brasílía er einn af stærstu framleiðendum á kjúklingum
í heiminum og skilaði markaðsátak sem þar var gert góðum árangri á árinu og seldust þangað
nokkur ílokkunarkerfi.
Á seinni hluta ársins 1994 var hafin kynning á nýrri framleiðsluvöru, skurðarvél fyrir fisk-
flök sem byggir á tölvusjón. Skurðarvélin hefur fengið góðar móttökur á markaðinum, en tæki
byggð á tölvusjón eru nú meira áberandi meðal söluvara fyrirtækisins en áður.
8.3 Jarðhitaskóli Háskóla Sameinuðu Þjóðanna
Árið 1994 var sextánda starfsár Jarðhitaskólans. Nemendur voru fleiri en nokkru sinni fyrr eða
fimmtán frá ellefu löndum. Þeir komu frá Kína (3), Búlgaríu (2), E1 Salvador (2), Alsír (1),
Egyptalandi (1), Filippseyjum (1), Jórdaníu (1), Rússlandi (1) og Uganda (1). Þrettán nemend-
Heimild Marel hf.
Evrópa
37%
Noröur-Amerika
31%
Rússtand
3%
Island
14%
Önnur lönd
15%
Mynd 19 Skipting sölu á markaðs-
svœði. Heimild Marel hf.