Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1996, Page 50
48 Árbók VFÍ/TFÍ 1994/95
Rekstrardeild: í rekstrardeild er námsbrautin í iðnrekstrarfræði stærst. Nám þar tekur tvö ár
að loknu stúdentsprófi og gerð er krafa um tveggja ára starfsreynslu áður en nám er hafið. í
boði erum þrjú svið, framleiðslu-, markaðs- og útvegssvið. Sérstakt hálfs árs nám er í boði
fyrir iðnfræðinga, tæknifræðinga og verkfræðinga sem að því loknu fá skírteini sem iðnrekstr-
arfræðingar af tæknisviði. Nú er einnig starfrækt eins og hálfs árs viðbótarnám fyrir iðnrek-
strarfræðinga í útflutningsmarkaðsfræði til BS-prófs. Iðnaðartæknifræði var í byrjun tveggja
og hálfs árs nám ofan á iðnrekstrarfræði og lauk með BS-prófi. í kjölfar annarra breytinga og
samræmingar tæknifræðinámsins verður iðnaðartæknifræðin þrjú og hálft ár og aðskilin frá
iðnrekstrarfræðinni.
Heilbrigðisdeild: I heilbrigðisdeild eru tvær námsbrautir. Meinatækni og röntgentækni. í
báðum tilvikum er um að ræða 3,5 ár til BS-prófs. Heilbrigðisdeildin er eina deild skólans sem
ekki gerir kröfu um verkkunnáttu eða starfsreynslu áður en nám er hafið.
Nám í Tækniskólanum miðast yfirleitt við að nemandi hafi áður öðlast tilskilda verkkunn-
áttu, annað hvort með formlegu starfsnámi eða með störfum í atvinnuvegum þjóðarinnar þann-
ig að hæfi því námi sem nemandinn hyggst stunda. Hið eiginlega tækninám er tvenns konar.
Iðnfræðinám tekur 1,5 ár að loknu fyrra árinu í frumgreinadeild og krafist er sveinsprófs í
viðeigandi iðngrein. Hér er um að ræða stutt, hnitmiðað og faglega sterkt starfsnám.
Tæknifræðinámið er að inestu hefðbundið samkvæmt dansk-þýskri fyrirmynd. Gerð er krafa
um sveinspróf í viðeigandi iðngrein eða minnst tveggja ára starfsreynslu á viðeigandi sviði.
9.2.3 Brautskráðir nemendur
Hér á eftir fer yfirlit yfir brautskráningar frá upphafi.
Raungreinadeildarprófi hafa lokiö samtals 967 Iðnaöartæknifræðingar 56
Byggingaiðnfræöingar 96 Útvegstæknar 195
Rafiönfræöingar 176 lönrekstrarfræöingar 468
Véliönfræöingar 59 Meinatæknar 373
Byggingatæknifræðingar 353 Röntgentæknar 41
1. árs próf i rafmagnstæknifræöi 253
1. árs próf í vél-og rekstrartæknifræöí 224 Samtals tekin lokapróf 3261
9.2.4 Staðan nú og þróun næstu ára
Síðustu tvö árin hafa allar námsbrautir skólans verið í endurskoðun og þróun. Markmið þess
starfs er fyrst og fremst að þeir sem frá skólanum útskrifast verði færari til að sinna þeim störf-
um sem nám þeirra stefnir að. Sent dænti um þróun síðustu tveggja ára má nefna eftirfarandi:
• Allt námsefni frumgreinadeildar var endurskipulagt árið 1994.
• Uppstokkun tæknifræðinámsins í öllum deildum hófst 1994 og stendur enn yfir. Aðallega
var miðað við aðlögun að breyttu fyrirkomulagi í Odense Teknikum, en þangað sækir meiri
hluti nemenda rafmagnsdeildar til að ljúka námi. Allt námsefni er nú skipulagt í jafn stórum
áföngum og breyttar áherslur eru í sambandi við sviðsskiptingu og valgreinar byggingadeildar.
• Aðaláherslusvið í byggingatæknifræði verða húsbyggingar, mannvirkjagerð og umhverfis-
og fráveitutækni.
• Iðnaðartæknifræðin verður samsvarandi við hinar tæknifræðinámsbrautirnar. Áherslusvið
verða væntanlega á sviði iðnframleiðslu og matvælaiðnaðar.
• Vél- og orkutæknifræðin verður með svipuðu sniði og megináherslur á orkunýtingarhliðinni.
• Endurskipulag tæknifræðinámsins miðar einnig að því að losa nokkuð um þau stífu skil
milli deilda sem verið hafa svo áberandi og bjóða nemendum aukinn sveigjanleika í samsetn-
ingu náms þvert á hefðbundin skil milli námsbrauta. Þess verður þó jafnframt gætt að rýra ekki
fagleg einkenni einstakra námsbrauta eða hins útskrifaða nemanda.