Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1996, Blaðsíða 96
94 Árbók VFÍ/TFÍ 1994/95
4 Samkeppnisstaða íslands
ísland á í harðri samkeppni við önnur lönd og landsvæði um fjárfestingartækifæri. I þeirri
samkeppni er öllum tiltækum ráðum beitt, s.s. styrkveitingum, niðurgreiðslum og skattaaf-
sláttum. ísland hefur ekki farið inn á braut fjárhagslegra undirboða af skiljanlegum ástæðum,
enda ýmsir aðrir kostir í boði. Helstu kostir og ókostir íslands séðir nteð augum erlendra fjár-
festa eru sýndir á mynd 3. Vandamálin við að markaðssetja ísland eru fyrst og fremst ein-
angrun landsins og skortur á heimamarkaði auk almennrar vanþekkingar á högum lands og
þjóðar. Þegar haft er í huga að bygging iðjuvers í kjölfar ákvörðunar tekur ekki nema 2 - 3 ár,
en stórra virkjana 4 - 5 ár, þá stendur ísland stundum illa að vígi í samkeppni t.d. við þróun-
arlönd sem sum hafa gnægð af ónýttri raforku frá risastórum vatnsorkuverum. Kostirnir sem
þyngst vega eru hagkvæmt orkuverð frá endurnýjanlegum orkulindum og vel menntað og
atorkusamt vinnuafl í traustu, vestrænu menningarumhverfi. Langtíma, samfellt markaðsstarf
er afar þýðingarmikið til þess að ná og viðhalda athygli hugsanlegra fjárfesta gagnvart íslandi
sem fjárfestingarkosti.
Kostir Ókostir
Aðild að Evrópska Efnahagsssvæðinu Fjarlægð frá mörkuðum
Stððugleiki í stjórnmálum og efnahagslífi Enginn heimamarkaður
Hagkvæmt orkuverð frá endurnýjanlegum orkulindum Langur virkjunartími
Góð verkmenning og tækniþekking Fámenni og einhæft atvinnulíf
Framboð á vel menntuðu vinnuafli Hár launakostnaður
Góð hafnarskilyrði og landrými Hátt verðlag á vörum og þjónustu
Góðar samgöngur og fjarskiptasamband Skortur á áhættufjármagni
Evrópsk menning og góð málakunnátta Fátt um hvata og niðurgreiðslur
Lífsgæði með ágætum Flóknir verkalýðssamningar
Ásættanleg umhverfisskilyrði Óstöðugt veðurfar
Mynd 3 Island séð með cuif’um erlendra fjárfesta.
5 Umhverfis- og staðarvalsathuganir
Ákvarðanir um orkufrekan iðnað varða mikla fjármuni og verða ekki teknar nema þegar öll
skilyrði eru hagstæð. Nauðsynlegt er að geta boðið hagkvæma staðsetningu þar sem reikna
megi með jákvæðri afstöðu heimamanna og lausn umhverfisvandamála á tiltölulega skömm-
um tíma. Tímafrekar athuganir og dýr undirbúningsvinna eykur óvissu og veikir samkeppnis-
stöðu. Veigamikill þáttur í starfsemi MIL frá upphafi hafa verið staðarvalsrannsóknir og mat
á umhverfisáhrifum vegna orkufreks iðnaðar í samstarfi við sveitarfélög. Skilgreindir hafa
verið ýmsir tæknilegir og huglægir þættir sem skipta máli og upplýsingar skortir um og aðilar
hafa skipt með sér verkum við að afla þeirra. Afla þarf þekkingar m.a. á vinnumarkaði, lóðum,
hafnaraðstöðu, samgöngum, aðstöðu til orkuöflunar, þjónustu á ýmsum sviðum, veðurfari,
náttúrufari, þ.m.t. náttúrufarslegar ógnir, og líkleg umhverfisáhrif af iðnaðinum.
Meginmarkmið með slíkum samvinnuverkefnum er að koma tímafrekum undirbún-
ingsaðgerðum á það stig að hægt verði að úthluta ákjósanlegum iðnaðarlóðum til erlendra og
innlendra áhugaaðila með stuttum fyrirvara. Á mynd 4 er yfirlit yfir helstu verkefni sem MIL
hefur unnið eða látið vinna að á þessu sviði.