Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1996, Page 166
164 Árbók VFÍ/TFÍ 1994/95
fyrir ein ákveðin aðferð sem talin er vera einhver sú nýjasta og besta. I greininni er fjallað um
hana á þann hátt að verið sé að móta heildarstefnu fyrir a.m.k. nokkuð stórt fyrirtæki á ís-
lenska vísu. I minni fyrirtækjum yrði hún framkvæmd með fáeinum einföldunum sem nánar
eru skýrðar út síðar í henni. I grundvallaratriðum er notuð svipuð eða jafnvel sama aðferðin
víð mótun stefnu fyrir einstakar deildir með misjafnlega miklum einföldunum. Notkunarsvið
aðferðarinnar er miklu víðara. Hún ætti alltaf að vera notuð, að vísu með dálitlum einföld-
unum, þegar meiri háttar breytingar standa til eins og t.d. þegar viðamikil markaðssókn stend-
ur fyrir dyrum eða taka á upp gæðastjórnun.
2 Tilgangur og innihaid stefnumótunar
Segja má að stefnumótun sé verkfæri stjórnar, forstjóra og hans nánustu samstarfsmanna til
eftirfarandi hluta:
• Fá fram hugmyndir aö breytingunum, útfærslu þeirra og skipulagningu.
• Ryöja þeim braut.
• Þjappa stjórnendum og öörum starfsmönnum saman, bæöi um þær, framkvæmd þeirra
og eftirfylgni.
• Þroska þátttakendur í stefnumótuninni sem stjórnendur.
• Gera starfsmönnum kleyft aö vinna sjálfstæöar.
Athyglisvert er að það að þjappa stjórnendum saman um ákveðna stefnu og þroska þá sem
stjórnendur er samkvæmt reynslu jafn mikilvægur þáttur í stefnumótuninni og stefnan sjálf.
Þetta byggist á því að vel heppnuð stefnumótunarvinna gefur þátttakendum nýja innsýn í fyrir-
tækið. Þeir ná einnig betur saman og skilja betur hlutverk, styrkleika og veikleika sín sjálfs
og annarra. Þeir læra að vinna skipulegar enda byggist stefnumótunarvinnan á mjög kerfis-
bundinni vinnuaðferð. Þeir læra að vinna í hópstarfi enda er það einkennandi hluti af vinnu-
aðferðinni o.s.frv., o.s.frv.
1. Starfshópur vinnur aö því aö athuga hvort og hvaöa breytingar þurfi aö gera í rekstri
fyrirtækisins.
I honum þurfa nauðsynlega aö vera æöstu stjórnendur þess.
Tengdir starfshópnum geta veriö fleiri eða færri undirhópar sem taka aö sér ákveðin
verkefni eða fjalla um ákveöna hluta fyrirtækisins.
2. í framhaldi af vinnu starfshópsins er unniö aö því að hrinda breytingunum i framkvæmd
og fylgja þeim eftir þannig að eftirfarandi rekstur gangi vel.
Einnig er lögö áhersla á að mælt sé hvaöa árangur náöist.
3. Nauðsynlegt er aö endurtaka, bæta og taka fyrir ný stefnumótunarmálefni a.m.k. árlega.
Athuga þarf að tímann þarf að nýta vel. Hann þarf að vera vel skipulagður, en sveigjanleiki
þarf þó að vera fyrir hendi.
3 Stefnumótunaraðferðin
Segja má að stefnumótun samanstandi af eftirfarandi áföngum: