Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1996, Page 214
212 Árbók VFÍ/TFÍ 1994/95
samkvæmt tillögum norskra verkfræðinga, en nokkrar deilur höfðu orðið um hvort virkja ætti
fyrst við Ljósafoss eða Efra Sog þar sem nú er Steingrímsstöð.
Verkið var svo boðið út og var fyrirtæki fornvinar og skólabróður Jóns, Höjgárd og Schultz
með lægsta boðið og fékk verkið. Hversu hratt og markvisst öll þessi vinna gekk eftir að
samþykkt fékkst á alþingi, má án efa þakka góðri þekkingu Jóns á þessum málum. Því miður
lifði Jón ekki að sjá þennan draum sinn rætast því hann lést 20. mars 1935 um svipað leyti og
framkvæmdir hófust við Ljósafossvirkjun.
7 Lokaorð
Ef litið er yfir það sem fram er komið hér að framan, er augljóst að Jóns Þorlákssonar hefur
ekki verið getið að verðleikum fyrir verkfræðistörf sín. Verkfræðistörf lians haf'a fallið f skugg-
ann af hinum miklu störfum hans sem alþingismanns, ráðhen'a, borgarstjóra og formanns
Sjálfstæðisflokksins.
Jón virðist hafa unnið stórvirki á nær öllum verkfræðisviðum sem starfað var við hér á landi
á þessum árum. Hér má nefna 10 ára vegaáætlunina 1907-1917, gerð fyrstu stórbrúarinnar sem
hönnuð var á Islandi, forysta í notkun járnbentrar steinsteypu til brúargerðar og íbúðarhúsa,
hugmyndafræði Hitaveitu Reykjavíkur, hönnun Elliðaárvirkjunar, virkjun Sogsins og margt
fleira mætti telja til. Þetta er alveg einstök afrekaskrá á verkfræðisviðinu.
Jón Þorláksson kom heim að loknu verkfræðiprófi fullur áhuga fyrir að beita viðtækri
þekkingu sinni til þess að gera land okkar byggilegra og lífskjör þjóðarinnar betri.
A árunum sem hann var landsverkfræðingur ferðaðist hann vítt og breitt um landið og kynnt-
ist betur en flestir aðrir landsháttum og þjóðarhag og varð sú þekking honum dýrmæt í starfi
stjórnmálamannsins.
En Jón gleymdi aldrei verkfræðinni. Eftir að hann varð alþingismaður og ráðherra var verk-
fræðin honum ávallt efst í huga, það sýna hinar mörgu, merku greinar og erindi er hann hélt
um verkfræðileg efni eftir að hann varð alþingismaður og ráðherra.
Þetta var hans mesti styrkur bæði sem stjórnmálamanns og sem verkfræðings.
Undir styrkri handleiðslu Jóns Þorlákssonar tóku Islendingar stórt stökk inn í tuttugustu
öldina.
Vífill Oddsson