Bændablaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 14
Bændablaðið | fimmtudagur 15. mars 201214
Það hristu margir hausinn yfir
Torfa Sigurðssyni og Helga
Einarssyni þegar þeir stofnuðu
fiskvinnsluna Fiskás ehf. og hóf-
ust handa við að byggja glænýtt,
veglegt hús undir fiskverkun
við Suðurlandsveginn austast í
þorpinu á Hellu árið 2010. Fyrir
utan að yfirleitt enginn færi út í
framkvæmdir mitt í kreppunni þá
töldu flestir það algjörlega út úr
korti að reisa fiskverkun á Hellu,
sem á enga tengingu við sjó nema
Rangána sem rennur þar í gegn til
sjávar. Hvað þá að setja þar upp
fiskbúð.
Það var þó einmitt tengingin við
Rangárnar og lax- og silungsveiði-
bændur í ám beggja vegna við Hellu
sem kveikti hugmynd þeirra félaga
um að reisa fiskverkun. Þar hugðust
þeir bjóða bændum og veiðimönnum
upp á vinnslu á afla úr vötnum og
ám, flökun, reykingu og pökkun og
jafnvel markaðssetningu. Þó hug-
myndin væri djörf og óvíst um við-
skipti var þeim félögum tekið opnum
örmum með þetta framtak. Smám
saman fóru viðskiptin að blómstra
í fiskvinnslunni, sem stendur við
Dynskála 50, rétt austan við kjúk-
lingabú Reykjagarðs. Tengingin við
bændur er sterk í viðskiptum þeirra
félaga, enda bændur oftar en ekki
eigendur lax- og silungsveiðiáa á
Suðurlandi auk þess sem fiskrækt-
arbúskapur hefur á ný verið að færast
í vöxt í sveitum landsins á undan-
förnum árum.
Að sögn Torfa hófst starfsemin
í ágúst 2010. Félagarnir settu upp
reykofn og hafa erlendir veiðimenn
mikið sótt til þeirra með sinn lax- og
silungsveiðiafla.
Kaupa líka fisk af markaði
„Síðan höfum við verið að selja
þorsk, ýsu og fleiri tegundir til
mötuneyta hér á staðnum en fiskinn
kaupum við þá af markaði. Þá er fólk
mjög ánægt með að geta komið hér
í fiskbúð og keypt nýjan fisk. Hefur
aðsóknin stöðugt verið að aukast og
mikil aukning síðan í fyrra.“
Segir Torfi að staðsetningin rétt
við þjóðveginn geti vart verið betri.
Flutningabílar aki þar um hlaðið alla
daga og oft með fisk sem ekið er á
milli fiskmarkaða og vinnslustöðva
um allt land.
„Við erum mikið að þjónusta
útlendinga og aðra sem eru að veiða
hér í Eystri- og Ytri-Rangá. Við
reykjum mikið fyrir þá og pökkum.
Sumir koma með sinn fisk og taka
unninn skiptifisk í staðinn en aðrir
vilja bara fá sinn fisk unninn. Þá
sendum við hann jafnvel á eftir veiði-
mönnunum úr landi. Við reykjum
líka ýsu og fleiri tegundir og hefur
það reynst vinsælt.“
Torfi segir misjafnt hvernig gangi
að fá fisk á mörkuðum á skaplegu
verði. Þar sitji þeir við sama borð
og aðrir, en verðið ráðist aðallega af
gæftum hverju sinni.
„Við kaupum mikið frá Ólafsvík
en annars víða af landinu og fer
verslunin öll fram í gegnum tölvu.
Þá erum við sjálfir með 6 tonna trillu
í Ólafsvík sem heitir María og róum
þá sjálfir á sumrin. Það fer að vísu
ekki allur fiskurinn af henni hingað
til Hellu, því hluti fer á markað.“
Vinna fyrir fiskeldið
„Við höfum líka verið að vinna fyrir
fiskeldisstöðvar, einkum Íslenska
matorku í Fellsmúla. Fyrir þá stöð
höfum við verið að vinna bleikju en
einnig svokallaðan hekluborra, sem
heitir reyndar telapía. Stöðin ætlar
reyndar sjálf að fara að kaupa hús
hér á Hellu undir slíka vinnslu, þar
sem ekki hentar að vera með reykofn
í sama húsi og telapían er unnin, eins
og er hjá okkur.“
Og Vestmannaeyingar kaupa líka
fisk á Hellu
Helgi segir að mikil ánægja sé með
reykingu þeirra félaga. Það sé mikil
kúnst að reykja fisk svo vel fari og
alls ekki sama hvernig það sé gert.
Útlendingarnir séu t.d. sérlega kröfu-
harðir varðandi það að fiskurinn
sé ekki ofreyktur. Létt og mátuleg
reyking sé lykilatriði.
„Við fórum einnig að bjóða þeim
grafinn lax í fyrra og hafa þeir komist
á bragðið og tekið mjög vel í það.
Þá er mjög skemmtilegt að segja
frá því að íbúar í einum mesta fisk-
veiðibæ landsins, Vestmannaeyjum,
koma mikið til okkar að kaupa fisk.
Margir þeirra eiga sumarbústaði hér
í nágrenninu og finnst þægilegt að
eiga hér aðgang að góðum fiski. Þá
er farið að aukast að fólk kaupi fisk
til að grilla á sumrin. Við vonumst því
eftir verulega auknum viðskiptum við
Vestmannaeyinga ef Landeyjahöfn
kemst almennilega í gagnið,“ segir
Helgi Einarsson. /HKr.
Bjartsýnir athafnamenn í hinum þekkta slátrarabæ Hellu létu úrtöluraddir ekki aftra sér í kreppunni:
Settu upp fiskbúð og fiskvinnslu í
hafnlausu þorpi lengst inn í landi
Myndir / HKr.