Bændablaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 27

Bændablaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 27
27Bændablaðið | fimmtudagur 15. mars 2012 fremstu röð í hugbúnaðargerð fyrir landbúnað. Leiðir: Tölvudeild Bændasamtaka Íslands verði tryggt nægilegt fjár- magn til þeirrar hugbúnaðarþróunar sem tillagan fjallar um. Framgangur: Búnaðarþing felur stjórn BÍ að vinna að málinu. » Endurskoðun á félags- kerfi bænda Búnaðarþing 2012 samþykkir að haldið verði áfram vinnu við endur- skoðun á félagskerfi bænda. Skoðað verði sérstaklega hlutverk og staða grunneininga félagskerfisins í tengslum við heildarendurskoðun þess. Markmið: a) að stefna að einföldun á félags- aðild að Bændasamtökum Íslands. b) að fjármögnun félagskerfisins byggi á innheimtu félagsgjalda. c) að skilgreina hvaða réttindi og skyldur fylgja því að vera aðili að Bændasamtökum Íslands. Leiðir: Stjórn Bændasamtaka Íslands er falið að vinna að málinu í sam- starfi við aðildarfélög og leggja mót- aðar tillögur að fyrirkomulagi fyrir næsta búnaðarþing. » Eldgos í Eyjafjallajökli og Grímsvötnum Búnaðarþing 2012 sendir bestu þakk- ir til allra sem komu íbúum á áhrifa- svæðum eldgosa í Eyjafjallajökli og Grímsvötnum til aðstoðar. Búnaðarþing leggur ríka áherslu á mikilvægi þess öryggisnets sem þessir aðilar mynduðu í sameiningu. » Stuðningur við orkusparnað Markmið: Búnaðarþing 2012 skorar á iðnaðarráðherra að koma myndarlega til móts við almenning í landinu með breytingu á reglugerð nr. 660/2009 um niðurgreiðslur húshitunarkostn- aðar með það að markmiði að auka sjálfbærni í orkuöflun og lækka orkukostnað. Leiðir: Núverandi reglugerð kveður á um allt að 8 ára niðurgreiðslu en Búnaðarþing 2012 leggur til að hún verði 16 ár. Framgangur: Búnaðarþing beinir því til Bændasamtaka Íslands að fara fram á breytingu á reglugerð nr. 660/2009. Jafnframt að tryggt verði nægilegt fjármagn til stuðnings vegna fram- kvæmda við orkuöflun í dreifbýli. » Orkumál landbúnaðarins Markmið: Búnaðarþing 2012 ályktar að stefnt verði að sjálfbærni íslensks landbúnaðar hvað orku varðar. Leiðir: Búnaðarþing skorar á stjórn- völd að styðja verkefnið, sem felst í að byggja upp þekkingu sem nýtist bændum beint þegar kemur að orku- sparandi aðgerðum og orkunýtingu með virkjun endurnýjanlegra auð- linda. Þegar verði leitað samstarfs við LbhÍ í málaflokknum. Meðal annars um gerð námsefnis, utanumhald um árangur svo og ráðgjöf til stjórnvalda og samvinnu um stefnumörkun. Framgangur: Stjórn BÍ falið að fylgja málinu eftir og skila Búnaðarþingi 2013 skýrslu um árangur og næstu skref. » Skotveiðar á gæs utan veiðitíma Markmið: Tryggja að fyrirhugað verkefni Umhverfisstofnunar og Bændasamtaka Íslands um skot- veiðar á gæs utan veiðitíma komist í framkvæmd. Leiðir: Máli nr. 37 frá Búnaðarþingi 2010 verði áfram haldið opnu og unnið að framgöngu þess. Framgangur: Stjórn BÍ þrýsti á umhverfisráðherra að ryðja úr vegi hindrunum fyrir því að verkefnið nái fram að ganga, sbr. umfjöllun um málið í framvinduskýrslu Búnaðarþings 2012. » Takmörkun á hlunninda nýtingu Markmið: Búnaðarþing 2012 mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á lögum nr. 64/1994 sem birtast í fram komnum frum- varpsdrögum dags. 7/2/2012. Búnaðarþing getur þó stutt tímabundið veiðibann á svart- fuglastofnum, byggt á núgildandi lagaheimildum og samningum við eigendur og rétthafa hlunnindanna. Leiðir: Bændasamtök Íslands, sveitarfélög, félög veiðimanna, landeigendur og félög þeirra myndi samstöðu um að koma sjónarmiðum rétthafa á framfæri við stjórnvöld. Framgangur: Bændasamtök Íslands fylgi málinu eftir. » Fjármálaþjónusta og skuldamál í landbúnaði Markmið: Búnaðarþing 2012 ítrek- ar ályktun frá fyrra ári um fjármál bænda og átelur harðlega seinagang við lausnir á skuldamálum bænda. Þingið telur nauðsynlegt að horfa til framtíðar og ljúka úrvinnslu mála sem tengjast efnahagshruninu 2008 svo endurreisn geti hafist af krafti. Sá seinagangur sem verið hefur á lausnum skuldamála og sann- gjörnum lagfæringum á stökk- breyttum lánum fjölskyldna og fyrirtækja, hefur frestað nauðsyn- legum ákvörðunum um uppbygg- ingu og atvinnusköpun til framtíðar. Leiðir: Bændasamtökin gera kröfu um að: um aðferðir við mat á bújörðum er taki mið af núverandi starfsemi og ástandi jarðanna. - lit til eðlilegrar afkomu bænda og endurnýjunar rekstrar- og fastafjár- muna verði lagðar til grundvallar við lausnir. - munandi rekstrareiningum þannig að boðið verði upp á framtíðarlausnir í lánamálum án tillits til bústærðar. verði skýrir, skerði ekki réttindi sem kunna að skapast við seinni tíma úrskurði og/eða dóma. Gera verður þá kröfu að fjárhagsleg endurskipu- lagning sé til lengri tíma. - réttingar á verðtryggðum lánum með sanngirnissjónarmið að leiðarljósi og komi þær til móts við almenning og bændur er sýndu ráðdeild og skyn- semi við ákvarðanatöku á árunum fyrir hrun. skýrð í samræmi við ályktun eftir- litsnefndar, sem starfar samkvæmt lögum nr. 107/2009 um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrir- tækja vegna banka- og gjaldeyris- hrunsins, sem fram kom í skýrslu nefndarinnar til efnahags- og við- skiptaráðherra í september 2011. - starfsemi verði bætt með því að: uppgreiðslugjöld lána. við raunverulega umsýslu lánsins. - heimt við endurfjármögnun lána milli lánastofnana. Bændasamtökin vinni að því að leita leiða til þess að takmarka persónulega ábyrgð í landbúnaðar- rekstri, m.a. með því að skilgreina og veita ráðgjöf um heppilegt rekstrar- form fyrir búrekstur og aðskilja persónulegar eignir í meira mæli frá búrekstri. Framgangur: Búnaðarþing leggur áherslu á að stjórn Bændasamtaka Íslands beiti sér af fullum þunga í þessum málum og leiti lausna í samráði við önnur hagsmunasamtök. » Kúasæðingar Markmið: Búnaðarþing 2012 beinir því til stjórnar BÍ að skoða kosti og galla þess að sameina starfsemi kúasæðinga á landinu öllu með það að markmiði að ein og sama gjald- skrá verði látin gilda fyrir alla. Leiðir: Málið verði unnið í sam- ráði við Búnaðarsamböndin og Landssamband kúabænda. Framgangur: Málið sent stjórn BÍ. Niðurstaða liggi fyrir á næsta búnaðar- þingi. » Fæðuöryggi Íslands Markmið fæðuöryggi Íslands. Íslensk stjórn- völd hafa aldrei farið skipulega yfir fæðuöryggi landsins, ógnanir við það og möguleg viðbrögð. Brýnt er að sú vinna fari fram. Þessi mál hafa komið til skoðunar víða í nágrannalöndum okkar, en ekki af hálfu íslenskra stjórn- valda, enn sem komið er. Leiðir: Búnaðarþing skori á stjórnvöld að móta stefnu um fæðuöryggi Íslands í samstarfi við þar til bæra fagaðila. Framgangur: Stjórn BÍ verði falið að fylgja málinu eftir gagnvart stjórn- völdum. » Búvörusamningar Markmið: Búnaðarþing 2012 skorar á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að hefja viðræður við Bændasamtök Íslands um framlengingu gildandi búvörusamninga. Mikilvægt er að treysta rekstrarum- hverfi bænda, skapa stöðugleika og áframhaldandi framþróun viðkomandi búgreina. Leiðir: Búnaðarþing beinir því til BÍ og þeirra búgreinafélaga sem málið varðar að óska eftir viðræðum við stjórnvöld um framlengingu búvöru- samninga. Framgangur: Bændasamtök Ísland í samráði við viðkomandi búgreina- félög fylgi málinu eftir gagnvart sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. » Viðskipti með greiðslu- mark mjólkur Markmið: Búnaðarþing 2012 beinir því til sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra að fjölga markaðsdögum með greiðslumark mjólkur þannig að þeir verði a.m.k. þrír á ári. Leiðir: Ályktuninni verði komið á framfæri við sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra Framgangur: Bændasamtök Íslands vinni að málinu í samráði við Landssamband kúabænda. » Aðildarviðræður við Evrópusambandið Markmið: Búnaðarþing 2012 krefst þess að varnarlínur BÍ verði virtar í aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins. Stjórnvöld setji tafarlaust fram samningsmarkmið sem verndi með skýrum hætti hagsmuni íslensks landbúnaðar. Leiðir: Fulltrúar BÍ komi þessum skilaboðum Búnaðarþings með skýr- um hætti á framfæri í nefndarstörfum vegna ESB-umsóknar stjórnvalda. Stjórn BÍ komi þeim með sama hætti á framfæri við íslensk stjórnvöld og sendifulltrúa Evrópuríkja hérlendis. Framgangur: Stjórn BÍ er falið að vinna áfram að málinu af þunga. » Kjarasamningar við starfsfólk í landbúnaði Markmið: Skýra umboð stjórnar BÍ til að gera samninga fyrir hönd bænda við stéttarfélög starfsfólks í land- búnaði um lágmarkskjör og afmarka gildissvið þeirra samninga. Leiðir: Búnaðarþing 2012 heim- ilar stjórn BÍ að gera leiðbeinandi samninga um lágmarksstarfskjör á bændabýlum og felur stjórn að vinna að afmörkun verkefnisins. Framgangur: Stjórn Bændasamtaka Íslands er falið að vinna að málinu. BÚNAÐARÞING 2012 ÁF RA M ÍSL EN SK UR LA ND BÚ NA ÐU R Allt um Búnaðarþing á bondi.is Athygli er vakin á því að umfjöllun um Búnaðarþing 2012 er að finna á vef Bændasamtakanna, www.bondi.is. Þar eru að- gengilegar ræður við setningarathöfn, ályktanir þingsins og fleiri gögn sem því tengjast.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.