Bændablaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 33

Bændablaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 33
33Bændablaðið | fimmtudagur 15. mars 2012 skógræktar. Þá benti hann ráðstefnu- gestum á að víða um land væru ónýtt tækifæri varðandi uppsetningu heim- arafstöðva, sem væru ódýrar í rekstri. Varðandi notkun olíujurta til elds- neytisframleiðslu taldi hann skorta á kynbætur til að slík framleiðsla væri réttlætanleg nema til manneldis og fóðurgerðar. Þá fæli það í sér upp- skeru seint á haustin þegar veður geta verið rysjótt. Olíuframleiðsla úr grasi og öðrum lífmassa væri allt annar handleggur. Vísaði Elvar þar til sam- vinnu sinnar við Þorbjörn Friðriksson efnafræðing. Þóroddur Sveinsson frá Land- búnaðarháskóla Íslands rakti í sínu erindi flæði næringarefna í búskap, orkuvinnslu og áburði. Einnig upp- runa og afdrif næringarefna á sauð- fjár- og kúabúum. Rakti hann hvernig hagnýta mætti búfjárúrgang til gas- framleiðslu og um leið fá út áburð á tún með hærra áburðargildi í hverri þyngdareiningu. Á eftir Þóroddi lýsti Þorbjörn Friðriksson möguleikum við að búa til olíu úr lífmassa. Við slíka framleiðslu þyrfti mikið af vetni sem hægt væri að framleiða víða um land og til þess þyrfti alls ekki stöðuga og jafna orku. Vetninu er dælt inn í vinnsluferlið við gösun á lífmass- anum og útkoman er olía og fjöldi annarra efna í framhaldinu. Allt yrði þetta framleiðsla sem byggði á vist- fræðilega hreinum grunni. Því væri kjörið að nýta rennslisvirkjanir með óstöðuga framleiðslu, vindorkuver og fleira til að framleiða vetni til oliu- framleiðslunnar. Síðastur á mælendaskránni var svo Sigurður Jónsson, formaður Félags raforkubænda, sem ræddi um áform og framtíðarsýn raforkubænda. Var greinilegt að Sigurður sá mikla möguleika fyrir orkubændur að virkja það sem áður hefur verið talið lítt fýsilegt og að breyta orku frá „óstöð- ugum“ virkjunum í vetni til áfram- vinnslu á fljótandi eldsneyti. /HKr. Þóroddur Sveinsson. Ungar konur úr landbúnaðargeiranum sýndu orkumálaumræðunni mikinn áhuga ekki síður en karlpeningurinn. Þorbjörn Friðriksson efnafræðingur í ræðustól en hann naut aðstoðar Þor- steins sonar síns við að stýra tökkunum á tölvunni. Sigurður Jónsson. Ráðstefna um búorku og mögu- leika landbúnaðarins í orkufram- leiðslu framtíðarinnar var haldin á Hótel Sögu föstudaginn 9. mars sl. Á ráðstefnunni voru haldin fjölbreytt erindi en glærur fyrir- lesaranna eru aðgengilegar á vef Bændasamtakanna, www.bondi.is. Efni frá búorkuráðstefnu á bondi.is Þó sumir létu sig dreyma um virkjanir, olíuframleiðslu og heita potta sem kynntir væru með varmadælu, þá var Margrét Ingjaldsdóttir ekkert að slá slöku við á ráðstefnunni og prjónaði af miklum móð.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.