Bændablaðið - 15.03.2012, Qupperneq 18
18 Bændablaðið | fimmtudagur 15. mars 2012
Veruleg aukning í aðsókn Íslendinga að mjólkurfræðinámi síðustu ár:
Mjólkurfræðikennari framleiddi eiturlyf
– Heiða hjálpar íslenskum nemum, sem sagðir eru harðduglegir
Á dögunum útskrifuðust þrír ungir
Íslendingar sem mjólkurfræðingar
frá Kold College í Óðinsvéum í
Danmörku. Þar með bætast þeir í
hóp 158 Íslendinga sem útskrifast
hafa sem mjólkurfræðingar frá
skólanum frá því á fjórða áratug
síðustu aldar. Kold, sem áður hét
Dalum Landbrugs- og Mejeriskole
og síðar Dalum Tekniske Skole, er
eini skólinn á Norðurlöndunum
sem menntar mjólkurfræðinga og
frá því á níunda áratugnum hafa
allir íslenskir mjólkurfræðingar
numið við skólann.
Við skólann kennir íslenski mjólk-
urtæknifræðingurinn Aðalheiður
Lilja Úlfarsdóttir, en í daglegu
tali er hún aldrei kölluð annað en
Heiða. Heiða er Íslendingunum sem
sótt hafa nám í Óðinsvéum að góðu
kunn en hún hefur veitt þeim góðan
stuðning við námið.
Strandaði á Selfossi
Heiða segir að upphaf þess að hún
hóf störf við mjólkurvinnslu sé
nokkuð skondið.
„Ég fór sem sagt á þjóðhátíð
í Vestmannaeyjum árið 1999 og
komst eiginlega ekki lengra til baka
heldur en á Selfoss. Ég flutti þangað
og hóf störf við mjólkurbúið. Eftir
þriggja mánaða vinnu var mér boðinn
samningur um mjólkurfræðinám. Ég
kláraði mitt verknám hér heima og
fór svo til náms í Danmörku árið
2002 en ég hafði farið í barneignar-
leyfi í millitíðinni. Þá hóf ég nám við
Dalum sem nú heitir Kold College.“
Framleiddi eiturlyf
Heiða kláraði sitt nám sumarið
2004 en á þessum tíma var námið
eilítið öðruvísi en er núna. Þá kláruðu
nemar allt verknámið heima á Íslandi
og tóku svo bóklega hlutann í einni
lotu.
„Reyndar var það svo, eins og er
nú, að þar fyrir utan byrjuðu nemar
á þriggja mánaða verknámi á dönsku
mjólkurbúi. Ég gerði það hins vegar
ekki heldur fékk undanþágu, vegna
þess að ég átti ungbarn á þessum tíma.
Ég kláraði sem sagt sumarið 2004
og fór þá beint í barneignarfrí aftur.
Síðan byrjaði ég í mjólkurtæknifræði
í sama skóla árið 2006 og kláraði það
nám 2008. Að náminu loknu fékk ég
vinnu hjá ríkisreknu lyfjafyrirtæki í
Kaupmannahöfn. Þar starfaði ég á
lokaðri eiturlyfjadeild þar sem var
verið að framleiða amfetamín, heróín
og allan fjandann. Þetta var mjög
fróðlegt. Ætli það muni ekki rjúka
upp aðsókn að mjólkurfræðinámi hjá
aðilum úr undirheimunum eftir að
þetta viðtal birtist! Þegar nemendur
mínir spyrja mig hvað ég hafi starfað
við eftir námið, þá kemur gjarnan
athyglisverður svipur á þá þegar ég
segi frá því að ég hafi ekki unnið á
mjólkurbúi heldur við framleiðslu
eiturlyfja.“
Ráðin nánast fyrir tilviljun
Heiða var sem sagt búin að koma
sér vel fyrir í Kaupmannahöfn, vann
við að framleiða eiturlyf og var hin
rólegasta í tíðinni. En skjótt skipast
veður í lofti.
„Það vildi svo til að einn fyrr-
verandi kennarinn minn sendi mér
póst þar sem hann sagði mér að verið
væri að auglýsa eftir kennurum og
spurði hvort ég hefði ekki hugsað
mér að sækja um. Ég svaraði því
til að ég væri reyndar nýflutt til
Kaupmannahafnar en fór engu að
síður í viðtal vegna starfsins. Ég hélt
reyndar að það væri bara hefðbundið
atvinnuviðtal en síðan kom á daginn
að það hafði verið ráðningarviðtal.
Ég var sem sagt ráðin frá 1. janúar
2009 og er því búin að vera við Kold
í rúm þrjú ár núna.“
Hógværðin uppmáluð
Heiða segir að á árunum áður en
hún var ráðin hafi tiltölulega fáir
Íslendingar verið við nám við skól-
ann. Undanfarin þrjú ár hafi orðið
mikil breyting þar á. Hún segir að það
hafi mögulega spilað inn í þegar hún
var ráðin að íslenskir nemar stunduðu
nám við skólann, en það hafi ekki
verið afgerandi þáttur. Námið fari
allt fram á dönsku. Hins vegar hafi
hún reynt að liðsinna Íslendingunum
sem hafa komið þarna út eftir megni.
Blaðamaður hefur fyrir satt að Heiða
sé nokkuð hógvær í frásögn sinni þar
um, enda hafi hún verið íslenskum
nemum síðustu ára við Kold til
ómældrar aðstoðar.
Mjólkurfræðingar eldast líka
Líklegasta skýringin á fjölgun þeirra
sem hefja nám við mjólkurfræði nú
telur Heiða að sé aldur stéttarinnar.
„Ég held að stærsta skýringin sé
sú að stétt mjólkurfræðinga á Íslandi
sé að eldast og því hafi samlögin
heima verið að taka fleiri í verknám
með það í huga að fylla í skörðin
þegar mjólkurfræðingar komast á
aldur. Það koma alls ekki allir til
baka til starfa í mjókurbúin. Þetta
nám býður upp á marga möguleika.
Hér úti í Danmörku starfa ekki
nema á milli 30 til 40 prósent
mjólkurfræðinga við mjólkuriðnað
að loknu námi. Hinir starfa hjá
ýmsum fyrirtækjum, þeir geta í
raun starfað hjá öllum fyrirtækjum
sem blanda saman efnum eða
matvælum. Það geta verið
lyfjafyrirtæki, matvælafyrirtæki,
safa- eða gosdrykkjagerðir auk
ýmislegs annars.“
Alvöru verðmæti, ekki
rafmagnspeningar
Heiða vill líka meina að viðhorf
til starfsins sé að breytast. Það
hafi kannski ekki þótt mjög töff að
segjast vera að læra mjólkurfræði
þegar hún hóf nám á sínum tíma.
„Ég var stundum spurð að því
hvað ég gerði við þetta nám þegar
ég sagði frá því að ég væri að læra
mjólkurfræði, hvort ég væri að læra
að mjólka kýr. Það voru nú ekki
kýr heima hjá mömmu og pabba
þannig að ég held ég hafi þrisvar
á ævinni klappað kú! Þetta er líka
mikil karlastétt og þar af leiðandi
er aðeins erfiðara fyrir stelpur að
koma inn í fagið, eins og gengur.
Ég held hins vegar að önnur ástæða
fyrir fjölgun Íslendinga í náminu
sé sú að hugarfarið hafi breyst.
Eftir efnahagshrunið jókst kannski
virðing fyrir störfum af þessu tagi,
þar sem verið er að vinna með og búa
til handföst verðmæti en ekki bara
einhverja rafmagnspeninga. Það er
mun jákvæðara hugarfar gagnvart
náminu en var og þetta er líka nám
sem hægt er að nýta í svo margt. Ef
fólk setur sér ekki hömlur sjálft eru
möguleikarnir óteljandi. Fólk getur
nýtt þessa menntun í svo margs
konar framhaldi, hvort sem það er
beint framhald í mjólkurtæknifræði
eða mjólkurverkfræði eða
eitthvað laustengdara eins og
bruggmeistarar.“
Íslendingarnir sagðir ofsalega
duglegir
Heiða segir að í flestum tilfellum
hafi þeir Íslendingar sem hafa verið
við nám í Kold staðið sig mjög vel.
„Í langflestum tilfellum hafa
þessir krakkar verið að standa
sig mjög vel. Þau búa að því að
verknámið heima á Íslandi er mun
öflugra en hér í Danmörku. Heima
er nemunum kennt frá fyrsta degi að
gera og vinna en það er mun minna
um það hér úti. Íslensku nemarnir
hafa það orð á sér að vera ofsalega
duglegir og það er gaman að geta
verið stolt af slíkum vitnisburði.“ /fr
Mjólkur-
fræðinám
Námið er þriggja ára
iðnnám, verklegt og
bóklegt.
Verklega námið fer fram
í mjólkursamlögum
hér á landi en bóklega
námið í Kold College í
Óðinsvéum í Danmörku.
Nemar starfa einnig í
þrjá mánuði í dönsku
mjólkursamlagi, áður en
þeir hefja bóknám, til að
ná tökum á tungumálinu.
Námið eru uppbyggt af
fimm lotum sem eru frá
fjórum vikum
til fjórtán vikna.
Námið er lánshæft hjá
Lánasjóði íslenskra
námsmanna en vin-
nuveitendur hér á landi
greiða að mestu kostnað
við ferðir og uppihald.
Námið hentar öllum,
konum og körlum, á hvaða
aldri sem er.
Hreykinn kennari. Heiða ásamt Stefáni við útskrift frá Kold.
Stoltir mjólkurfræðingar. Félagarnir þrír sem útskrifuðust frá Kold College á dögunum. Frá vinstri: Gunnlaugur Lárusson, Stefán Lárusson og Sindri
Rögnvaldsson.
Hress í vinnunni. Heiða er hress og kát. Samkvæmt öruggum heimildum
Bændablaðsins var hún ekki á neinum eiturlyfjum þegar þessi mynd var tekin.