Bændablaðið - 15.03.2012, Síða 19
19Bændablaðið | fimmtudagur 15. mars 2012
Hjónin Aðalbjörg Pálsdóttir og
Þórsteinn Glúmsson í Vallakoti
í Reykjadal voru sérstaklega
heiðruð af Leikdeild Eflingar
fyrir langt og farsælt starf með
deildinni síðustu 50 ár. Athöfnin
fór fram að lokinni frumsýningu
Leikdeildarinnar á leikritinu Í
gegnum tíðina, sem frumsýnt var
á Breiðumýri á föstudagskvöld
í liðinni viku. Svo skemmtilega
vildi til að þau heiðurshjón héldu
einmitt upp á gullbrúðkaup sitt
sama dag.
Aðalbjörg og Þórsteinn kynnt-
ust á sviðinu á Breiðumýri árið
1961. „Við lékum þá bæði í gaman-
leiknum Aumingja Hanna,“ segir
Þórsteinn, en þau hafa uppfrá því
leikið í fjölmörgum uppfærslum
Leikdeildar Eflingar á liðnum ára-
tugum. Þórsteinn er frá Vallakoti og
Aðalbjörg frá Hvítafelli á Laugum,
en þau hjónin stunduðu búskap í
Vallakoti og búa þar enn.
Þórsteinn segir að Aðalbjörg hafi
haft meira úthald á sviðinu en hann
sjálfur, en einungis örfá ár eru frá því
hún lék síðast með félaginu. „Hún
hélt þetta betur út en ég, var síðast
að leika fyrir fjórum, fimm árum, en
það er lengra síðan ég hætti,“ segir
hann. Aðalbjörg tók þátt í sýningu
leikdeildarinnar á verki systranna
Iðunnar og Kristínar Steinsdætra,
Síldin kemur og síldin fer, sem
valin var áhugaleiksýning ársins
2000 og steig af því tilefni á svið
Þjóðleikhússins.
Þórsteinn segir mikinn áhuga
fyrir leiklist í Reykjadal og Leikdeild
Eflingar sé öflugt og gott félag. Ekki
skemmi fyrir að það hefur aðgang
að föngulegum hópi ungmenna í
tengslum við Framhaldsskólann á
Laugum og sýningar þess taki oft á
tíðum mið af því.
„Það hefur verið mjög gaman að
vera þátttakandi í starfsemi félagsins
gegnum árin,“ segir Þórsteinn.
Sem fyrr segir frumsýndi
Leikdeild Eflingar á dögunum
leikverkið Í gegnum tíðina eftir Hörð
Þór Benónýsson og leikstýrir hann
verkinu sjálfur.
Í gegnum tíðina er frumsamið
gamanleikrit þar sem sögð er saga
íslenskrar bændafjölskyldu á seinni
hluta síðustu aldar, eða á tímabilinu
1950-1980. Fjölskyldumeðlimir
lenda í hinum ýmsu aðstæðum;
fara á síld, lenda í Kananum, upp-
lifa Bítlaæðið, fara á bændahátíð og
fleira. Í verkinu kemur fyrir mikill
fjöldi persóna, sem helgast af því
að leikritið var skrifað með þann
leikhóp í huga sem tekur þátt og
haft að leiðarljósi að allir fengju að
spreyta sig á sviðinu. Fjölmörg lög
frá þessum tíma fléttast inn í verkið,
sem hljómsveit undir stjórn Péturs
Ingólfssonar flytur.
/MÞÞ
FERMINGARGJAFIR
Útivistarföt á mjög
góðu verði. Ullar-
nærföt, flíspeysur,
íþróttaföt og fleira.
www.ullmax.is
Ullmax er
einnig fáanlegt
í styrktarsölu.
Ræktunardúkur
og Garðaplast
Meiri vernd
Meiri vöxtur
Sérsniðið
að þínum
þörfum
Áprentað og óáprentað
Sími: 580 5600 - plastprent.is
Sérfræðingar í umbúðalausnum
ÍBÚÐ AÐ BÓLSTAÐARHLÍÐ 41 Í REYKJAVÍK
Íbúðin er 70 fermetrar tveggja herb.á 3.hæð íbúð fyrir
60 ára og eldri.
Íbúðin er öll parketlögð,ný máluð. Öll tekin í gegn, svo
sem nýjar borðplötur, nýjir vaskar og blöndunartæki,
baðherbergi er nýlega endurnýjað með öryggisdúk á
gólfi og nýrri hornsturtu. Í húsinu er húsvörður, mikil
þjónusta er á jarðhæð á vegum Reykjavíkurborgar. Hús
í toppstandi nýmálað og allir gluggar nýjir. Staðsetning
íbúðar á besta stað í borginni.
Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá
fasteignasölunni EIGNAMIÐLUN.
Hægt er að sjá myndir www.eignamidlun.is.
Vinsælu netakerrurnar
komnar aftur á frábæru verði
Stutt
179.999 kr.
Löng
229.999 kr.
Aðalbjörg og Þórsteinn í Vallakoti heiðruð af Leikdeild Eflingar
Aðalbjörg Pálsdóttir og Þórsteinn Glúmsson í Vallakoti voru heiðruð fyrir
í liðinni viku, en svo skemmtilega vildi til að þau hjónin fögnuðu gull-
brúðkaupsafmæli sínu sama dag. Myndir / Hermann Aðalsteinsson.
Magnea Stefánsdóttir, bóndi í Val-
lakoti í Reykjadal í hlutverkum sínum
Bændablaðið á netinu... www.bbl.is