Bændablaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 20
20 Bændablaðið | fimmtudagur 15. mars 2012
Riða á bænum Merki á Jökuldal
Eins og kunnugt er hefur komið
upp riða á bænum Merki í
Jökuldal, þar sem eitt heilasýni úr
kind sem slátrað var á Vopnafirði í
haust reyndist jákvætt. Samkvæmt
greiningum á Tilraunastöðinni á
Keldum er riðan í flokki óhefð-
bundinna tilfella af riðu eða af
afbrigðinu NOR98 og er þetta
fjórði bærinn á Íslandi þar sem
þetta afbrigði greinist. Við þeim
tilfellum hefur verið brugðist
með niðurskurði, eins og um
hefðbundna riðu væri að ræða. Á
bænum eru nú um 540 kindur á
fóðrum. Allt fé í þessu varnarhólfi
var skorið niður fyrir tæpum tutt-
ugu árum, en síðasta tilfelli af riðu
kom upp í hólfinu 1997. Mikilvægt
er að taka skýrt fram að sam-
kvæmt bestu fáanlegu vísindum er
hvorki hefðbundin riða né afbrigði
af riðu talin geta borist í fólk og
valdið veikindum í því.
Allmikil umræða hefur orðið
vegna þessa tilfellis á Merki og að
það skuli vera af afbrigðinu NOR98.
Til fræðslu um þetta afbrigði vís-
ast í ágæta grein í Bændablaðinu
þann 1. mars sl. eftir dr. Stefaníu
Þorgeirsdóttur, sérfræðing á Keldum,
sem er okkar fremsti vísindamaður
á þessu sviði. Eins og fram kemur í
greininni ríkir nokkur óvissa um skil-
greiningu á þessu afbrigði. Samkvæmt
alþjóðlegum vísindagreinum er
afbrigðið talið geta verið smitandi,
en greinilega mun minna smitandi en
hefðbundin riða.
Komið hafa fram tillögur um að í
þessu tilfelli verði ekki skorið niður
með hefðbundnum hætti, heldur farin
ákveðin millileið, þar sem öllum kind-
um eldri en fimm ára, auk kinda sem
eru mest skyldar jákvæðu kindinni,
alls um 145 kindum, verði fargað
sem allra fyrst og heilasýni þeirra
rannsökuð. Finnist í þeim sýnum
eitt eða fleiri tilfelli af NOR98 eða
hefðbundinni riðu, verði engin áhætta
tekin og allar kindur á bænum skornar
og hreinsað til á bænum með hefð-
bundnum hætti. Komi ekkert jákvætt
sýni fram úr þessum kindum, þá verði
fylgst náið með eftirlifandi kindum
í nokkur ár, í samræmi við ákveðna
áætlun um mótvægisaðgerðir. Tillögur
þessar hafa m.a. komið úr heimahéraði
og talið er að nokkuð víðtæk sátt geti
verið um þær þar.
Áhættumat
Í máli sem þessu ber yfirdýralækni
að taka allar hliðar þess til faglegrar
skoðunar. Það hefur verið gert og má
þar nefna eftirfarandi atriði:
Á Íslandi er riða nefnd í viðauka
1A í lögum nr. 25/1993 um
dýrasjúkdóma og varnir gegn
þeim. Í reglugerð nr. 651/2001
um útrýmingu á riðuveiki og
bætur vegna niðurskurðar segir
í 3. gr. að ef riðuveiki er stað-
fest leggi yfirdýralæknir til við
landbúnaðarráðherra að við-
komandi hjörð verði lógað hið
fyrsta. Síðast kom upp NOR98
afbrigði af riðu í Hrútafirði og
þá, sem og í fyrri tilfellum, var
litið á málið með sama hætti og
hefðbundna riðu og allt fé skorið
niður. Það var svo í maí 2009,
sem Alþjóða dýrasjúkdómastofn-
unin (OIE) breytti skilgreiningu
sinni á þessu afbrigði og taldi
það ekki tilheyra hefðbundinni
riðu, en afbrigðið samt ekki skil-
greint sem sérstakur sjúkdómur.
Í athugasemdum við breytingu á
lögum nr. 25/1993, sem gerð var
á löggjafarþinginu 2000–2001,
kemur m.a. fram að nauðsynlegt
sé að gildandi sjúkdómaskrá
verði aðlöguð alþjóðlegum
stöðlum og leitast skuli við að
samræma skrána í takt við reglur
Alþjóða dýrasjúkdómastofnunar-
innar. Af þessu er ljóst að ekki er
lengur skylt að beita niðurskurði
vegna NOR98 afbrigðisins.
Eins og áður sagði er afbrigðið
talið geta verið smitandi, en
greinilega mun minna smitandi
en hefðbundin riða.
Því væri verið að taka ákveðna
áhættu, ef ekki yrði brugðist við
með niðurskurði og hefðbundinni
hreinsun.
Hversu mikil áhættan væri er
erfitt að gera sér grein fyrir. Með
því að farga nú þegar elstu kind-
unum, þar sem erlend tölfræði
segir okkur að séu mest líkindi
á að finna bæði þetta afbrigði og
einnig hefðbundna riðu, fengist
nokkur vísbending um umfang
áhættunnar og mætti þá haga síð-
ari aðgerðum í samræmi við það.
Hafa þarf í huga hvernig erlendar
þjóðir hafa brugðist við þegar
NOR98 eða önnur afbrigði af
riðu hafa verið greind. Norðmenn
greindu fyrstir þetta afbrigði árið
1998 og nefndu það því NOR98.
Í upphafi beittu þeir niðurskurð-
araðferðafræðinni á þessi tilfelli,
en árið 2004 ákváðu þeir að þess
væri ekki lengur þörf og hafa alls
fengið um 90 slík tilfelli, öll á
mismunandi svæðum í Noregi.
Engin ný tilfelli hafa komið upp
í þessum hjörðum, sem hafa
verið látnar lifa. Hefðbundin riða
hefur fyrst og fremst komið upp
í Suðvestur-Noregi, og við henni
er skorið niður með sambæri-
legum aðferðum og hafa lengi
tiðkast hér á landi með góðum
árangri. Þessar afbrigðilegu
riðutegundir hafa á allra síðustu
árum fundist á Nýja-Sjálandi og í
Ástralíu og þarlend yfirvöld hafa
ekki beitt niðurskurði í þeim til-
fellum. Ný tilfelli hafa ekki
komið upp í sömu hjörðum og
þessar ákvarðanir hafa ekki haft
nein áhrif á milliríkjaviðskipti
með lambakjöt, sem eru þessum
þjóðum gríðarlega mikilvæg.
Nauðsynlegt er að taka tillit
til þess að bærinn Merki er í
Jökuldal og í nágrenninu eru
a.m.k. 1500 fjár á nærliggjandi
bæjum. Að sumarlagi getur féð
frá Merki verið í samgangi við
fé frá þessum bæjum, auk fjár
úr Fljótsdal. Mikilvægt er að allir
fjáreigendur í þessu varnarhólfi
hafi skilning á þeim aðgerðum
sem fyrirhugaðar eru og að ekki
sé verið að taka óásættanlega
áhættu í þessu máli, því mikill
kostnaður var lagður í hreinsun
þessa hólfs og miklar fórnir færð-
ar af hálfu fjáreigenda vegna nið-
urskurðarins, sem framkvæmdur
var fyrir u.þ.b. 20 árum.
Með hliðsjón af ofangreindu telur
yfirdýralæknir það ásættanlega
áhættu að ekki verði farið í fullan
niðurskurð á öllu fé á Merki að
svo stöddu, heldur verði búið
tekið til sérstakrar rannsóknar
og unnið verði samkvæmt eftir-
farandi áætlun um mótvægisað-
gerðir til að lágmarka hugsanlega
áhættu í málinu:
a. Eins fljótt og auðið er verði farg-
að öllum kindum á Merki, sem eru
fimm ára og eldri, ásamt kindum
sem eru mest skyldar jákvæðu
kindinni. Heilasýni úr þeim verði
rannsökuð og ákvörðun um frek-
ari niðurskurð tekin í framhaldi af
niðurstöðum rannsókna. Finnist eitt
eða fleiri jákvætt sýni af afbrigðinu
NOR98 eða hefðbundinni riðu, þá
falli aðgerðaáætlun þessi úr gildi
og strax verði óskað eftir því við
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðuneytið að niðurskurði á allri
hjörðinni verði beitt, í samræmi
við 8. gr. laga nr. 25/1993, með til-
heyrandi sótthreinsunaraðgerðum
og fjárleysi í tvö ár.
b. Finnist engin jákvæð sýni við
niðurskurði nú, þá verði bærinn
og nærliggjandi bæir settir undir
sérstakt eftirlit héraðsdýralæknis.
c. Næsta haust yrðu um 70 kindur,
sem verða þá orðnar 5 ára, felldar
og rannsakaðar. Fyndist eitt til-
felli af NOR98 í þessum ríflega
70 kindum yrði öll hjörðin skorin,
sbr. lið a) hér að ofan. Fyndist ekk-
ert tilfelli í þessum kindum yrði
heimilt að kaupa líflömb að Merki
haustið 2012.
d. Jafnframt yrðu allar fullorðnar
kindur á Merki og nágrannabæjum
undir sérstöku eftirliti, og þær sem
falla eða verða felldar skulu rann-
sakaðar næstu árin. Eftir 5 ár, þegar
liðin eru 20 ár frá síðasta riðutilfelli
í Héraðshólfi, væri sjúkdómastaða
þess metin í ljósi þess sem gerst
hefur á þessum 5 árum. Hafi þá
ekki komið upp annað tilfelli af
NOR98 eða hefðbundinni riðu á
þessum bæjum eða öðrum bæjum
í hólfinu væri rökrétt að lýsa
Héraðshólf riðufrítt, að teknu til-
liti til þess hvað rannsóknir hafa
sýnt um smithættuna af NOR98.
Þar sem enn er margt á huldu
um afbrigði þetta, þá telja sérfræð-
ingar á þessu sviði á Keldum og
Matvælastofnun mjög nauðsynlegt
að við framkvæmd ofangreindrar
aðgerðaáætlunar um niðurskurð, verði
heilasýni tekin úr öllum fullorðnum
kindum frá Merki og öðrum bæjum
undir eftirliti um leið og þær eru felld-
ar eða drepast. Sýnum verði komið
til greiningar á Keldum til að kanna
hvort fleiri tilfelli af þessu afbrigði
finnist, eða jafnvel af hefðbundinni
riðu. Ennfremur telja sérfræðingarnir
nauðsynlegt í þágu rannsóknarhags-
muna að gerðar verði sérstakar arf-
gerðargreiningar á öllu þessu fé.
Yfirdýralæknir telur nauðsynlegt
í framhaldi af þessu tilfelli á Merki
að Matvælastofnun framkvæmi sér-
stakt og vandað áhættumat á þessu
afbrigði af riðu. Kanna þarf nýjar
upplýsingar í hinum alþjóðlega vís-
indaheimi og einnig breyttar skil-
greiningar á afbrigðinu sem hafa
verið að koma fram á síðustu miss-
erum. Jafnframt þarf að meta hvort
það kunni að vera nauðsynlegt að
endurskoða núgildandi fyrirkomulag
og móta framtíðarstefnu um aðgerðir
sem grípa skuli til ef þetta afbrigði af
riðu greinist aftur hér á landi. Þetta
áhættumat gæti einnig orðið liður í
hugsanlegum tillögum um nauðsyn-
legar lagabreytingar þar að lútandi.
Að því gefnu að ofangreind
aðgerðaáætlun verði samþykkt telur
yfirdýralæknir ásættanlega áhættu að
fylgja henni og hefur þegar mælt með
því við sjávarútvegs- og landbúnað-
arráðherra, að ráðuneytið gangi sem
allra fyrst til samninga við ábúendur
á Merki um framkvæmd áætlunar-
innar. Þar komi m.a. fram að fullar
förgunarbætur og afurðatjónsbætur
verði greiddar fyrir allar kindur sem
hafa verið felldar og verði felldar
vegna áætlunarinnar.
Halldór Runólfsson,
yfirdýralæknir, Matvælastofnun
Halldór Runólfsson.
„Nauðsynlegt er að taka tillit til þess að bærinn Merki er í Jökuldal og
í nágrenninu eru a.m.k. 1500 fjár á nærliggjandi bæjum. Að sumarlagi
getur féð frá Merki verið í samgangi við fé frá þessum bæjum auk fjár
úr Fljótsdal. Mikilvægt er að allir fjáreigendur í þessu varnarhólfi hafi
skilning á þeim aðgerðum sem fyrirhugaðar eru og að ekki sé verið að
taka óásættanlega áhættu í þessu máli, því mikill kostnaður var lagður í
hreinsun þessa hólfs og miklar fórnir færðar af hálfu fjáreigenda vegna
niðurskurðarins, sem framkvæmdur var fyrir u.þ.b. 20 árum.
Með hliðsjón af ofangreindu þá telur yfirdýralæknir það ásættanlega
áhættu að ekki verði farið í fullann niðurskurð á öllu fé á Merki að svo stöddu,
heldur verði búið tekið til sérstakrar rannsóknar og að unnið verði samkvæmt
eftirfarandi áætlun um mótvægisaðgerðir til að lágmarka hugsanlega áhættu
í málinu."
Áhættumat