Bændablaðið - 15.03.2012, Page 21
21Bændablaðið | fimmtudagur 15. mars 2012
Miðvikudaginn 7. mars var skrif-
að undir samstarfssamning sem
miðar að stofnun svæðisgarðs á
Snæfellsnesi (e. regional park).
Hér er um að ræða fyrsta svæðis-
garðinn sem stofnaður er á Íslandi,
en svæðisgarðar eru þekktir víða um
Evrópu sem hornsteinar í atvinnu-
uppbyggingu, þar sem sérstaða og
landkostir svæða hafa verið nýtt
á markvissan hátt til að auka fjöl-
breytni í atvinnulífi. Litið verður til
tækifæra sem tengjast hvers konar
matvælaframleiðslu, ferðaþjónustu,
vöruhönnun og listsköpun, rann-
sóknum og fræðslu.
Þetta er um margt óvenjulegt
og merkilegt framtak, þar sem
heimamenn ákváðu að snúa vörn í
sókn með því að undirbúa stofnun
svæðisgarðs og vinna saman að
atvinnuþróun og eflingu byggðar
á Snæfellsnesi, með aðferðum sem
hafa gefið góða raun erlendis.
Þetta er uppbygging innan
frá, byggð á staðbundnum auð-
lindum, nýtingu og vernd þeirra.
Samstarfshópur aðilanna sem að
standa er einnig óvenjulegu breiður;
sveitarfélögin fimm, búnaðarfélög,
Ferðamálasamtök Snæfellsness,
Starfsmannafélag Dala- og
Snæfellsnessýslu og Snæfell, félag
smábátaeigenda á Snæfellsnesi.
Í þeirri vinnu sem nú fer af stað
verður samfélagið virkjað á nýstár-
legan hátt til að greina sérstöðu
svæðisins og þau tækifæri sem felast
í nærtækum gæðum Snæfellsnessins
til sjávar og sveita, í því skyni að
styrkja stoðir undir fjölbreyttari
atvinnusköpun.
Uppbygging svæðisgarðs er
langtímaverkefni, en unnið verður
markvisst að tilgreindum áföngum
á þeirri vegferð næstu tvö árin - og
um þá er samið.
Gleraugnaverslunin þín
Marstilboð
í Augastað
Frí
lesgler
þegar þú kaupir margskipt
gleraugu í Augastað
Lesgler fylga með ef
þú kaupir margskipt gler
og umgjörð í Augastað.
MJÓDDIN
Álfabakka 14
Sími 587 2123
FJÖRÐUR
Fjarðargötu 13-15
Sími 555 4789
SELFOSS
Austurvegi 4
Sími 482 3949
Tilboðið gildir til 31. mars 2012.
Landssamtök sauðfjárbænda
og fagráð í sauðfjárrækt
halda málþing um ræktunarmarkmið greinarinnar,
föstudaginn 30. mars nk. frá kl. 13.00-16.30
Málþingið verður haldið á Hótel Sögu í tengslum við aðalfund
LS 2012
Dagskrá:
1. Ræktunarskipulag og ræktunarmarkmið í sauðfjárrækt í
Noregi
Thor Blichfeldt, Norsk Sau og Geit
2. Skyldleikarækt og erfðaframlag helstu ættfeðra í sauðfjár-
stofninum
Eyjólfur Ingvi Bjarnason BÍ og Þorvaldur Kristjánsson LbhÍ
3. Samhengi fitustigs og stærðar – Lífeðlisfræðilegir og erfða-
fræðilegir þættir
Jóhannes Sveinbjörnsson og Emma Eyþórsdóttir, LbhÍ
4. Ræktunarmarkmið fyrir íslenskt sauðfé – tillaga starfshóps
Sigurður Þór Guðmundsson, Búgarði
5. Þróun afurðasemi í skýrsluhaldi undanfarin ár
Jón Viðar Jónmundsson, BÍ.
Fyrirspurnir og umræður.
Fundarstjórar: Þórarinn Ingi Pétursson og Anna Margrét
Jónsdóttir
Allir velkomnir.
Árshátíð Landssamtaka
sauðfjárbænda
verður haldin föstudaginn 30.
mars nk. í Súlnasal Hótel Sögu
Hátíðin hefst kl 19.00 með fordrykk, en borðhald
hefst kl. 20. Skemmtidagskrá undir borðum og
dansleikur með hljómsveit Geirmundar að loknu
borðhaldi.
Veislustjóri verður Guðni Ágústsson og
ræðumaður kvöldsins Ágúst Sigurðsson, rektor
Landbúnaðarháskólans. Félagar úr Voces Masculorum
skemmta
Forréttur: Rjómalöguð sjávarréttasúpa með
gulrótarflani
Aðalréttur: Lambahryggvöðvi með smjörbakaðri
kartöflu, fennelsalati og rauðvínssósu
Eftirréttur: Kókos búðingur með ananas og myntu
Miðaverð fyrir mat, skemmtun og dansleik er kr. 6.500.
Tekið er við miðapöntunum hjá Bændasamtökunum í
síma 563-0300. Fáir miðar eftir.
Fordrykkur í boði VÍS
Arion banki
Búaðföng
Dýralæknamiðstöðin
Hellu
Dýralæknaþjónusta
Suðurlands
Fjallalamb
Fóðurblandan
Íslandsbanki
Ístex
Jötunn vélar
Kaupfélag A-Skaftfellinga
Kaupfélag Borgfirðinga
Kaupfélag Skagfirðinga
Kaupfélag V-Húnvetninga
Landstólpi
Mýr-Lax
N1
Norðlenska
Olís
Pakkhúsið Hellu
SAH afurðir
Skeljungur
Sláturfélag Suðurlands
Sláturfélag Vopnfirðinga
Sláturhús KVH
Vélfang
Árshátíðarnefnd LS þakkar eftirtöldum aðilum
stuðninginn.
Snæfellingar snúa vörn í sókn
-Hafa stofnað fyrsta "svæðisgarðinn" á Íslandi að erlendri fyrirmynd
Frá Snæfellsnesi. Myndir / Árni Geirsson.
Frá undirritun samninga um fyrsta
svæðisgarðinn á Íslandi. Athöfnin
fór fram í safninu í Bjarnarhöfn á
Snæfellsnesi.
Gyða Steinsdótt ir bæjarstjór i Stykk-
ishól msbæjar og formaður stýrihóps
svæðisgarð sverkefnisins , kynnir
verkefnið.
Halldóra Hreggviðsd óttir prófaði
saltað selspik - og Sigurjón mælti
með hákarli til að eyða eftirbragði
selsins.
Guðbjartur bóndi á Hjarðarfel li og
oddviti Eyja- og Miklaholts hrepps og
Guðrún Lilja bóndi á Eiði, Eyrarsveit
og stjórnarma ður í Búnaðarfél agi
Eyrarsveit ar.
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300