Bændablaðið - 15.03.2012, Side 26
26 Bændablaðið | fimmtudagur 15. mars 2012
Ályktanir Búnaðarþings 2012
– Alls lágu 23 mál fyrir þinginu til afgreiðslu að þessu sinni
Búnaðarþingi 2012 var slitið að
kvöldi hlaupársdags, 29. febrúar
síðastliðins. Sökum þess hversu
lengi fram eftir þingið stóð
gafst ekki færi á að koma öllum
ályktunum þingsins í síðasta
Bændablað, sem fór í prentun fyrr
sama dag. Skal nú bætt úr því.
Að þessu sinni lágu 23 mál fyrir
þinginu. Eins og gengur og gerist
tóku þau sum hver breytingum í
meðförum þingnefnda og þingsins
sjálfs. Þær ályktanir sem þingið
samþykkti eru birtar hér en auk
þeirra samþykkti þingið reikninga
Bændasamtakanna og fjárhags-
áætlun fyrir árið 2011. Þá voru sam-
þykktar breytingar á samþykktum
sjóða í vörslu samtakanna með það
að markmiði að auðvelda umsýslu
og nýtingu viðkomandi sjóða. Eitt
mál, um notkun og nýtingarmögu-
leika ríkisjarða, kom ekki úr nefnd
og öðru máli, um fyrirkomulag
álagningar og útgreiðslu búnaðar-
gjalds, var vísað til stjórnar.
» Eftirlit í landbúnaði
Markmið: Að farið verði yfir fyrir-
komulag og stjórnsýslu þeirra opin-
beru stofnana sem annast eftirlit með
landbúnaðinum, aðföngum hans og
afurðum. Í ljósi þeirra mörgu vanda-
mála sem upp hafa komið undanfarin
misseri er tímabært að skoða með
gagnrýnum huga allt fyrirkomulag
eftirlits í greininni. Þess skal freistað
að byggja upp traust á eftirlitsaðilum
að nýju, bæði meðal afurðastöðva,
bænda og neytenda.
Framgangur: Búnaðarþing 2012
felur stjórn BÍ að fylgja málinu eftir
gagnvart stjórnvöldum.
» Tvöföld búseta
Markmið: Fólki verði gert kleift að
taka þátt í kostnaði við rekstur fleiri
en eins sveitarfélags með skiptingu
útsvars.
Leiðir: Einstaklingum verði heimilt
að skrá tvöfalda búsetu þannig að
útsvarstekjur skili sér í réttu hlutfalli
við búsetutíma.
Framgangur: Ályktun verði send
Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
innanríkisráðuneyti og fjármálaráðu-
neyti.
» Eldsneytisverð
Markmið: Að lækka eldsneytisverð,
en hækkun þess kemur hvað harðast
niður á landsbyggðinni.
Leiðir: Að dregið verði úr skatt-
lagningu á eldsneyti.
Framgangur: Ályktun verði send
fjármálaráðuneyti og efnahags- og
viðskiptanefnd Alþingis.
» Orkuverð og dreifing
orku
Markmið: Að kostnaður við flutning
og dreifingu á raforku verði jafnaður
að fullu fyrir alla notendur almenn-
ingsveitna.
Leiðir: Flutnings- og dreifikerfi
landsins verði sameinuð í eina heild
með eina gjaldskrá.
Framgangur: Ályktuninni verði
fylgt eftir af stjórn BÍ, m.a. með
viðræðum við stjórnvöld.
» Þriggja fasa rafmagn
Markmið: Að tryggður verði eins
og kostur er aðgangur allra raforku-
notenda í dreifbýli að þriggja fasa
rafmagni.
Leiðir: Að endurnýjun á einfasa
dreifikerfi verði hraðað en boðið upp
á aðrar lausnir í þeim tilvikum sem
fyrirsjáanlegt er að það verði ekki
endurnýjað á næstu árum.
Framgangur: Ályktuninni verði
fylgt eftir af stjórn BÍ.
» Dýralæknaþjónusta og
dýravelferð
Markmið: Búnaðarþing krefst þess
að eigendur og umráðamenn búfjár
og annarra dýra geti nálgast dýra-
læknaþjónustu innan skynsamlegra
tímamarka um land allt.
Víða um land eru þjónustusvæði
dýralækna orðin það stór að virk
neyðarþjónusta er tæpast fyrir hendi.
Af sömu ástæðum hefur kostnaður
hækkað stórlega. Verði ekki bætt
úr er dýravelferð í landinu stefnt
í hættu, á sama tíma og stjórnvöld
hyggjast setja ný og strangari lög
um velferð dýra.
Leiðir: Í reglugerð nr. 539/2000
um heimildir dýralækna til að
ávísa lyfjum verði bætt við heimild
til dýralækna til að gera þjónustu-
samninga við bændur að norrænni
fyrirmynd, sem felur í sér að bændur
megi eiga lyf og hefja lyfjameð-
ferð í samráði við sinn dýralækni að
undangengnu námskeiði í meðferð
og geymslu lyfja.
Bera þarf lög og reglugerðir um
dýralæknaþjónustu og afhendingu
dýralyfja saman við sambærilega
löggjöf á Norðurlöndunum.
Fara þarf yfir stöðu dýraheil-
brigðisþjónustu um land allt og
meta hvar úrbóta er þörf, bæði á
skilgreindum þjónustusvæðum
MAST og annars staðar. Bændur,
dýralæknar, MAST og stjórnvöld
þurfa að koma að þeirri vinnu og
leita lausna.
Taka þarf til endurskoðunar
þætti eins og starfsaðstöðu dýra-
lækna, afleysinga- og bakvaktafyrir-
komulag og lyfjabúr á afskekktum
svæðum.
Vaktsíma verður að auglýsa
með góðum og aðgengilegum hætti
þannig að bændur og aðrir dýra-
eigendur hafi greiðan aðgang að
upplýsingum.
Kvörtunarferli vegna dýralækna-
þjónustu verður að vera aðgengilegt
og skýrt fyrir bændur.
Framgangur: Stjórn BÍ verði falið
að fylgja málinu eftir af fullum
þunga gagnvart hlutaðeigandi
aðilum.
» Tilraunaverkefni um
dýralæknaþjónustu
Markmið: Að bæta dýralæknaþjón-
ustu og auka velferð dýra á erfiðum
svæðum.
Leiðir: Leitað verði leiða að koma
á fót tilraunaverkefni til ákveðins
tíma sem felur það í sér að á ákveðnu
svæði mundi leiðbeiningamiðstöð
gera þjónustusamninga að danskri
fyrirmynd við bændur um reglu-
bundnar heimsóknir (fyrirbyggj-
andi dýralæknaþjónustu); einnig
með það að markmiði að í samræmi
við fyrri ályktanir búnaðarþings og
skýrslu lyfjanefndar væri hægt að
halda lyf til notkunar í samráði við
dýralækninn. Leitað verði samstarfs
við stjórnvöld (MAST og ráðuneyti),
Dýralæknafélag Íslands svo og aðra
aðila.
Verkefninu verði komið af stað
með fjárframlagi frá Ráðgjafarsviði
Bændasamtakanna og viðkomandi
leiðbeiningarmiðstöð gegn mótfram-
lagi frá öðrum aðilum t.d. sjóðum,
sveitarfélögum og MAST.
Gert er ráð fyrir því að verkefnið
geti staðið undir sér í framtíðinni.
Framgangur: Stjórn Bænda-
samtakanna er falið að vinna að
verkefninu.
» Leiðbeiningaþjónusta í
landbúnaði
Markmið: Búnaðarþing 2012 telur
að efla þurfi faglegan styrk og auka
hagkvæmni leiðbeiningaþjónustu í
landbúnaði. Í því skyni verði ráð-
gjafarstarfsemi búnaðarsambandanna
og Bændasamtaka Íslands sameinuð í
eina rekstrareiningu. Markmið breyt-
inganna er að tryggja bændum aðgang
að sambærilegri ráðgjöf á sömu
kjörum hvar sem þeir búa á landinu,
auka faglegt samstarf ráðunauta og
nýtingu mannafla og gera ráðgjafar-
störfin eftirsóknarverð.
Leiðir: Framlög til leiðbeiningaþjón-
ustu verði hækkuð og þau sameinuð í
eitt framlag við endurnýjun búnaðar-
lagasamnings í árslok 2012.
Eftirlaunaskuldbindingar BÍ og
búnaðarsambanda, sem tengjast ráð-
gjafarþjónustunni, verði fjármagnaðar
sameiginlega eða samið um að þær
falli til hins opinbera við endurnýjun
samningsins.
Byggt verði á tillögum Ole
Kristensen og auglýst eftir sérstökum
verkefnisstjóra til að undirbúa starf-
semina og rekstrarlegt fyrirkomulag
hennar. Sem fyrst verði notendahópar
búgreina skipaðir, til faglegrar ráð-
gjafar um mótun starfsins.
Fjárhagsleg ábyrgð verði á hendi
Bændasamtaka Íslands.
Framgangur: Bændasamtökin þurfa
í komandi samningaviðræðum um
búnaðarlagasamning að freista þess
að afla stuðnings stjórnvalda við ofan-
greindar tillögur, með því markmiði
að nýtt fyrirkomulag geti tekið gildi
um leið og nýr búnaðarlagasamningur
í ársbyrjun 2013. Þá skulu samhliða
vinnu við samninginn gerðar til-
lögur að nauðsynlegum breytingum
á búnaðarlögum. Leita þarf samninga
við búnaðarsambönd og leiðbeininga-
miðstöðvar um fyrirkomulag á yfir-
færslu starfsmanna og búnaðar og um
önnur þau atriði sem máli skipta við
uppbyggingu nýs fyrirkomulags.
» Rannsóknir í
landbúnaði
Markmið: Að landbúnaðarhá-
skólum verði tryggt fjármagn til
að standa að öflugu rannsóknar-
starfi fyrir landbúnaðinn. Jafnframt
verði tengsl atvinnuvegarins við
háskólana efld.
Niðurstöðum rannsókna verði
komið betur á framfæri við þá sem
þær nýtast.
Leiðir: Við endurskoðun samnings
milli Landbúnaðarháskóla Íslands
(LBHÍ) og Sjávarútvegs-og landbún-
aðarráðuneytis (SLR) verði komið á
formlegum samráðsvettvangi milli
atvinnuvegarins, LBHÍ og SLR um
framkvæmd og forgang í verkefna-
vali.
Að greinasafn landbúnaðarins
verði eflt, leitarmöguleikar lagaðir
og það gert sýnilegra á vefmiðlum
bænda.
Framgangur: Stjórn BÍ falið að fylgja
málinu eftir.
» Hugbúnaðarþróun í
landbúnaði
Markmið: Búnaðarþing leggur áherslu
á að öll vefforrit Bændasamtakanna
verði þróuð áfram í takt við kröfur
notenda hverju sinni. Þróunarvinnan
byggist á samvinnu ráðgjafarsviðs,
tölvudeildar og bænda um forgangs-
röðun verkefna.
Strax verði ráðist í nauðsynlegar
uppfærslur á fjarvis.is í samráði við
fagráð, jafnhliða þróun á nýrri kyn-
slóð af vefforriti fyrir sauðfjárbændur
þar sem tekið verði mið af tæknifram-
förum í hug- og vélbúnaði, þ.m.t.
spjaldtölvu- og snjallsímalausnum.
Þá verði haldið áfram að þróa
vefforrit fyrir landsmarkaskrá,
sem verði hluti af hugbúnaðarflóru
Bændasamtakanna.
Tryggt verði fjármagn til þess að
Bændasamtökin geti áfram verið í
BÚNAÐARÞING
2012
ÁF
RA
M
ÍSL
EN
SK
UR
LA
ND
BÚ
NA
ÐU
R
»Ályktanir