Bændablaðið - 15.03.2012, Síða 29
29Bændablaðið | fimmtudagur 15. mars 2012
Sauðburður og burðarhjálp
Eyjólfur Kristinn Örnólfsson
sérfræðingur hjá LbhÍ
Haldið 3. apríl á Skeiðum og
Fræðslufyrirlestur um
kynbótamat íslenskra hrossa
Í samstarfi við Hestamannafélagið Dreyra
Dr. Elsa Albertsdóttir LbhÍ
Haldið 12. apríl á Akranesi
Tálgunarnámskeið
- ferskar viðarnytjar
Ólafur Oddsson Skógrækt ríkisins
Hefst 13. apríl hjá LbhÍ í Hveragerði
Að breyta sandi í skóg
- endurheimt skóglendis
Í samstarfi við Hekluskóga og Héraðs- og
Austurlandsskóga
Ása L. Aradóttir prófessor við LbhÍ,
Hreinn Óskarsson Hekluskógum,
Úlfur Óskarsson lektor við LbhÍ og
Þröstur Eysteinsson Skógrækt ríkisins
Hefst 13. apríl hjá LbhÍ í Hveragerði
og 20. apríl á Egilsstöðum
Notkun plöntuvarnarefna í
landbúnaði og garðyrkju
Ýmsir sérfræðingar
Hefst 17. apríl hjá LbhÍ í Reykjavík
Ísgerð
Í samstarfi við Farskólann
Jón Brynjar Birgisson mjólkurfræð-
ingur og ísáhugamaður
Haldið 23. apríl á Sauðárkróki og 24.
apríl á Hvammstanga
Baráttan við illgresið
- í tún-, garð- og kornrækt
Jón Guðmundsson plöntulíffræðingur
Haldið 25. apríl á Stóra Ármóti og
Pottaplöntuskreytingar
Guðrún Brynja Bárðardóttir brautar-
stjóri Blómaskreytingabrautar LbhÍ
Haldið 27. apríl hjá LbhÍ í Hveragerði
Tögl - frá sterti til handverks
Lene Zachariassen hagleikskona
Hefst 11. maí hjá LbhÍ á Hvanneyri
Endurmenntun LbhÍ
Húsgagnagerð úr skógarefni
Ólafur Oddsson Skógræktar ríkisins
Hefst 16. mars í Vaglaskógi og
Bygging hrossa
Í samstarfi við Hrossaræktarsamtök
Austurlands
Þorvaldur Kristjánsson, kynbóta-
dómari og sérfræðingur hjá LbhÍ
Haldið 17. mars á Egilsstöðum
Bætt mjólkurgæði
Snorri Sigurðsson ráðgjafi hjá Viden-
centeret for landbrug í Danmörk
Haldið 20. mars á Hvanneyri og í
fjarfundi á Egilsstaði, á Sauðárkrók
og á Vík
Brúðkaupsskreytingar
Gitte Nielsen blómaskreytir
Hefst 21. mars hjá LbhÍ í Hveragerði
Betri fjós
Snorri Sigurðsson ráðgjafi hjá Viden-
centeret for landbrug í Danmörk
Haldið 22. mars á Stóra Ármóti
Framhald af dkBúbót
Í samstarfi við Búnaðarsamtök Vesturland
og Búnaðarsamband Austurlands
Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi og
Torfi Bergsson ráðunautur
Haldið 26. mars í Önundarfirði og
Útfaraskreytingar
Gitte Nielsen blómaskreytir
Hefst 28. mars hjá LbhÍ í Hveragerði
Virðing og traust hests og knapa
Gunnar Reynisson hestafræðingur
hjá LbhÍ
Hefst 30. mars hjá LbhÍ, Mið Fossum
Páskaskreytingar
Guðrún Brynja Bárðardóttir brautar-
stjóri Blómaskreytingabrautar LbhÍ
Haldið 31. mars í Hveragerði
Ræktun áhugaverðra krydd-,
lauk- og matjurta í eigin garði
Í samstarfi við Fræðslumiðstöð Vestfjarða
Auður Jónsdóttir garðyrkjufræðingur
Haldið 31. mars í Tjarnalundi í Dölum
Allar nánari upplýsingar má finna á
www.lbhi.is/namskeid
Skráning fer fram á endurmenntun@lbhi.is
eða í síma 433 5000
Við erum líka á Facebook - facebook.com/namskeid
Héraðs- og Austurlandsskógar gefa út bækling um bilun ungskóga:
Mikilvægt að grisjun sé sinnt á réttum
tíma og á réttan hátt
Á síðasta ári fögnuðu Héraðs- og
Austurlandsskógar því að 20 ár
voru liðin frá formlegri stofnun
Héraðsskóga, fyrsta landshluta-
verkefnisins í skógrækt, og að 10
ár voru síðan Austurlandsskógar
tóku til starfa. Formlegur stofn-
dagur Austurlandsskóga var að
vísu ekki fyrr en árið 2002 en
verkefnið hóf starfsemi sína árið
2001. Verkefnin tvö voru sameinuð
í ársbyrjun 2007 og starfa nú sem
eitt af fimm landshlutaverkefnum
í skógrækt.
Nauðsynlegt að grisja
Ólöf I. Sigurbjartsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Héraðs- og
Austurlandsskóga, segir að saga
skógræktar á Héraði eigi sér þó mun
lengri sögu en þau 20 ár sem liðin eru
frá því Héraðsskógar hófu starfsemi
sína. Tré hafi verið gróðursett eftir
svonefndri Fljótsdalsáætlun þegar
árið 1970.
„Sá skógur sem vaxið hefur og
dafnað á Héraði síðan er nú víða
kominn í þá stærð að nauðsynlegt
er orðið að grisja eða bila, eins og
fyrsta grisjun er gjarnan kölluð,“
segir Ólöf. Með orðinu „bilun“ er
vísað í það að farið er inn í ungskóga
og bil milli trjáa jafnað, ásamt því að
á þeim tímapunkti fer fram val; bestu
einstaklingarnir eru látnir standa en
lakari tré eru höggvin. Til að hámarka
viðarvöxt er mjög mikilvægt að þess-
ari vinnu sé sinnt á réttum tíma og
á réttan hátt.
Leiðarvísir fyrir bilun
Starfsfólk Héraðs- og Austur-
landsskóga hefur undanfarin tvö
ár unnið að gerð bæklings sem er
leiðarvísir fyrir bilun, tvítoppa-
klippingu og uppkvistun trjáa.
Bæklingurinn, sem nú er nýkominn
út, var unninn í tengslum við þátt-
töku Héraðs- og Austurlandsskóga
í Evrópusambandsverkefninu
PELLETime. Í bæklingnum er
farið ýtarlega yfir þá aðferðafræði
sem fylgt er við bilunina og útskýrt
á myndrænan hátt hvernig fram-
kvæmdum verði best hagað og hvaða
mistök beri að varast. Bæklingurinn
hefur verið notaður sem grunn-
efni við námskeiðahald Héraðs- og
Austurlandsskóga í umhirðu ung-
skóga og aðlagaður sérstaklega til
þess að nýtast sem slíkur.
Skógarhöggsmenn ný stétt
á Íslandi
Ólöf segir að nú vinni á annan
tug skógarhöggsmanna við bilun í
skógum nokkurra jarða á Héraði.
„Nýverið var þeim merka áfanga
náð að lokið var við fyrstu grisjun á
fyrstu jörðinni, en það var að Ásgarði
hjá Viðari Eiríkssyni og Guðnýju
Jónsdóttur,“ segir hún. Þar voru
það skógarhöggsmennirnir Borgþór
Jónsson og Kristján Már Magnússon
sem unnu verkið. Í tilefni áfangans
var boðið upp á tertu og kaffi í skóg-
inum í Ásgarði.
„Á Héraði öllu liggur fyrir mikil
vinna við fyrstu grisjun ungskóganna
sem þar eru að vaxa upp og skógar-
höggsmenn eru ný stétt á Íslandi,“
segir Ólöf. Hún nefnir einnig að um
þessar mundir eigi sér stað mikil
þróun í úrvinnslumálum. „Margir eru
að velta fyrir sér þeim möguleikum
sem nú eru fyrir hendi með tilkomu
nýjustu auðlindarinnar, skóga lands-
ins.“
Spennandi tímar framundan
Starfsemi Héraðs- og
Austurlandsskóga verður með hefð-
bundnu sniði á komandi sumri, en
Ólöf segir að verulega hafi dregið
úr gróðursetningum undanfarin ár.
„Við munum kosta gróðursetningu
á 700 til 750 þúsund plöntum í ár
en þegar mest var árið 2008 voru
þær 1,5 milljónir,“ segir hún. „Stóra
málið hjá okkur núna er grisjun,
enda mjög áríðandi að vinna að þeim
málum á réttum tíma - gríðarlegur
viðarvöxtur getur tapast ef ekki er
farið inn í skógana á réttum aldri.“
Hún segir skógarmenn eystra
almennt vera bjartsýna á framtíðina
og mikil gerjun sé í úrvinnslumálum.
„Margir eru að velta fyrir sér
tækjum og tólum sem henta til að
sækja timbrið inn í skógana og einnig
til að vinna úr því. Hingað til hafa
aðallega verið framleiddir girðingar-
staurar og kurl úr þessum efnivið en
á síðasta ári tók til starfa brettaverk-
smiðja í Fljótsdal sem vinnur að hluta
til úr efnivið frá nærliggjandi jörðum.
Það er óhætt að segja að spennandi
tímar séu framundan og tækifærin til
nýsköpunar mörg í greininni,“ segir
Ólöf. /MÞÞ
og árhringir síðustu ára orðnir mjög litlir.
Bændablaðið
kemur næst út 29. mars
Smáauglýsingar 56-30-300