Bændablaðið - 15.03.2012, Side 39
39Bændablaðið | fimmtudagur 15. mars 2012
Vélabásinn
Mercedes Benz B-Class:
Glæsilegur fjölskyldubíll
á viðráðanlegu verði
Tæknilega afar vel búinn og innréttingar í sérflokki
Síðastliðinn laugardag frumsýndi
Askja Mercedes Benz B-Class fjöl-
skyldubíl á viðráðanlegu verði,
sparneytinn bíl sem er fullur af
allskonar öryggisbúnaði bæði
innan sem utan. Undirritaður brá
sér á frumsýninguna og fékk að
prófa gripinn.
Þegar ég settist inn í bílinn hafði
ég á orði við son minn, sem var með
mér, að ég hefði sennilega aldrei sest
inn í bíl með flottari innréttingu.
Eftir að hafa sett bílinn í gang
hugðist ég bakka bílnum út úr stæð-
inu, en hvar er gírstöngin, spurði ég
son minn? Jú, gírstöngin er hægra
megin á stýrinu, þar sem flestir bílar
eru með framrúðuþurrkurofann og
er upp afturábak (R) og niður áfram
(D). Fyrir vikið kom það fyrir mig
tvisvar að setja bílinn í hlutlausan
(N) þegar ég ætlaði að kveikja á
þurrkunum á framrúðunni, eins og
staðsetningin er í mínum bíl.
Stopp/start-búnaður á vél
Eins og í síðustu tveimur bílum
sem ég hef fjallað hér um í blaðinu
drepur vélin í þessum sjálfkrafa á
sér þegar stoppað er í umferðinni í
lengri eða skemmri tíma og er dautt
á mótornum eins lengi og maður
stendur á bremsunni, en um leið og
bremsunni er sleppt ræsir vélin sig
sjálfkrafa. Virðist þetta vera orðinn
staðalbúnaður í mörgum nýjum bílu,
til að draga úr mengun og spara elds-
neyti.
Frábært skynjarakerfi fyrir
umhverfi og ökumann
Benz hefur alltaf lagt mikið upp
úr öryggi og í bílnum er nemi sem
nemur hvort ökumaður er orðinn
syfjaður, en kvikni ljós í mæla-
borðinu sem er eins og kaffibolli er
tímabært að gera hlé á akstrinum og
fá sér kaffi eða leggja sig. Einnig
eru skynjarar á hliðum bílsins sem
skynja hvort eitthvað er við hliðina
á bílnum á svo kölluðum „blindum
punkti“ (Blind Spot Assist), en sá
staður er aftur með hliðum bíla,
sést oft ekki í hliðarspeglunum
og hefur verið reiðhjóla- og bif-
hjólafólki sérstaklega hættulegur.
Búnaðurinn lætur vita með þýðum
titringi í stýrinu ef einhver hlutur er
við hliðina á bílnum á þessum stað.
Besti neminn er án efa nálægðar-
neminn í bílinn fyrir framan, en ef
ekið er á hraða yfir 30 km á klst. og
maður fer of nálægt bílnum fyrir
framan, kviknar rautt þríhyrnings-
laga ljós í mælaborðinu. Svona
búnað mætti gera að skyldubúnaði
í öllum bílum að mínu mati.
Bakkmyndavél er í Benz B-Class
og sést ágætlega afturfyrir bílinn í
myndavélinni, en þegar ég ók skít-
ugan malarveg óhreinkaðist linsan
fljótt. Það er vandamál sem þarf að
finna lausn á.
Hverrar krónu virði
Ódýrasti Benz B-Class er 6 gíra bein-
skiptur á 4.485.000, en hægt er að
fá bílinn í mörgum útgáfum og með
ýmsum aukaþægindum. Bíllinn sem
ég prófaði var sjálfskiptur með dísil-
vél með mjög vandaða innréttingu
og kostar nálægt sex milljónum. Eftir
prufuaksturinn verð ég að segja að
bíllinn er hverrar krónu virði og þæg-
indin og öryggistilfinningin í bílnum
eru hreint unaðsleg. Að mínu mati er
þessi bíll einhver öruggasti bíll sem
til er fyrir fjölskyldufólk.
Nákvæmar upplýsingar
Þegar ég lagði bílnum fyrir utan Öskju
eftir prufuaksturinn sýndi aksturs-
tölvan að ég hafði ekið 92 km, verið
2:19 mínútur í akstri og meðalhraði
hafði verið 39 km á klst. Eyðslan var
6,8 lítrar af dísil miðað við 100 km
akstur, sem er mjög lítil eyðsla miðað
við kraft og stærð bílsins.
Lítil veghæð eini gallinn
Það eina sem ég var ekki ánægður
með er hæðin undir bílinn, sem er
full lítil, en þegar ég ók malarveginn
upp að skíðasvæðinu í Skálafelli var
smá snjór á veginum og örlitlir snjó-
ruðningar alltaf að rekast upp undir
varnarplötuna undir bílnum. Einnig
fannst mér bíllinn ekkert sérstakur
á malarvegi.
/HLJ
Vélaprófanir
hlj@bondi.is
Hjörtur L. Jónsson
Verð: 4.485.000.
Lengd: 4.359 mm
Breidd (án spegla): 1.786 mm
Hæð 1.557 mm
Hestöfl: frá 109 til 156
Þyngd: 1.475 til 1.505
Helstu mál Mercedes Benz B-Class:
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
og fulltrúar frá bílaklúbbunum
BMWkrafti, Blýfæti, Íslandrover,
Krúser, Live2cruize og MBKÍ
komu nýlega saman til fundar
til að ræða þróun orkuverðs. Á
fundinum var eftirfarandi ályktun
samþykkt.
álögur sínar á eldsneyti.
260 þúsund krónur í aukalegar
tekjur til að mæta auknum elds-
neytiskostnaði miðað við óbreytta
notkun.
atvinnulífið á landsbyggðinni
Félögin vara stjórnvöld alvarlega
við þeim kyrkingaráhrifum sem
sífelld hækkun eldsneytisverðs hefur
á allt þjóðfélagið. Með hækkun elds-
neytis á heimsmarkaði og stöðugt
hærri álögum ríkisins stefnir bensín-
lítrinn hraðbyri í 300 kr.
Miklar eldsneytishækkanir frá
2009 hafa dregið úr umferð um allt
land. Afleiðingin er samdráttur í við-
skiptum, fækkun innlendra ferða-
manna og lægra þjónustustig. Fyrir
marga er það orðið lúxus að bregða
sér bæjarleið.
Á árunum frá 1997 til 2009 var
samanlögð álagning olíufélaga ásamt
skattheimtu ríkisins um 140 kr. á lítra
að jafnaði, uppreiknuð til verðlags í
dag. Nú er þessi tala nálægt 160 kr. og aukningin felst alfarið í aukinni
skattheimtu. Við bætist gríðarleg
hækkun á heimsmarkaði, sem
hækkar heildarverð eldsneytis. Fyrir
10 árum kostaði bensínlítrinn tæpar
30 kr. á heimsmarkaði, en nú kostar
hann 94 kr. Á árunum 1997 til 2009
kostaði lítrinn af bensíni að jafnaði
178 kr. uppreiknað til verðlags í
dag, en nú kostar hann um 255 kr.
Um fjórðungur af þessari hækkun
er aukin skattheimta ríkisins.
Venjuleg launafjölskylda þarf að
hafa 260 þúsund krónur í aukalegar
tekjur á ári til að mæta auknum elds-
neytisútgjöldum miðað við óbreytta
notkun.
Fyrir langflesta er eina ráðið
að draga verulega úr samgöngum
og nota heimilisbílinn aðeins í það
nauðsynlegasta.
Ljóst er að samdráttur í sam-
göngum hefur afar neikvæð mar-
földunaráhrif, fyrst og fremst utan
höfuðborgarsvæðisins.
Ávinningur ríkisins af bensín-
tekjum fer minnkandi með minni
umferð, þrátt fyrir aukna skatt-
heimtu, en fyrst og fremst tapar
ríkissjóður á minnkandi umsvifum
í atvinnulífinu.
Félögin skora á ríkisvaldið að
draga úr álögum sínum á eldsneyti til
að mæta þessari ógnvænlegu þróun.
Lágmark er að ríkið taki ekki til sín
meiri tekjur en það hefur að jafnaði
fengið í gegnum árin.
Hátt bensínverð er að kyrkja þjóðfélagið
Það er óneitanlega stæll yfir innréttingunni með hvítu áklæði á sætum, stokk
og neðri hluta mælaborðs.
Í mælaborðinu er hægt að sjá allar upplýsingar um akstursferil og bensín-
eyðslu.
Bakkmyndavélin gefur mjög glögga
mynd af fjarlægðum fyrir aftan bíl-
inn.