Bændablaðið - 15.03.2012, Page 43
43Bændablaðið | fimmtudagur 15. mars 2012
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
2 9
6 7
3 8 5
1 8
6 1 4 5 7
6 9
4 8 7
8 1
3 4
4 2
8 5
1 9 7 4
2 6 4
3 8
7 4 9
6 8 4
3 5
6 3 2
3 1 4
1 7
2 6 9 1
3
8 7
2 5 1
3 9 7
24 6 75
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn ar.
Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar
í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki
innan hvers reits sem afmarkaður er
af sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú sem
er lengst til vinstri er léttust og sú til
hægri þyngst en sú í miðjunni þar á
milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni www.
sudoku2.com og þar er einnig að finna
fleiri þrautir ef þessi skammtur nægir
ekki.
7
Freyja Sigrún Freysdóttir
er nemandi í fyrsta bekk í
Vesturbæjarskólanum í Reykjavík.
Hún hefur mest gaman af stærð-
fræði í skólanum en fyrir utan
skólatíma stundar hún fimleika með
íþróttafélaginu Gróttu.
Nafn: Freyja Sigrún Freysdóttir.
Aldur: 7 ára.
Stjörnumerki: Fiskarnir.
Búseta: Í Vesturbænum í Reykjavík.
Grunnskóli: Vesturbæjarskóli.
Uppáhalds dýr? Hundurinn Lubbi
sem á heima í sveitinni (á Uppsölum
í A-Húnavatnssýslu). En líka kisan
hún Kisa sem amma og afi eiga.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Mér finnst skemmti-
legast að vera í Sprota 2, sem er
stærðfræðibók.
Hvert er uppáhalds dýrið þitt?
Það er hestur.
Uppáhaldsmatur: Grjóna grautur-
inn sem pabbi og amma Sigrún
gera.
Uppáhaldshljómsveit: Skálmöld.
Uppáhaldskvikmynd: Tinni í
Tíbet.
Fyrsta minningin þín? Þegar það
festist Doritos-snakk í hálsinum
á mér á veitingastað. Ég gat ekki
andað og gubbaði því upp úr háls-
inum. Það var ógeðslegt.
Æfir þú íþróttir, eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi fimleika með
Gróttu.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir í tölvu? Að spila leikina
sem eru á Leikjaneti
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Ég ætla að verða
dýralæknir og fimleikastjarna.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Ég man ekki eftir neinu
sérstaklega klikkuðu.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Orðið veik.
Ætlar þú að gera eitthvað sér-
stakt í sumar? Ég ætla að fara á
hestanámskeið. /ehg
Krúttlegar páskakanínur
PRJÓNAHORNIÐ
Fitjið upp 30 lykkjur með Drops symphony á
prjóna nr 4½. Prjónið 30 garða eða þar til stykkið
mælist jafnt á allar hliðar. Fellið af. Þræðið með
sterku bandi þríhyrning. Sjá mynd 1.
Setjið tróð á þrædda þríhyrninginn og dragið
stykkið saman. Sjá mynd 2.
Hnýtið böndin saman. Þetta stykki myndar
höfuðið. Saumið nú saman bakið á kanínunni.
Setjið tróð inn í. Sjá mynd 3.
Dragið endann saman í hring. Gangið frá öllum
endum, saumið perlur sem augu og setjið dúsk
sem nef og skott.
Kærar páska- og prjónakveðjur,
Signý Guðmundsdóttir, Skálholti
Skemmtilegasta bíómynd sem
Freyja Sigrún hefur séð er Tinni
í Tíbet en besta hljómsveitin að
hennar mati er Skálmöld.
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Ætlar að verða dýralæknir og fimleikastjarna
1
Bókabás
Barna-og unglingabókin
Fangarnir í trénu eftir Hörpu Dís
Hákonardóttur er kom út fyrir síð-
ustu jól hjá bókaútgáfunni Sölku en
hún er sjálfsætt framhald bókar-
innar Galdrasteinninn eftir sama
höfund sem kom út árið 2009.
Erla er að undirbúa boð heima
hjá sér þegar hún er skyndilega
hrifin til Álfheima. Hún kemst að
því að vinum hennar, konungs-
börnunum, er haldið föngnum
af Völmundi galdrakarli og
svartdvergunum hans í álaga-
skóginum í Furudal og hún ein
getur bjargað þeim. Í skóginum
eignast Erla sérstaka en góða
vini sem hjálpa henni og hún
fær einnig óvænta aðstoð frá
lærisveini Völmundar. En þó
að Erlu takist að frelsa vini sína
er aðeins hálfur sigur unninn því
leiðin til baka liggur um þver-
hnípta kletta, fjöll og dali og yfir
Vonleysisá. Ekki er heldur víst
að svartdvergarnir leyfi þeim að
sleppa svo auðveldlega ef þeir
skjóta upp kollinum.
Teikningar eru eftir Þóri Karl
Bragason Celin.
Harpa
Dís Hákonardóttir
er 18 ára Kópavogsbúi. Hún er
á þriðja ári í Menntaskólanum
við Hamrahlíð og lærir á píanó
í Tónlistarskóla Kópavogs.
Árið 2009 kom út fyrsta bók
Hörpu Dísar, Galdrasteinninn og
Fangarnir í trénu, sjálfstætt fram-
hald hennar, árið 2011.
Fangarnir í trénu
Elíasarbók – Sögur og
ljóð Elíasar Mar kom
út hjá bókaútgáfunni
Sölku á síðasta ári.
Í bók þessari birtist
í fyrsta skipti fjöl-
margt sem hraut úr
penna meistarans
Elísar Mar (1924-
2007). Hann var einn
af þeim sem á sinni
tíð setti sterkan svip
á reykvískt mannlíf
og skipaði sér ákveð-
inn sess í íslensku
bómenntaflórunni,
enda óhræddur við
að reyna á þanþol
formsins. Mörkin
milli raunveruleika
og skáldskapar eru
stundum óskýr
en sögusviðið,
hvort sem það er
Reykjavík eða
borg úti í heimi,
stendur lesanda ljóslifandi
fyrir sjónum. Persónurnar eru
margar ógleymanlegar, þær spretta
fram í fjölbreytileika sínum og
auðga safn íslenskra mannlýsinga.
Endurminningar, skáldastæl-
ingar, ástarsögur og ljóð, mann-
lýsingar, háðkvæði og heim-
speki; hvar sem borið er niður
leiftrar textinn af einskærri sköp-
unargleði og Elíasi sjálfum.
Þorsteinn Antonsson tók saman.
Bókin er 303. bls. og prentuð
hjá Odda.
Sögur og ljóð Elíasar Mar