Bændablaðið - 15.03.2012, Side 44
44 Bændablaðið | fimmtudagur 15. mars 2012
Íslensk hönnun
Hugsar í hagnýtum
nytjahlutum
Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir,
grafískur hönnuður, venti kvæði
sínu í kross fyrir nokkrum árum
þegar hún stofnaði sitt eigið
fyrirtæki í kringum hina ýmsu
nytjahluti sem hún hannar og
lætur framleiða fyrir sig. Einna
þekktast er herðatréð Krummi
sem hefur vakið mikla athygli hér
heima og víða erlendis.
Upphaf:
„Ég er grafískur hönnuður
og útskrifaðist árið 2001 frá
Listaháskólanum. Ég starfaði á
auglýsingastofum og sjálfstætt áður
en ég snéri mér alfarið að vöru-
hönnuninni. Það nám var ekki til
hér þegar ég fór í grafísku hönn-
unina en þetta er mjög skemmtilegt
og gengur vel. Það fyrsta sem ég
gerði í vöruhönnuninni var glösin
Fjölskyldan mín, í samstarfi við
Dagnýju Kristjánsdóttur, sem voru
á þjóðlegu nótunum. En það fyrsta
sem ég gerði ein var krummaherða-
tréð sem hefur gengið mjög vel.
Það er skemmtilegt að sjá hann
hanga víða á heimilum þegar maður
keyrir um bæinn og fólk notar hann
í ýmsum útfærslum. Árið 2008
fór ég á sýninguna 100% Design í
London og fékk mikla athygli þar
frá hönnunarbloggurum, fagtíma-
ritum og verslunum og eftir það fór
boltinn að rúlla. Í framhaldinu hef
ég fengið mikla athygli erlendis
frá og það hjálpar til, en núna er
krumminn í sölu í 10 löndum.“
Efniviður:
„Hingað til hef ég mikið unnið með
krossvið en það er ekki af því að
mér finnist hann mest spennandi.
Einnig hef ég unnið með ál og er að
prófa steypu núna. Mér finnst mjög
skemmtilegt að prófa ýmis efni,
því nú er ég komin út úr grafísku
hönnuninni sem snýst að mestu
leyti um að vinna með pappír. Ég
reyni að láta framleiða hér heima
fyrir mig ef það er mögulegt en
það er því miður ekki alltaf hægt.“
Innblástur:
„Þetta eru allt saman nytjahlutir
sem ég hanna og læt framleiða og
það er kannski skrýtið að segja það,
en ég hanna eingöngu það sem ég
get hugsað mér að nota sjálf. En
mér finnst einnig mikilvægt að
flestir hafi efni á að kaupa hlutina
sem ég geri.“
Framundan:
„Núna er Hönnunarmarsinn
framundan og við fjórir aðrir
hönnuðir höfum í samstarfi við
hönnunarverslunina Kraum hannað
sköft á klassísku pönnukökupönnuna.
Afraksturinn verður frumsýndur þar.
Annars fara bráðum í framleiðslu
frá mér renndir viðarbollar fyrir
kaffikrúsir, staflanlegur kertastjaki
og eldhúsrúllustandur í sömu línu.
Einnig er ég að koma með á markað
klukkur úr steypu og er að hanna
púða og viskustykki, þannig að það
er í nógu að snúast.“ /ehg
Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir, grafískur hönnuður, snéri sér alfarið að
vöruhönnun fyrir nokkrum árum og hlaut fyrstu verðlaun fyrir Laxness-
var nytjahlutir í anda Errós