Fréttablaðið - 04.02.2012, Side 76
4. febrúar 2012 LAUGARDAGUR44
timamot@frettabladid.is
24 tíma vakt
Davíð H. Ósvaldsson
S: 896 8284
Óli Pétur Friðþjófsson
S: 892 8947
Sími 551 3485
ÞEKKING –REYNSLA–ALÚÐ
ÚTFA
RARÞJÓNUSTA
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir
og amma,
Katrín Jónsdóttir
lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans
Landakoti, laugardaginn 28. janúar. Útförin fer fram
frá Garðakirkju þriðjudaginn 7. febrúar kl. 13.00.
Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir Ásgeir Ö. Jóhannsson
Hanna Lilja Jóhannsdóttir Lúðvík Ö. Steinarsson
Hjördís Hildur Jóhannsdóttir Ellert K. Schram
og barnabörn.
Innilegustu þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför okkar ástkæra móðurbróður
og frænda,
Jóns Brynjólfssonar
Blönduhlíð 16, Reykjavík,
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Hrafnistu í
Hafnarfirði.
María J. Guðmundsdóttir
Gíslína Sigurbjörg Kauffman
Brynjólfur Guðmundsson
og fjölskyldur.
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Inger Steinsson Inger Rós Ólafsdóttir Ólafur Örn Pétursson
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Vönduð og
persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 · 691 0919 · athofn@athofn.is · www.athofn.is
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu
sem hafa sýnt fjölskyldunni samúð
og hlýhug vegna fráfalls ástkærs
eiginmanns míns,
Guðmundar Gíslasonar
Efstaleiti 12, Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendi ég starfsfólki á deild 2D á
Sóltúni.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Erna Adolphsdóttir
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
Geirlaug Jónsdóttir
Hrafnistu,
lést 31. janúar. Jarðarför fer fram miðvikudaginn
8. febrúar kl. 13.00 frá Digraneskirkju.
Birgir Sigurðsson Sólveig Bjarnþórsdóttir
Nanna Lára Sigurjónsdóttir
Merkis-
atburðir
1792 George Washington
er kosinn 1. forseti
Bandaríkjanna.
1898 Holdsveikt fólk á
Íslandi er sett í sóttkví
með lögum.
1947 Ný ríkisstjórn undir
forsæti Stefáns
Jóhanns Stefánsson-
ar tekur við völdum á
Íslandi.
1961 Verslunarbankinn
er stofnaður upp úr
Verslunarsparisjóðn-
um.
1968 Fárviðri gengur yfir
Vestfirði sem verður
25 sjómönnum að
grandi.
1976 Vetrarólympíuleikarn-
ir 1976 hefjast í Inns-
bruck í Austurríki.
2007 Þjóðverjar vinna
heimsmeistaratitil í
handbolta á heima-
velli.
45
„Við sem höfum okkar barnatrú þekkj-
um biblíusögur sem hafa hjálpað okkur
í gegnum hvers konar sorgir og átök í
lífinu. Það er yndislegt. Okkur langar
að sýna aðeins í hvers konar samhengi
þessar sögur eru í hinni stóru sögu
Biblíunnar,“ segir Manfred Lemke,
prestur í kirkju sjöunda dags aðvent-
ista á Íslandi. Hann er einn þeirra
sem stendur að sýningunni Biblían í
þrívídd - Rúmast biblían í Hörpu? sem
hefst í Hörpunni í dag og verður opin
til 16. febrúar, milli klukkan 10 og 22.
Sýningin er í salnum Rímu, sem er á
jarðhæð og snýr út að höfninni. Man-
fred segir hana skiptast í níu bása og
ekki snúast um fróðleik heldur frekar
upplifun. „Þar er gott að setjast inn og
hugsa,“ segir hann.
Manfred bendir á að meðal íslensku
þjóðarinnar sé sterk trúar- og sagna-
hefð. Húslestrar voru viðtekin venja
á íslenskum heimilum fram á síðustu
öld, þar sem andleg rit voru lesin og
sálmur sunginn. Áhrif Biblíunnar
á íslenska tungu séu mikil. „Það er
óhætt að segja að íslensk menning
sé að hluta til mótuð af kristinni arf-
leifð,“ segir hann.
Þótt ekki verði um eiginlega hús-
lestra að ræða í Hörpu verður þar 80
mínútna dagskrá níu kvöld meðan á
sýningunni stendur, sú fyrsta mánu-
daginn 6. febrúar. Hver kvölddagskrá
er þrískipt. Þær hefjast á erindi um
þjóðfélagsleg efni, einhver af helstu
kórum landsins kemur fram og að
lokum verður fyrirlestur um efni sem
tengist einum af níu básum sýningar-
innar.
Manfred segir upphafserindin í
dagskrá hvers kvölds eiga að verða
jákvætt innlegg í umræðu líðandi
stundar og nefnir meðal fyrirlesara
þau Gunnar Hersvein heimspeking,
Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjón
og Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur kenn-
ara. Tónlistin tengist viðfangsefninu
hverju sinni en Garðar Cortes sér um
hana.
Biblíulegur fyrirlesari öll kvöldin er
Janos Kovacs-Biro, prestur frá Ung-
verjalandi. Erindi hans verða flutt á
ensku en textanum verður varpað á
skjá. „Janos er ekki einn þeirra sem
þykist vita öll svör en hann er fróður,
meðal annars um Ísland, og á auðvelt
með að tengja efni sitt íslenskum raun-
veruleika,“ segir Manfred.
Kvölddagskráin fer fram í salnum
Kaldalóni og hefst klukkan 20 nema
laugardaginn 11. febrúar, þá byrjar
hún klukkan 16. Manfred tekur fram
að bæði sýningin og kvölddagskrá-
in séu ókeypis og öllum opin og telur
hvort tveggja höfða til allra aldurs-
hópa. gun@frettabladid.is
MANFRED LEMKE: STENDUR AÐ BIBLÍUSÝNINGU SEM HEFST Í DAG Í HÖRPU
Íslensk menning að hluta til
mótuð af kristinni arfleifð
PRESTUR KIRKJU SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA „Þjóðinni er boðið til sýningar um hina stóru
sögu Biblíunnar,“ segir Manfred. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Harry Eddom, 26 ára stýrimaður, komst
einn lífs af þegar breski togarinn Ross
Cleveland fórst í ofviðri í Ísafjarðardjúpi
og með honum nítján skipverjar. Eddom
mátti þola hrakninga á sjó og landi í
hálfan annan sólarhring áður en hann
fannst. Fyrst lenti hann í 10 til 12 klukku-
tíma volki á björgunarbáti, síðan tók
við löng ganga að húsi sem reyndist
mannlaust og köld nótt undir veggjum
þess í hríðarbyl. Morguninn eftir hitti
hann smala af næsta bæ og var þar með
hólpinn.
Gríðarleg samkeppni var meðal fjölmiðla
um myndir af Eddom og konu hans
Ritu sem kom á sjúkrahúsið á Ísafirði til
fundar við mann sinn. Um fjörutíu breskir
fréttamenn komu til landsins vegna máls-
ins og átti starfsfók sjúkrahússins fullt í
fangi með að verjast þeim innrásarher.
ÞETTA GERÐIST: 4. FEBRÚAR 1968
Komst einn lífs af þegar Ross Cleveland fórst
Þorsteinn Guðmundsson leikari á afmæli í dag.
„Ég er ekki hálfviti, ég hef aldrei kýlt neinn, oft snyrtilegur til fara, kvæntur
konu sem passar að ég geri engar vitleysur, stundvís og kattþrifinn.“